Víðir snortinn og sendi fingurkoss

Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn komst við á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Hann á afmæli og fékk senda afmælisköku frá fram­línu­starfs­mönnum og íbúum hjúkr­un­ar­heim­ila. „Maður fær bara tár í augun,“ sagði afmæl­is­barnið, fullt þakk­lætis.

Víðir sendir fólki heima í stofu fingurkoss.
Víðir sendir fólki heima í stofu fing­ur­koss. Mynd: Skjáskot RÚV

Upp­lýs­inga­fundur almanna­varna í dag var á óvenju­lega léttum nótum. Tilefnið var afmæli Víðis Reyn­is­sonar yfir­lög­reglu­þjóns hjá rík­is­lög­reglu­stjóra, sem stjórnað hefur fund­unum frá því þeir hófust eða í yfir fimm­tíu skipti.

„Það er síð­asti vetr­ar­dagur í dag og það var svo gott að sjá sól­ina áðan,“ sagði Anna Birna Jens­dóttir, for­maður sam­taka fyr­ir­tækja í heil­brigð­is­þjón­ustu, þegar hún hafði farið yfir fyr­ir­hug­aðar til­slak­anir á heim­sókn­ar­banni á hjúkr­un­ar­heim­ilum.

[adspot]

„En það er líka gleði­dagur hérna hjá einum sem á afmæli. Það er hann Víðir,“ sagði hún og tók svo fram undan púlt­inu græna köku og kort. „Þetta er frá öllum fram­línu­starfs­mönn­unum sem starfa á öllum þessum hjúkr­un­ar­heim­ilum lands­ins. Þeir telja marga tugi. Og frá íbú­unum sem horfa á sjón­varps­stjörn­urnar hérna, þrí­eykið, alla daga. Það eru allir límdir við sjón­varpið. Við ætlum að þakka fyrir okkur. Vonandi má bjóða þér að taka á móti þessu og að þú getir notið.“

Víðir: Takk (ræskir sig). Takk kær­lega fyrir. Maður fær nú bara tár í augun!

Eftir að koma kök­unni og kort­inu fyrir á borð­inu heldur hann áfram: „Ég vil nota tæki­færið og þakka ykkur fyrir og hrósa þessum vinnu­hópi [um aðgerðir á hjúkr­un­ar­heim­ilum]. Þessi vinna við að finna þessa leið, að geta opnað fyrir heim­sóknir. Þó að okkur finn­ist þetta vera pínu­lítið skref þá er þetta í ljósi reynsl­unnar risa­skref í þessum málum. Við höfum séð hvað hefur gerst á hjúkr­un­ar­heim­ilum erlendis og harm­sög­urnar eru margar. Og ég vil þakka fyrir þessa miklu vinnu, miklu sér­fræði­þekk­ingu, sem hefur orðið þess vald­andi að við getum gert líf þessa fólks örlítið bæri­legra núna. Takk kær­lega fyrir það.“

Hann snýr sér svo að næsta máli á dag­skrá sem eru til­kynn­ingar frá land­lækni sem féll sótt­varna­lækni í skaut að lesa.

Víðir: Eitt af því sem okkur hefur verið bent á í þess­ari vinnu okkar er að við séum eitt­hvað aðeins að þykkna. Að við séum búin að borða of mikið og kannski er kakan ekki góð að því leyt­inu til. En nú getum við kannski farið að taka leik­fimi.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir tekur svo við og fer yfir til­kynn­ing­arnar sem snér­ust m.a. um að í morgun hafi haf­ist heima­leik­fimi á RÚV.

Hann kom á fram­færi fleiri til­kynn­ingum, til dæmis vegna fyr­ir­spurna um COVID-19 sjóð. Sagði hann kon­urnar sem standa að átak­inu Á allra vörum hafa brugð­ist við þessum fyr­ir­spurnum og að í dag yrði opn­aður vefur sem nefn­ist vara­sjóður. Hann er hugs­aður fyrst og fremst til að koma til móts við ýmis vel­ferð­ar­sam­tök sem mikið mæðir nú á.

Þórólfur: Þarna er hægt að leggja til það sem sum okkar hafa sparað. Ég hef til dæmis ekki farið í klipp­ingu mjög lengi sem ég held að eigi við um mörg okkar (skelli­hlær). Við vorum einmitt að tala um þetta áðan, við Víðir.

Eftir loka­spurn­ingu frá blaða­mönnum segir Víðir að venju „það er komið að lokum hjá okkur í dag“ og fer yfir nokkur atriði. Hann minnir á að á morgun sé sum­ar­dag­ur­inn fyrsti og að á laug­ar­dag sé stóri plokk­dag­ur­inn. Hann hvetur alla til að taka þátt en gæta að tveggja metra regl­unni og hópa­stærðum.

Svo verður hann per­sónu­legur og það má heyra að hann er djúpt snort­inn. „Mig langar að þakka fyrir mig,“ segir hann, horfir beint í mynda­vél­ina og sendir fing­ur­koss á áhorf­endur heima í stofu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár