Landsmenn settu Íslandsmet í eyðslu í júlí – Kortavelta aldrei verið hærri

Íslend­ingar settu met í eyðslu í síð­asta mán­uði, þegar fjöl­margir þeirra ferð­uð­ust inn­an­lands og eyddu fjár­munum þar sem alla jafna hefur verið eytt erlendis. Verslun í mán­uð­inum var á pari við það sem ger­ist í des­em­ber.

Íslendingar hafa verið að ferðast innanlands í sumar. Og eyða umtalsverðum fjármunum.
Íslend­ingar hafa verið að ferð­ast inn­an­lands í sumar. Og eyða umtals­verðum fjár­munum. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Íslend­ingar greiddu 81,2 millj­örðum króna með greiðslu­kortum inn­an­lands í júlí­mán­uði. Þar af nam verslun 44,7 millj­örðum króna. Korta­velta lands­manna hefur aldrei verið jafn há og hún var í síð­asta mán­uði, þegar fjöl­margir lands­menn eyddu fjár­munum sem þeir að öllu jafna eyða erlendis, í inn­lenda neyslu.

Alls eyddu Íslend­ingar um 200 millj­örðum króna erlendis í fyrra. Heild­ar­vöxtur inn­lenda korta hér­lendis í júlí í ár 18,5 pró­sent meiri en í júlí­mán­uði 2019. Það þýðir neyslan hafi auk­ist um 12,7 millj­arða króna í júlí.

Þetta kemur fram í nýbirtum tölum Rann­sókn­ar­set­urs versl­un­ar­innar um korta­veltu Íslend­inga.

Í til­kynn­ingu frá setr­inu segir að Íslend­ingar hafi greitt ríf­lega tvö­falt meira til gisti­staða í júlí síð­ast­liðnum sam­an­borið við júlí í fyrra, alls 2,2 millj­arða í júlí í ár sam­an­borið við 930 millj­ónir í fyrra. „Í júní­mán­uði var inn­lend korta­velta gisti­staða einnig há eða um 1,3 millj­arðar, 75 pró­sent meira en í júní í fyrra. Innlend korta­velta veit­inga­staða jókst hóf­legar á milli ára, um 29 pró­sent og nam 6,8 millj­örðum í júlí sem leið. Þá jókst elds­neyt­is­sala til Íslend­inga um tæp 7 pró­sent sam­an­borið við júlí 2019.“

[adspot]Verslun jókst um 27,4 pró­sent milli ára og var, líkt og áður sagði 44,7 millj­arðar króna. Það er afar óvenju­legt að hún sé svo mikil í júlí og til sam­an­burðar má nefna að verslun í mán­uð­inum í ár var nán­ast jafn mikil og hún var í jóla­mán­uð­inum des­em­ber í fyrra, sem alla jafna er stærsti versl­un­ar­mán­uður árs­ins, en þá versl­uðu lands­menn fyrir 45 millj­arða króna inn­an­lands.

Rann­sókn­ar­setur versl­un­ar­innar segir að inn­lend korta­velta hafi auk­ist í öllu und­ir­flokkum versl­unar, en mest í net­verslun þar sem hún jókst um 83 pró­sent milli ára. Þegar sam­komu­tak­mark­anir voru sem mest íþyngj­andi í apríl, var hlut­fall net­versl­unar af heild­ar­verslun um níu pró­sent en lækk­aði næstu mán­uði og var 3,9 pró­sent í júlí. Það er þó hærra hlut­fall en net­verslun hafði í heild­ar­verslun áður en að heims­far­ald­ur­inn skall á.

Stór­mark­aðir og dag­vöru­versl­anir eru eftir sem áður stærsti und­ir­flokkur versl­unar og nam inn­lend korta­velta flokks­ins alls 18,4 millj­örðum króna í júlí.

Efnahagslegir hagsmunir af lokun metnir miklir

Í lok síð­ustu viku birtu stjórn­völd minn­is­blaðið um að efna­hags­legu áhrifin af því að herða tak­mark­anir á landa­mærum lands­ins væru lík­lega hag­kvæm­ari en af því að hafa þau meira opin, líkt og þau höfðu verið frá miðjum júní. Í minn­is­blað­inu var lagt mat á efna­hags­leg áhrif þess að opna landið og borið það saman við ábatann af því að hleypa ferða­mönnum inn.

[links]Í minn­is­blað­inu sagði að „efna­hags­legir hags­munir af því að kom­ast hjá hörðum sótt­varna­að­gerðum geta hlaupið á hund­ruðum millj­arða króna“.

Þar sagði að frá því að tak­mörk­unum var lyft á landa­mærum Íslands um miðjan júní hefðu um 70 þús­und ferða­menn komið til lands­ins auk um 45 þús­und íslenskra rík­is­borg­ara. Framlag hvers ferða­manns á hag­kerfið er metið á 100 til 120 þús­und krónur og því er áætlað að þeir ferða­menn sem hafa heim­sótt Ísland síð­ustu tvo mán­uði hafi lagt um átta millj­arða króna til efna­hags­lífs­ins á þeim tíma. Til sam­an­burðar gæti útbreiðsla far­ald­urs­ins dregið úr neyslu inn­an­lands um tíu millj­arða króna, líkt og gerð­ist þegar sett var á hart sam­komu­bann hér­lendis í vor.

Verðum af 20 til 24 milljörðum króna

Í sama minn­is­blaði var reynt að spá fyrir um hversu margir ferða­menn myndu koma til lands­ins ef ekki hefði verið tekin ákvörðun um að herða tak­mark­anir á landa­mærum, líkt og gert var í síð­ustu viku.

Þar segir að ógern­ingur sé að spá fyrir um slíkar komur með góðu móti þegar aðstæður geta breyst veru­lega milli daga. „Ef hins vegar gert er ráð fyrir óbreyttum aðstæðum út árið má nota komur ferða­manna í júlí ásamt árs­tíða­sveiflu í fjölda ferða­manna árið 2019 til að fram­reikna fjölda ferða­manna það sem eftir lifir árs. Slík æfing bendir til þess að fjöldi erlendra ferða­manna sem heim­sækja landið það sem eftir lifir árs gæti legið á bil­inu 165 til 200 þús­und. Reynist nauð­syn­legt að beita harð­ari sótt­varna­ráð­stöf­unum til að sporna gegn útbreiðslu veirunnar en draga veru­lega úr eða koma í veg fyrir komur ferða­manna gæti þjóð­ar­búið orðið af 20-24 mö.kr til árs­loka vegna minni umsvifa í ferða­þjón­ustu.“

Á móti hafi Íslend­ingar flutt til lands­ins neyslu sem ella hefði átt sér stað erlendis, en korta­velta Íslend­inga hér á landi í júní óx um 13 millj­arða króna sam­an­borið við sama mánuð í fyrra og um 12,7 millj­arða króna í júlí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár