Sjálfstæðisflokkur og Vinstri græn bæta við sig smávægilegu fylgi milli mánaða samkvæmt þjóðarpúlsi Gallup, en aukningin nær ekki heilu prósentustigi hjá hvorugum flokki. Báðir flokkarnir mælast undir kjörfylgi, en fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist 22,7 prósent á meðan að 11,4 prósent landsmanna segja að þeir myndu kjósa Vinstri græna ef kosið yrði í dag.
Framsóknarflokkurinn stendur í stað og mælist með 18 prósent stuðning. Frá þessu er greint á vef RÚV.
Samanlagt fylgi stjórnarflokkanna þriggja mælist því 52,1 prósent en þeir fengu samtals 54,3 prósent í kosningunum í september 2021.
[adspot]Þrír stjórnarandstöðuflokkar mælast með meira fylgi en þeir fengu í síðustu kosningum. Mest hafa Píratar bætt við sig, 3,3 prósentustigum, og þeir njóta nú stuðnings 11,9 prósent landsmanna. Fylgi þeirra dalar hins vegar um rúmt prósentustig milli mánaða. Samfylkingin stendur nánast í stað frá síðustu könnun Gallup, og mælist 11,2 prósent. Það er aðeins meira en sá flokkur fékk í fyrrahaust þegar kosningarnar skiluðu honum 9,9 prósent greiddra atkvæða. Viðreisn fékk 8,3 prósent í síðustu kosningum en mælist nú með 9,1 prósent fylgi. Þessir þrír flokkar mælast nú samanlagt með 32,2 prósent fylgi sem er 5,4 prósentustigum meira en þeir fengu upp úr kjörkössunum í fyrra.
Flokkur fólksins er rétt undir kjörfylgi um þessar mundir með 8,2 prósent stuðning en flokkur Ingu Sæland fékk 8,9 prósent atkvæða í síðustu kosningum.
Minnsti flokkurinn á þingi, Miðflokkurinn sem á tvo þingmenn, mælist með 3,7 prósent fylgi. Öll stjórnarandstaðan nýtur því samanlagt 44,1 prósent stuðnings landsmanna.
[adspot]Sósíalistaflokkurinn, sem náði ekki inn í fyrrahaust, mælist auk þess með 3,6 prósent fylgi.
Stuðningur við ríkisstjórnina mælist 61 prósent og eykst um þrjú prósentustig milli mánaða. Það sem af er kjörtímabili hefur stuðningur við ríkisstjórnina mest mælst 62,2 prósent, í fyrstu könnun Gallup sem gerð var eftir kosningar.
Könnunin var gerð á landsvísu dagana 1. til 31. mars 2022. Heildarúrtaksstærð var 10.941 og þátttökuhlutfall var 49,6 prósent. Vikmök við fylgi flokka eru 0,5 til 1,2 prósent.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.


















































Athugasemdir