Hagnaður Pírata tífaldaðist milli ára

Rekstur Pírata lag­að­ist umtals­vert milli áranna 2019 og 2020, að mestu vegna þess að launa­kostn­aður dróst saman. Eigið fé þeirra átta stjórn­mála­flokka sem fá fé úr rík­is­sjóði jókst um tæp­lega 750 millj­ónir króna á síð­asta kjör­tíma­bili.

Píratar högn­uð­ust um 25 millj­ónir króna á árinu 2020. Það er er næstum tíu sinnum betri afkoma en á árinu 2019, þegar hagn­að­ur­inn var 2,6 millj­ónir króna. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Pírata sem birtur var á vef Rík­is­end­ur­skoð­unar fyrr í þessum mán­uði.

Flokk­ur­inn var sá eini sem fær greiðslur úr opin­berum sjóðum sem skil­aði ekki gildum árs­reikn­ingi áður en lög­bund­inn frestur til þess rann út 1. nóv­em­ber í fyrra.

Reikn­ingnum var svo skilað 23. nóv­em­ber en ágrein­ingur er milli stofn­un­ar­innar og Pírata um hvernig eigi að tekju­færa fram­lag úr rík­is­sjóði til flokks­ins sem gerði það að verkum að Rík­is­end­ur­skoðun gaf Pírötum frest til að bæta úr ætl­uðum ann­mörkum.

Á heima­síðu Rík­is­end­ur­skoð­unar segir að sam­kvæmt birtum árs­reikn­ingi séu fram­lögin frá rík­inu tekju­færð eftir því sem Píratar telja þau áunnin miðað við dag­setn­ingu og nið­ur­stöðu kosn­inga þegar Píratar voru fyrst kjörnir á þing í apríl 2013. „Framlög rík­is­ins til stjórn­mála­sam­taka eru hins vegar ákvörðuð í fjár­lögum hverju sinni og til­heyra fram­lögin þannig til­teknu fjár­laga­ári. Með sam­þykkt fjár­laga mynd­ast þannig fyrst skil­yrði til að greiða fram­lagið og um leið krafa stjórn­mála­sam­taka til fram­laga sam­kvæmt fjár­lögum til­tek­ins árs. Samkvæmt því ber að tekju­færa fram­lög frá rík­is­sjóði á því reikn­ings­ári þegar þau eru greidd sam­kvæmt fjár­lögum.“

Nið­ur­staða rekstr­ar­reikn­ings árs­ins 2020 er sú sama sam­kvæmt báðum aðferðum en aðferð Pírata gerir það að verkum að eignir og eigið fé er 47,3 millj­ónum krónum hærra en ella væri.

Launakostnaður dróst verulega saman

Á árinu 2019 högn­uð­ust Píratar um 2,6 millj­­ónir króna. Tekjur flokks­ins, sem eru nær ein­vörð­ungu úr opin­berum sjóð­um, voru 86 millj­­ónir króna á því ári. Mest mun­aði um fram­lög úr rík­­is­­sjóði til flokks­ins sem námu tæpum 83 millj­­ónum króna.

Rekstr­­ar­­kostn­aður Pírata var 82 millj­­ónir króna. Þar af kost­aði rekstur aðal­­­skrif­­stofu 65 millj­­ónir króna og rekstur þing­­flokks Pírata 15,1 milljón króna. Það þýddi að 95,5 pró­­sent af tekjum Pírata fór í rekstr­­ar­­kostnað á árinu 2019.

[adspot]Flokk­ur­inn skar sig úr í stjórn­mála­flokka­flór­unni með því að eyða svona stórum hluta tekna sinna í rekst­ur. Hinir lögðu flestir tugi millj­óna króna til hliðar á árinu 2019. Sömu sögu er að segja um síð­asta ár, og kosn­inga­sjóðir þeirra fyrir þing­kosn­ing­arnar sem fóru fram í sept­em­ber í fyrra því digr­ir.

Skoð­un­ar­menn árs­reikn­ings Pírata 2019 vöktu athygli á því í áritun sinni að þeim þætti „„rekstur Pírata hafa verið heldur kostn­að­ar­samur eigi það mark­mið að nást að flokk­ur­inn eigi nægi­legan sjóð til þess að standa straum af kosn­inga­bar­áttu á kom­andi ári.“

Afkoma Pírata batn­aði mikið á árinu 2020 og hagn­að­ur­inn var, líkt og áður segir rétt um 25 millj­ónir króna. Rekstr­ar­kostn­að­ur­inn það ár var 71 pró­sent af tekjum og mun­aði þar mestu um að laun og launa­tengd gjöld dróg­ust saman um 14,5 millj­ónir króna milli ára. Alls dróst rekstr­ar­kostn­aður í heild saman um tæp­lega 20 millj­ónir króna.

Tekj­urnar juk­ust lít­illia milli ára og voru 87,6 millj­ónir króna. Alls koma 98 pró­sent tekna Pírata úr opin­berum sjóðum, þ.e. vegna fram­laga úr rík­is­sjóði og frá sveit­ar­fé­lögum þar sem flokk­ur­inn á kjörna full­trúa. Það sem upp á vantar voru styrkir frá ein­stak­lingum (142.167 krónur) og félags­gjöld (1.605.940 krónur). Félags­gjöldin fjór­föld­uð­ust milli ára.

Eigið fé flokka jókst um 750 milljónir á síðasta kjörtímabili

Fram­lög til stjórn­mála­flokka úr rík­is­sjóði hækk­­uðu veru­­lega í kjöl­far þess að til­­laga sex flokka sem sæti eiga á Alþingi um að hækka fram­lag rík­­­­­is­ins til stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­flokka á árinu 2018 um 127 pró­­­­­sent var sam­­­­­þykkt í fjár­­­­­lögum sem voru afgreidd áður en þingi var slitið í lok des­em­ber 2017. Fram­lög til stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­flokka áttu að vera 286 millj­­­­­ónir króna en urðu 648 millj­­­­­ónir króna á því ári.

Einu flokk­­­­arnir sem skrif­uðu sig ekki á til­­­­lög­una voru Píratar og Flokkur fólks­ins.

[links]Full­­­trúar allra flokka á Alþingi, þar á meðal sex for­­­­menn stjórn­­­­­­­mála­­­­flokka, lögðu svo sam­eig­in­­­­lega fram frum­varp til að breyta lögum um fjár­­­­­­­mál stjórn­­­­­­­mála­­­­flokka og fram­­­­bjóð­enda í lok árs 2018. Það var afgreitt sem lög fyrir þing­­­­lok þess árs.

Þeir níu stjórn­mála­flokkar sem fengu nægj­an­legt fylgi í síð­ustu þing­kosn­ingum til að fá úthlutað fjár­munum úr rík­is­sjóði fá sam­tals 728,2 millj­ónir króna til að skipta á milli sín í ár.

Um er að ræða þá átta flokka sem eiga full­trúa á þingi auk Sós­í­alista­flokks Íslands sem hlaut nægj­an­legt fylgi í síð­ustu kosn­ingum til að hljóta fram­lag.

Það er sama upp­hæð og flokk­arnir fengu sam­tals síð­ustu tvö ár. Raunar gera áætl­anir stjórn­valda ráð fyrir því að hún hald­ist óbreytt út árið 2024. Haldi það munu stjórn­mála­flokkar lands­ins alls hafa fengið 3.641 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði á fimm ára tíma­bil­i.

Eigið fé þeirra átta stjórn­mála­flokka sem hafa skilað inn gildum árs­reikn­ingum vegna árs­ins 2020 jókst um sam­tals 747,6 millj­ónir króna frá árs­lokum 2017 og fram að síð­ustu ára­mót­u­m.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár