Baráttan um alþjóðaviðskiptin

Í Davos ræða valda­mennt um stöðu efna­hags­mála. Hags­muna­bar­áttan um þró­un­ina í alþjóða­við­skiptum er aug­ljóst. Donald Trump er í sviðs­ljós­inu. Hvað vill hann í raun og veru?

Á við­skipta­ráð­stefn­unni í Davos í Sviss, þar sem margt áhrifa­mesta fólk heims­ins á sviði stjórn­mála og við­skipta kemur saman til skrafs og ráða­gerða, eru alþjóða­við­skipti í brennid­epli.

Sér­stak­lega bein­ast spjótin nú að tveimur pólum. Annars vegar ein­angr­un­ar­hyggju og síðan opnum við­skiptum.

Skömmu áður en þessi árlegi við­burður hófst til­kynntu banda­rísk stjórn­völd um nýjar aðgerðir til að örva efna­hag­inn heima fyrir. Inn­flutn­ings­tollar verða settir á inn­flutn­ing þvotta­véla og sól­ar­skjalda, til að virkja sól­ar­orku, og verða þeir á bil­inu 30 til 50 pró­sent.

Talið er að aðgerð­irnar bein­ist ekki síst að sam­keppn­is­að­ilum banda­rískra fram­leið­anda í Asíu og Mexíkó. Þannig hafa iðn­fyr­ir­tæki í Suður-Kóreu og Kína mót­mælt þessu harð­lega, á meðan banda­rísk fyr­ir­tæki, eins og Whirlpool, fagna þessu.

En hvað er þarna á seyði? Hvernig stendur á því að Banda­ríkin eru allt í einu orðin málsvari ein­angr­un­ar­hyggju í við­skiptum en Kína - þar sem rík­is­valdið er allt um lykj­andi - talar fyrir opnum alþjóða­væddum heimi?

Nokkur atriði má segja að ein­kenni þessar rök­ræðar.

1. Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hefur alla tíð í sinni póli­tísku bar­áttu, alveg frá því árið 2015, talað fyrir því að horn­steinn­inn í hans efna­hags­legu sýn sé sá, að Banda­ríkin séu að halda of mörgum uppi með ann­ars vegar skattfé og svo „lélegum“ við­skipta­samn­ingum við önnur ríki. Bak­beinið í slag­orði hans, „Gerum Banda­ríkin Frábær Aftur (Make America Great Again)“ er nátengt þessum mál­flutn­ingi. Núna, eftir eitt ár í emb­ætti, virð­ist sem hann ætli að reyna að hrinda stefnu sinni í fram­kvæmd, meðal ann­ars með sér­tækum tollum en líka með því að draga Banda­ríkin meira út úr alþjóða­sam­starf­inu, og stokka spilin upp á nýtt. Trump vill, að Banda­ríkin fram­leiði meira og minna allt það sem hægt er að fram­leiða í Banda­ríkj­unum, þar, og hvetur Banda­ríkja­menn til að kaupa banda­rískar vörur frekar en aðrar. Þessi mál­flutn­ingur er kunn­ug­legur frá tímum Ronalds Reagans, en þó með þeim fyr­ir­vara að Reagan tal­aði um að Banda­ríkin ættu alltaf að vera opin fyrir sam­keppni og nýjum straumum. Það væri þjóð­ar­ein­kennið. Í ræðu sinni í Davos í dag, reyndi Trump að róa þá sem hafa haft veru­legar efa­semdir um mál­flutn­ing hans. Hann sagði Banda­ríkin opin fyrir við­skiptum, en að sá tími væri lið­inn þar sem það væri hægt að búast við „gjöfum“ frá Banda­ríkj­unum, að því er segir í umfjöllun The Economist.

2. Á meðan í Asíu. Kín­verjar hafa gripið til margra aðgerða að und­an­förnu, til þess að opna efna­hag sinn fyrir við­skiptum, meðal ann­ars frá Banda­ríkj­unum. Þannig kom það mörgum á óvart, þegar Trump heim­sótti Kína og fleiri Asíuríki í fyrra, að í til­efni af heim­sókn hans var ákveðið að gera miklar breyt­ingar á reglu­verki fjár­mála­mark­að­ar­ins og opna fyrir mögu­leika á eigna­stýr­ingu erlendra fyr­ir­tækja. Þetta kann að hljóma sem lítið mál, en almennt er litið á þessar aðgerðir sem stórt og mikið skref í að auka sam­vinnu Banda­ríkj­anna og Kína á sviði fjár­mála­þjón­ustu. Hvað þýðir þetta? Í umfjöllun Bloomberg segir, að þetta sé stórt og mikið skref, og sýni að Kín­verjar - og fleiri þjóðir Asíu sem eru háðar ris­anum í Austri - séu skipu­lega að opna hag­kerfi sín fyrir alþjóð­legum við­skipta­háttum. Með þessu eru send skila­boð til Banda­ríkj­anna: Á meðan Banda­ríkin tali fyrir ein­gangr­un­ar­hyggju, þá sé kín­verski ris­inn til­bú­inn að taka við kefl­inu sem leið­andi afl alþjóða­við­skipt­anna.

3. Margio Draghi, for­seti banka­stjórnar Seðla­banka Evrópu, lét hafa eftir sér á dög­unum að banda­rísk stjórn­völd mættu ekki „tala upp gjald­miðla­stríðið“ sem stundum er kallað. Til ein­föld­unar, má segja að þá sé ein­stök gjald­miðla­svæði að „stilla af“ gengi gjald­miðla svo það henti t.d. Útflutn­ingi. Staða Banda­ríkja­dals gagn­vart evr­unni er núna 1,25 Banda­ríkja­dalur fyrir hverja evru, og hefur jafn veik staða ekki verið upp í þrjú ár. Banda­rískir fjöl­miðlar hafa fjallað tölu­vert um það að und­an­förnu, að Trump og hans fólk í Hvíta hús­inu vilji að dal­ur­inn sé jafn­vel enn veik­ari gagn­vart evru. En Draghi var­aði við því, að mik­ill póli­tískur þungi sé settur í slíkar umræður, ekki síst til að hafa ekki óæski­leg áhrif á mark­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár