Kaup VÍS og Fossa á eignastýringu Kviku rædd sem möguleiki

Rætt hefur verið óform­lega um mögu­leg kaup Vátrygg­inga­fé­lags Íslands á eigna­stýr­ingu Kviku banka. Trygg­inga­fé­lagið hefur boðað sókn á fjár­fest­inga­banka­mark­aði í kjöl­far fyr­ir­hug­aðs sam­runa við Fossa. Upp­lýs­inga­full­trúi VÍS svarar spurn­ingu um málið ekki beint en vísar til áhuga sam­ein­aðs félags á að vaxa.

Sókn í fjárfestingabankastarfsemi
Sókn í fjár­fest­inga­banka­starf­semi Vátrygg­inga­fé­lag Íslands hefur boðað sókn á fjár­fest­inga­banka­mark­aði í kjöl­far fyr­ir­hug­aðs sam­runa við Fossa. Guðný Helga Her­berts­dóttir er for­stjóri VÍS.

Kaup Vátrygg­inga­fé­lags Íslands (VÍS) á eigna­stýr­ingu Kviku banka hafa verið rædd í tengslum við fyr­ir­hug­aðan sam­runa Kviku og Íslands­banka. Báðir bank­arnir eru með stórar eigna­stýr­ing­ar­deildir og geta sam­keppn­is­sjón­ar­mið komið í veg fyrir að Sam­keppn­is­eft­ir­litið heim­ili þessum fjár­mála­fyr­ir­tækjum að sam­ein­ast vegna þess. Þetta herma upp­lýs­ingar Heim­ild­ar­innar.

„Hins vegar kemur skýrt fram í kynn­ingu um kaupin, sem fór í Kauphöll með fund­ar­boð­inu um hlut­hafa­fund­inn, áhugi stjórnar VÍS að vaxa enn frekar á fjár­mála­mark­aði.“
Úr svari VÍS

Stofnunin tekur afstöðu í formlegri rannsókn

Nú standa yfir for­við­ræður um sam­run­ann hjá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu. Ef hlut­hafar Kviku og Íslands­banki ákveða að sam­ein­ast þá fyrst mun form­leg rann­sókn hefj­ast hjá stofn­un­inni, segir Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. „Eins og félögin hafa gert grein fyrir þá hafa þau óskað eftir svoköll­uðum for­við­ræðum við okkur um sam­run­ann. Þessar for­við­ræður eru skammt á veg komnar og við erum ekki byrj­aðir að gera neinar kröfur ennþá,“ segir hann. 

Fram að því mun Sam­keppn­is­eft­ir­litið því ekki taka slík sam­keppn­is­leg atriði fyrir form­lega. Stofn­unin þarf að sam­þykkja sam­run­ann til að af honum geti orðið. 

Atriði sem gæti komið til skoð­unarStærð eigna­stýr­ing­ar­deilda Kviku og Íslands­banka er atriði sem gæti komið til skoð­unar hjá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu ef og þegar form­leg rann­sókn stofn­un­ar­innar hefst. Páll Gunnar Pálsson er for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

VÍS og Fossar boða  aukna sókn á eignastýringarmarkaðnum

VÍS hefur boðað aukna sókn inn á eigna­stýr­ing­ar­mark­að­inn í kjöl­far fyr­ir­hug­aðra kaupa trygg­inga­fé­lags­ins á fjár­fest­ing­ar­bank­anum Fossum. Kaupin væru því í sam­ræmi við það sem VÍS hefur gefið út. Í fyrra­haust stofn­aði trygg­inga­fé­lagið eigna­stýr­ing­una Siv sem bíður nú eftir starfs­leyfi frá Seðla­banka Íslands. Samkvæmt heima­síðu Sivjar starfa tveir starfs­menn hjá henni um þessar mundir. 

Hlut­hafa­fundur VÍS er í næstu og verður tekin afstaða þar til kaupanna á Fossum. 

Í nýlegri kynn­ingu á kaup­unum á Fossum kemur svo meðal ann­ars fram að sam­einað fyr­ir­tæki sjái sókn­ar­færi í því að hraða upp­bygg­ingu eigna­stýr­ing­ar­innar. „Gert er ráð fyrir að lang­tíma arð­sem­is­mark­mið hækki úr 1,5 kr. á hlut í yfir 2,5 kr. á hlut – vegna sam­legðar og mögu­leika til að hraða upp­bygg­ingu fjár­fest­ing­ar­banka og eigna­stýr­ingar.“

Heim­ildin spurði VÍS að því hvert trygg­inga­fé­lagið hefði áhuga á að kaupa eigna­stýr­ingu Kviku banka. Ekki er gefið skýrt svar við þess­ari spurn­ingu en hins vegar stendur að stjórn VÍS hafi áhuga á því að „vaxa enn frekar á fjár­mála­mark­aði“ eins og segir í svar­inu. „Nú er verið að skipu­leggja hlut­hafa­fund VÍS sem fer fram í næstu viku, en hlut­hafar félags­ins þurfa að sam­þykkja kaupin á Fossum fjár­fest­ing­ar­banka, áður en lengra er haldið.Ég get full­yrt að áherslan okkar allra sé núna; að taka eitt skref í einu. Hins vegar kemur skýrt fram í kynn­ingu um kaupin, sem fór í Kauphöll með fund­ar­boð­inu um hlut­hafa­fund­inn, áhugi stjórnar VÍS að vaxa enn frekar á fjár­mála­mark­aði.“

Fossar hafa einnig boðað aukna sókn inn á þennan markað en fyr­ir­tækið hefur unnið að því að koma sér upp eigna­stýr­ingu á liðnum árum. Eigna­stýr­ing Fossa er hins vegar fámenn, telur nú fjóra starfs­menn. For­stöðu­maður eigna­stýr­ingar Fossa hætti í fjár­fest­ing­ar­bank­anum fyrir skömmu.  á meðan er eigna­stýr­ing Kviku er með tæp­lega 40 starfs­menn.  Eigna­stýr­ing Kviku er því stór enda hefur hún orðið til í gegnum árin með sam­ein­ingum og yfir­tökum nokk­urra fyr­ir­tækja sem hafa sinnt eigna­stýr­ingu.

Eigna­stýr­ing Íslands­banka er með um 30 starfs­menn sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá bank­anum. Samtals er því um að ræða um 70 starfs­menn í eigna­stýr­inga­deild­unum tveimur.

Kvika og Íslandsbanki segja fátt

Heim­ildin spurði Kviku og Íslands­banka að því hvort sjón­ar­mið séu uppi um að selja þurfi eigna­stýr­ingu Kviku til að liðka til fyrir sam­run­anum. Í slíkum for­við­ræðum við Sam­keppn­is­eft­ir­litið geta komið upp atriði sem þarf að laga vegna sam­keppn­is­sjón­ar­miða til að af sam­run­anum geti orðið og því þurfa fyr­ir­tækin að sem ætla að sam­ein­ast að búa þannig um hnút­ana að við­skiptin geti gengið í gegn. 

Í svari til Heim­ild­ar­innar segir Marinó Tryggva­son, for­stjóri Kviku, aðspurður um þetta:  „Áður en það verður skoðað hvernig brugð­ist verður við mögu­legum sam­keppn­is­sjón­ar­miðum er mik­il­vægt að félögin hafi tekið ákvarð­anir um næstu skref sem verða m.a. byggð á grein­ingum ráð­gjafa [...]. Skoðun á sölu á eigna­stýr­ing­ar­starf­semi Kviku hefur því ekki farið fram.“

Í svari til Heim­ild­ar­innar um þetta segir Edda Her­manns­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi Íslands­banka: „Við getum því miður ekki veitt upp­lýs­ingar um stöðu máli umfram það sem kemur fram í síð­ustu Kaup­hall­ar­til­kynn­ingu.“

Eftir að fyr­ir­tækin ákveða að sam­ein­ast, ef það verður nið­ur­staðan, hefur Sam­keppn­is­eft­ir­litið 25 daga til að skoða til­kynn­ingu um sam­run­ann og ákveða hvort frek­ari rann­sókn þurfi við. Stofn­unin getur þá annað hvort stað­fest hann eða komið með athuga­semdir og hafið rann­sókn þar sem tímara­mm­inn er 90 virkir dagar sem hægt er að fram­lengja ef svo ber undir.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Grétar Reynisson skrifaði
    Rúllettan á fullu ! Er ekki annars að meðaltali um 15 ár milli þess sem fjármálakrísur ríða yfir ? 🤔
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár