Lyf í rannsókn sem ræðst að rótum Alzheimer

Um tvö þús­und manns taka þátt í rann­sókn á nýju lyfi gegn Alzheimer, og eru um 200 þeirra á Íslandi.

Tvö hund­ruð Íslend­ingar á aldr­inum 60 til 75 ára og með arf­gerð sem veldur auknum líkum á Alzheimer munu á næstu fimm árum taka þátt í einni flókn­ustu lyfja­rann­sókn sem fram­kvæmd hefur verið hér á landi.

Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag, en lyf­inu er ætla að hindra efna­ferla sem marka upp­hafið að þróun útfell­inga í heil­anum. Jón G. Snædal, yfir­læknir öldr­un­ar­lækn­inga á Land­spít­ala og ábyrgð­ar­maður rann­sókn­ar­innar hér á landi, segir í við­tali við Frétta­blaðið að menn vilji sjá að lyfið komi í veg fyrir sjúk­dóm­inn, en til þessa hafa um 98 pró­sent rann­sókna á lyfjum sem eiga að vinna gegn Alzheimer, ekki skilað árangri.

Alls taka 2.000 manns þátt í rann­sókn­inni í öllum byggðum heims- álfum. Ísland er stærsta rann­sókn­ar­setrið með 10 pró­sent þátt­tak­enda

Lyfj­arisarnir Novartis og Amgen sam­ein­uð­ust um þróun lyfs­ins eftir að Íslensk erfða­grein­ing stað­festi árið 2012 lyfja­mörk sem sýndu fram á mögu­leika þess að hefta eða stöðva ferlið með lyfja­gjöf. Jón segir að rann­sóknin muni leiða í ljós hvort vís­inda­sam­fé­lagið sé á réttri braut í bar­átt­unni við Alzheimer.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár