Danir sú þjóð sem eyddi mestu á Íslandi í júlí

Erlend korta­velta í júlí var um þriðj­ungur af því sem hún var í sama mán­uði í fyrra, fór úr 31 millj­arði niður í 10 millj­arða. Korta­velta Dana hér­lendis í mán­uð­inum nærri tvö­fald­að­ist á milli ára.

Erlend korta­velta hér­lendis nam rúmum 10 millj­örðum króna í júlí, sem er tæpur þriðj­ungur af því sem hún var í sama mán­uði í fyrra en þá nam erlend korta­velta tæpum 31 millj­arði króna. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Rann­sókn­ar­setri versl­un­ar­innar. „Upphæðin er hærri en í mars, til og með júní síð­ast­liðnum en fyrir þann tíma þarf að fara aftur til jan­úar 2016 til finna lægri veltu erlendra korta í einum mán­uði,“ segir enn fremur í til­kynn­ing­unni.

Þar segir að minnstur hafi sam­drátt­ur­inn verið í flokki versl­unar en í júlí nam velta erlendra korta í versl­unum um 2,2 millj­örðum króna. Í und­ir­flokki versl­unar hafi verið mest velta í flokki dag­vöru og stór­mark­aða, alls 881 milljón króna eða rétt um helm­ingur af því sem veltan var í sama mán­uði í fyrra.

81 prósent samdráttur hjá ferðaskrifstofum og -skipuleggjendum

Á eftir verslun í veltu kom gisti­þjón­ustu en erlend korta­velta flokks­ins nam alls 2,1 millj­arði króna í júlí en erlend korta­velta er jafnan mest í flokki gisti­þjón­ustu að því er kemur fram í til­kynn­ingu Rann­sókn­ar­set­urs­ins. Erlend velta í veit­inga­þjón­ustu dróst saman um tvo þriðju á milli ára og nam 1,2 millj­örðum í júlí.

Erlend velta bíla­leiga nam 1,2 millj­örðum króna í júlí og dróst saman um 68 pró­sent milli ára. Sam­drátt­ur­inn var mjög mik­ill í flokknum ýmis ferða­þjón­usta sem inni­heldur meðal ann­ars ferða­skrif­stofur og ferða­skipu­leggj­endur. Í júlí nam erlend korta­velta í þeim flokki um 900 millj­ónum króna og dróst saman um 81 pró­sent á milli ára.

[adspot]

Danir eyddu mestu

Sú þjóð sem eyddi mestu hér á landi í júlí voru Danir en korta­velta þeirra var nærri tvö­falt meiri í júlí í ár heldur en í sama mán­uði í fyrra. Í júlí nam velta danskra greiðslu­korta 1,8 millj­örðum en í sama mán­uði í fyrra nam veltan tæpum 960 millj­ónum.

Á eftir Dönum í korta­veltu koma Þjóð­verjar, en korta­velta þeirra í júlí nam rúmum 1,7 millj­örðum í mán­uð­inum og dregst saman um 30 pró­sent frá sama mán­uði í fyrra. Bæði Þýska­land og Danmörk voru sett á lista yfir örugg lönd um miðjan júlí sem þýddi að far­þegar sem þaðan komu þurftu ekki að fara í skimun eða sótt­kví að því gefnu að far­þeg­arnir hefðu dvalist þar í að minnsta kosti hálfan mánuð fyrir ferða­lagið til Íslands. Á eftir Dönum og Þjóð­verjum í korta­veltu koma Bretar en korta­velta þeirra í júlí nam tæpum 1,1 millj­arða króna í mán­uð­inum og dróst saman um nærri 70 pró­sent frá sama mán­uði í fyrra.

Fleiri Danir í ár en í fyrra

Samkvæmt taln­ingu Ferða­mál­stofu og Isavia fyrir júlí áttu mun fleiri ferða­menn frá Danmörku og Þýska­landi leið um Kefla­vík­ur­flug­völl í mán­uð­inum heldur en ferða­menn frá öðrum löndum. Af alls tæp­lega 46 þús­und brott­förum erlendra far­þega voru tæp­lega 10 þús­und til­komnar vegna Dana og rúm­lega 9 þús­und vegna Þjóð­verja. Þar á eftir koma Pól­verjar og Sviss­lend­ingar með rúm­lega þrjú þús­und brott­farir á hvora þjóð fyrir sig.

Samkvæmt tölum Isavia og Ferða­mála­stofu dróg­ust brott­farar elrendra far­þega frá Kefla­vík­ur­flug­velli tölu­vert saman fyrir far­þega frá öllum löndum nema Danmörku. Brott­förum Dana fjölg­aði um tæp 33 pró­sent á milli ára en þær voru um 7.500 í sama mán­uði í fyrra. Til sam­an­burðar fækk­aði brott­förum Þjóð­verja um rúm­lega helm­ing milli ára.

Íslendingar slógu met í kortaveltu

Líkt og Kjarninn sagði frá fyrr í dag þá var júlí síð­ast­lið­inn met­mán­uður í korta­veltu Íslend­inga. Alls greiddu Íslend­ingar 81,2 millj­arða króna með greiðslu­kortum inn­an­lands í júlí og var heild­ar­vöxtur inn­lendra korta hér­lendis í júlí í ár 18,5 pró­sent milli ára. Það þýðir að neyslan hafi auk­ist um 12,7 millj­arða króna í júlí milli ára. Ástæða mik­illar neyslu Íslend­inga hér­lendis í mán­uð­inum er sögð vera að fáir lands­menn leit­uðu út fyrir land­stein­ana í sumar og neyslan því hald­ist hér heima.

[links]

„Íslend­ingar greiddu ríf­lega tvö­falt meira til gisti­staða í júlí síð­ast­liðnum sam­an­borið við júlí í fyrra, alls 2,2 millj­arða í júlí í ár sam­an­borið við 930 millj­ónir í fyrra. Í júní­mán­uði var inn­lend korta­velta gisti­staða einnig há eða um 1,3 millj­arðar, 75% meira en í júní í fyrra,“ segir í til­kynn­ingu frá Rann­sókn­ar­setri versl­un­ar­innar vegna upp­færðra talna um veltu inn­lendra korta.

Algjör óvissa í ferðaþjónustu

Á föstu­dag var minn­is­blað um efna­hags­leg sjón­ar­mið við ákvörðun um umfang sótt­varn­ar­ráð­staf­ana á landa­mærum birt. Þar er meðal ann­ars sagt að óvissa um horfur í ferða­þjón­ustu sé alger. Það sé í raun ógern­ingur að spá fyrir um komur ferða­manna það sem eftir lifir árs. Sé hins vegar gert ráð fyrir fyrir óbreyttum aðstæðum út árið og fjöldi ferða­manna fram­reikn­aður miðað við fjölda ferða­manna í júlí ásamt árs­tíða­sveiflu fæst sú nið­ur­staða að hingað gætu komið á bil­inu 165 til 200 þús­und ferða­menn það sem eftir lifir árs. „Reynist nauð­syn­legt að beita harð­ari sótt­varna­ráð­stöf­unum til að sporna gegn útbreiðslu veirunnar sem draga veru­lega úr eða koma í veg fyrir komur ferða­manna gæti þjóð­ar­búið orðið af 20-24 mö.kr til árs­loka vegna minni umsvifa í ferða­þjón­ustu.“

Í minn­is­blað­inu sagði að aug­ljós­asti ábati þess að létta á ferða­tak­mörk­unum væri tekjur í ferða­þjón­ustu. Þar sagði einnig að minni ferða­lög lands­manna erlendis hefðu þann kost að flytja hluta af erlendri neyslu lands­manna til lands­ins. Þá geti efna­hags­legir hags­munir af því að kom­ast hjá hörðum sótt­varna­að­gerðum hlaupið á hund­ruðum millj­arða sam­kvæmt minn­is­blað­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár