Þrjú ný innanlandssmit og enginn lengur á spítala

Þrír ein­stak­lingar greindust með COVID-19 inn­an­lands í gær. Einn var þegar í sótt­kví, en tveir ekki. Yfir þús­und manns eru nú í sótt­kví.

Yfir þúsund manns eru nú í sóttkví.
Yfir þús­und manns eru nú í sótt­kví. Mynd: EPA

Þrír ein­stak­lingar greindust með COVID-19 inn­an­lands í gær, en ein­ungis einn þeirra var í sótt­kví þegar sýni úr honum var tekið. Enginn er lengur inniliggj­andi á spít­ala vegna sjúk­dóms­ins, en fjöldi fólks í sótt­kví rís nokkuð á milli daga og eru nú 1.072 manns í sótt­kví. Í gær voru 990 manns í sótt­kví.

Fjórtán daga nýgengi inn­an­lands­smita á hverja 100.000 íbúa er nú 18,8, en 113 manns eru í ein­angrun með virkt smit hér á landi. Sjötíu og þrjú þeirra smit­uð­ust inn­an­lands, en afgang­ur­inn greind­ist með veiruna í landamæra­skimun. Þetta kemur fram á covid.is.

Jákvæðu sýnin þrjú greindust öll á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­ala, en þar voru 600 sýni greind. Til við­bótar voru 167 sýni greind hjá Íslenskri erfða­grein­ingu og 1.682 sýni í tengslum við landamæra­skimun.

Sex jákvæð sýni greindust á landa­mær­unum. Einn var með virkt smit, en nið­ur­stöðu úr mótefna­mæl­ingu er beðið hjá hinum fyrr.

Í fyrra­dag greindust þrjú sýni jákvæð á landa­mær­unum og reynd­ust þeirra vera með virkt smit en einn með mótefni fyrir kór­ónu­veirunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár