Þarftu nokkuð nótu?

Fjórir af hverjum tíu Dönum kaupa svarta vinnu. Og hinir efna­meiri sækja frekar í slíka þjón­ustu en þeir sem hafa minna á milli hand­anna.

Flestir, sem kaupa vöru og þjón­ustu, kann­ast lík­lega við þessa spurn­ingu og hafa kannski margoft verið spurðir. Spurn­ingin er ekki borin upp til að spara pappír og af umhyggju fyrir umhverf­inu og nátt­úr­unni. Spurn­ingin felur í sér að sá sem spurður er, og svarar að ekki þurfi nótu, sleppi við að borga sölu­skatt sem hækkar reikn­ings­upp­hæð­ina um fjórð­ung. Þarna er því iðu­lega um veru­lega fjár­muni að ræða og það freistar margra. En það er ekki endi­lega umhyggja fyrir buddu við­skipta­vin­ars­ins sem er efst í huga selj­and­ans. Ef við­skiptin sem um er að ræða eru ekki skráð og fara ekki í gegnum sjóð­vél (sem flestir kalla pen­inga­kassa) eru þau nefni­lega hvergi til. Það þýðir að sú umbun sem selj­and­inn fær kemur ekki fram og það þýðir aftur að þegar kemur að skatt­fram­tal­inu eru þessar tekjur selj­and­ans ein­fald­lega ekki til og því eng­inn skattur sem greiða þarf, ekk­ert gefið upp. Þetta fyr­ir­komu­lag gengur undir nafn­inu „svört vinna” og þekk­ist í mörgum löndum.

Reglurnar

Verk sem kostar meira en tíu þús­und (tæpar 190 þús­und íslenskar) skal greiða með raf­rænum hætti, þessi regla var tekin upp í árs­lok 2010. Fyr­ir­tækjum eða ein­stak­lingum er skylt að gefa tekjur upp til skatts. Vin­ar­greiðar (hjálpa kunn­ingja að skipta um krana í eld­hús­inu) eru ekki fram­tals- og skatt­skyldir. En, ef kunn­ing­inn flytur (í stóra bílnum sínum) þvotta­vél í stað­inn fyrir við­vikið með kran­ann kall­ast það skipti­vinna og hún er skatt­skyld. Allir sjá í hendi sér að þótt regl­urnar séu skýrar er þó allt annað en auð­velt að fylgj­ast með að þeim sé fram­fylgt, nán­ast úti­lokað.

Fjórir af hverjum tíu Dönum kaupa svarta vinnu

Danski Rockwool rann­sókna- og vís­inda­sjóð­ur­inn gerði árið 2010, og aftur árið 2014 athugun á afstöðu Dana til svartrar vinnu. Tæplega fjögur þús­und manns voru spurðir í hvort skipti. Helm­ing­ur­inn hvort þeir hefðu keypt svarta vinnu, hinn helm­ing­ur­inn hvort þeir hefðu unnið svart. Líka var spurt hvort þeim þætti allt í lagi að kaupa eða selja svart burð­séð frá því hvort við­kom­andi hefði sjálfur gert slíkt. Árið 2010 sagð­ist rúmur helm­ingur aðspurðra hafa keypt svarta vinnu en fjórum árum síðar, 2014, hafði hlut­fallið lækkað í fjöru­tíu pró­sent. Fjöldi þeirra sem hafði unnið svart var nokkurn veg­inn sá sami í báðum könn­unum, rúm­lega tutt­ugu og tvö pró­sent, tekj­urnar vegna svörtu vinn­unnar höfðu hins­vegar lækkað í könn­un­inni 2014 frá fyrri könn­un­inni.

Sér­fræð­ingur Rockwool sjóðs­ins segir að regl­urnar um raf­ræna greiðslu og rýmri heim­ildir skatts­ins til bók­halds­rann­sókna hafi lík­lega orðið til að draga úr áhuga fólks fyrir að vinna, og kaupa, svart. Sér­fræð­ing­ur­inn benti líka á að almenn­ingur líti ekki á það sem skatt­svik að ætt­ingjar og vinir geri hverjir öðrum greiða. Slíkt hafi tíðkast um aldaraðir og þyki sjálf­sagt.

Þeir betur settu vilja helst kaupa svart

Það vakti athygli sér­fræð­ing­anna sem gerðu könn­un­ina að efna­meira fólk vill frekar borga svart en hinir efna­minni. Skýr­ingin, að mati sér­fræð­ing­anna, kann að vera sú að hinir efna­meiri kaupi margs konar þjón­ustu umfram þá efna­minni. Könnunin segi ekk­ert um hug­ar­far. Sér­fræð­ing­arnir nefndu enn­fremur að sú heim­ild sem skatt­ur­inn fékk árið 2010 til að fara inn á einka­lóðir og sjá hvort, og þá hvaða, fram­kvæmdir væru þar í gangi hefði nú verið felld niður. Fróðlegt yrði að sjá hvort þetta myndi ein­hverju breyta. Þeir sem vilja gjarna vinna svart eru lang­flestir úr hópi hinna efna­minni, til­búnir að vinna á kvöldin og um helgar til að hleypa laun­unum upp.

Það svarta er borgað með seðlum, jafn­vel svörtum seðlum

Þegar spurt var um greiðslu­máta fyrir svörtu vinn­una kom fram að í lang­flestum til­vikum væri greitt í bein­hörðum pen­ingum. Skýr­ingin liggur í augum uppi, seðlar sem fara úr einu veski í annað skilja ekki eftir sig neina slóð. Og ekki er víst, segja skýrslu­höf­undar, að seðl­arnir sem rak­ar­inn fær frá smiðnum hafi dag­inn áður verið teknir út úr bank­anum, gætu þess vegna verið komnir frá bif­véla­virkj­anum og jafn­vel verið búnir að fara um enn fleiri veski.

Rakarinn, rafvirkinn, bifvélavirkinn og smiðurinn

Í könn­unum Rockwool sjóðs­ins 2014 og 2010 tróndi hár­sker­inn á toppnum þegar spurt var hvað það væri sem svar­endur gætu helst hugsað sér að kaupa svart. Í könn­un­inni 2014 nefndu flestir, eða sjö pró­sent, hár­sker­ann en 2010 voru það tíu pró­sent sem nefndu hann. Næst­flestir, sex pró­sent, nefndu raf­virkj­ann en átta pró­sent nefndu hann árið 2010. Bif­véla­virkj­ann nefndu tæp fimm pró­sent 2014 en rétt tæp tíu pró­sent árið 2010. Þetta kann að skýr­ast af því að æ fleiri bíla­um­boð bjóða margra ára ábyrgð, sem er bundin við að þjón­usta fari fram hjá verk­stæði umboðs­ins, þar sem ekki er unnið nótu­laust. Sjö pró­sent nefndu smið­inn 2010, nær helm­ingi færri í seinni könn­un­inni. Að gæta gælu­dýra og hrein­gern­ingar voru líka á list­anum.

Flestir þeirra sem á annað borð lýstu sig fúsa til að kaupa svarta vinnu sögð­ust helst gera það þegar þeir þekktu þann sem fengi greiðsl­una.

Erfitt að meta tekjutap ríkisins

Sér­fræð­ingar Rockwool sjóðs­ins telja að árleg velta í svarta hag­kerf­inu sé um það bil 40 millj­arðar króna (760 millj­arðar íslenskir). Erfitt sé hins vegar að meta hve miklum skatt­tekjum danska ríkið verði af. Þeir sem fái borgað svart leyfi sér lík­lega meira, kaupi til dæmis dýr­ari vörur, skipti oftar um bíl, end­ur­nýi heim­il­is­tækin oftar o.s.frv. Aukin neysla þýði auknar skatt­tekjur. Þeir sem kaupa svarta vinnu, til dæmis við húsa­við­gerðir, láti líka gera meira (t.d.skipta um þrjá glugga en ekki tvo). Það þýði meiri tekjur í formi sölu­skatts og hærri opin­ber gjöld þeirra fyr­ir­tækja sem selja bygg­inga­vörur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár