Arndís Ósk leiðir verkefnastofu Borgarlínu

Arndís Ósk Ólafs­dóttir Arnalds hefur verið ráðin yfir­maður verk­efna­stofu Borg­ar­línu hjá Vega­gerð­inni, en hún tekur við starf­inu af Hrafn­keli Á. Proppé um ára­mót. Arndís hefur starfað í fjórtán ár hjá OR og Veitum.

Arndís Ósk Ólafsdóttir Arnalds.
Arndís Ósk Ólafs­dóttir Arnalds. Mynd: Af vef Borgarlínu

Arndís Ósk Ólafs­dóttir Arnalds hefur verið ráðin yfir­maður verk­efna­stofu Borg­ar­línu, sem heyrir undir Vega­gerð­ina. Frá þessu er greint á vef Borg­ar­línu, en þar segir að Arndís muni hafa yfir­um­sjón með öllum verk­efnum Borg­ar­línu hjá Vega­gerð­inni.

Arndís hefur und­an­farin fjórtán ár starfað hjá OR og Veitum, nú síð­ast sem for­stöðu­maður vatns- og frá­veitu, auk þess að sitja í fram­kvæmda­stjórn Veitna.

Arndís er í til­kynn­ingu Borg­ar­línu sögð hafa mikla reynslu af verk­efna­stjórn­sýslu, áætl­ana­gerð og und­ir­bún­ingi umfangs­mik­illa opin­berra fram­kvæmda og einnig „mikla og far­sæla reynslu af því að leiða opin­ber inn­viða­verka verk með ólíkum hag­að­ilum.“

Hrafn­kell Á. Proppé gegnir starf­inu áfram til ára­móta, en hann greindi frá því í byrjun sept­em­ber að hann hygð­ist kveðja borg­ar­línu­verk­efnið eftir að hafa fylgt því allt frá árinu 2013, fyrst sem starfs­maður Samtaka sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og síðar sem yfir­maður á verk­efna­stofu Borg­ar­línu hjá Vega­gerð­inni. Hann hefur ráðið sig til starfa hjá Skipu­lags­stofnun.

Í til­kynn­ingu Borg­ar­línu segir að á verk­efna­stof­unni starfi sér­fræð­ingar á sviði sam­göngu­mála og gatna- og stíga­hönn­unar og að hóp­ur­inn sam­an­standi af starfs­mönnum Vega­gerð­ar­innar, sveit­ar­fé­laga og inn­lendum og erlendum stoð­ráð­gjöfum Borg­ar­línu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár