Ríkisstjórnin stöðvar aðgerðir flugumferðastjóra

Rík­is­stjórnin ætlar að setja lög á yfir­vinnu­bann Félags íslenskra flug­um­ferða­stjóra. Þetta stað­festir Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, aðstoð­ar­maður Ólafar Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra, við Kjarnann.

Frumvarp til laga um kjara­mál flug­um­ferða­stjóra var rætt á fundi rík­is­stjórn­ar­innar í morgun, en það var eina málið á dag­skrá rík­is­stjórn­ar­innar. Ef lög verða sam­þykkt þurfa flug­um­ferð­ar­stjórar að hætta öllum aðgerðum sínum strax, það er bæði yfir­vinnu- og þjálf­un­ar­banni.

Verið er að ræða málið við stjórn­ar­and­stöð­una núna. Mögulegt er að þingið verði kallað saman strax, en þar sem nefndir Alþingis eru enn að störfum ætti það ekki að vera flókið.

RÚV greinir svo frá því að sam­kvæmt frum­varp­inu sé deilu­að­ilum gef­inn frestur til 24. júní til að ná samn­ingum, en tak­ist það ekki verði skip­aður gerð­ar­dómur til að úrskurða um laun flug­um­ferð­ar­stjóra. 

Yfir­vinnu­bannið hefur staðið yfir frá því í byrjun apríl, og það hefur haft þær afleið­ingar að fjórum sinnum hefur næt­ur­um­ferð um Kefla­vík­ur­flug­völl legið niðri vegna veik­inda vakt­haf­andi flug­um­ferð­ar­stjóra. ISAVIA áætlar að um þrjú þús­und flug hafi þurft að breyta áætl­unum sínum vegna kjara­deil­unnar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár