„Við getum ekki brugðist við með því að reyna að lifa eins og í sænskri hippakommúnu“

Formaður Mið­flokks­ins segir að leyfa verði vís­indum að leysa lofts­lags­vand­ann í stað þess að bregð­ast við með því að reyna að lifa eins og í sænskri hippa­komm­únu.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir í sérstakri umræðu um loftslagsmál á Alþingi að mikilvægt sé að umræðan sé til þess fallin að skila einhverjum árangri. Hann segir að ekki sé æskilegt og í rauninni á margan hátt skaðlegt að viðhafa fyrst og fremst hræðsluáróðri um umhverfismál og loftslagsmál.

„Að börn komi skelfingu lostin heim úr skólanum og telja að heimurinn sé að farast. Við verðum að nálgast þessi mál, þetta stóra viðfangsefni á forsendum staðreynda og með tilliti til vísinda og með tilliti til samhengis,“ segir Sigmundur Davíð.

Telur að það besta sem Ísland hafi gert þegar kemur að loftslagsmálum er að reisa álver

Í dag, fimmtudaginn 19. september, fer fram sérstök umræða um loftslagsmál og skuldbindingar Íslands á alþjóðavettvangi á Alþingi. Málshefjandi er Logi Einarsson og til andsvara er forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir. Logi kallaði meðal annars eftir svörum um hvort að rýnt hafi verið í loftslagsmál í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar.

Sigmundur Davíð tók næstur til máls og sagði að mikilvægt væri að nálgast loftslagsmál á forsendum staðreynda og með tilliti til samhengis. Hann segir að til að mynda sé eitt það besta og jafnvel það albesta sem Ísland hafi gert gagnvart loftslagsmálum í heiminum sé að reisa álver hér á landi.

Að álverin skuli hafa verið byggð á Íslandi þar sem notast er við endurnýjanlega, umhverfisvæna orku í stað þess að álver hafi risið í Kína þar sem losun vegna álveranna hefði verið tíföld það sem samskonar álver losi á Íslandi. Enda séu orkukerfin þar keyrð áfram af gegndarlausum kolabruna.

Segir að byggja verði umræðuna á staðreyndum

[links]Sig­mundur Davíð fjall­aði jafn­framt um fyr­ir­hug­aðan urð­un­ar­skatt stjórn­valda í pontu og spurði af hverju sé ekki verið að leggja áherslu á aðra val­kosti. Til að mynda að hér verði reistar hátækni­sorp­brennslur og þær brennslur not­aðar til að fram­leiða orku enda sé heim­il­is­rusl umhverf­is­væn­asta elds­neytið til orku­fram­leiðslu. 

Að lokum segir Sig­mundur að ekki sé hægt að bregð­ast við þessum málum með því að reyna lifa eins og í „sænskri hippa­komm­únu“. „Við verðum að leyfa vís­ind­unum að leysa þetta fyrir okkur. Því það eru þau sem hafa skilað okkur mestum árangri þegar það kemur að minni mengun. Byggja á stað­reyndum, sam­hengi og lausnum sem raun­veru­lega virka,“ segir Sig­mundur Davíð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár