10 staðreyndir um inn- og útflutning á vörum til og frá Íslandi

Vöru­við­skipti voru óhag­stæð um 176,5 millj­arða árið 2017. Kjarninn tók saman nokkrar stað­reyndir um inn- og útflutn­ing Íslend­inga.

1.

Vöru­skipta­jöfn­uður er mis­mun­ur­inn á and­virði útfluttra og inn­fluttra vara til og frá til­teknu landi á ákveðnu tíma­bili. Sé mis­mun­ir­inn jákvæður er talað um vöru­skipta­af­gang í kerf­inu en sé hann nei­kvæður er talað um vöru­skiptaa­halla. Vert er að taka fram að vörur eru ein­ungis hluti af inn- og útflutn­ingi Íslands. Héðan er líka flutt út, og inn, þjón­usta, til dæmis hin mik­il­væga ferða­þjón­usta. Saman mynda þessir tveir þættir við­skipta­jöfnuð. Hann hefur verið jákvæður í 16. árs­fjórð­unga í röð og var síð­ast nei­kvæður í byrjun árs 2014.

2.

Á árinu 2017 voru fluttar út vörur fyrir 519,6 millj­arða króna og inn fyrir 696,1 millj­arð króna fob sem er skamm­stöfun fyrir Free On Board eða frítt um borð. Það þýðir að ábyrgð selj­anda lýkur eftir að vör­unum hefur verið hlaðið um borð í skipi og ábyrgð kaup­anda tekur við.

3.

Vöru­við­skiptin árið 2017 voru nei­kvæð um 176,5 millj­arða króna og um 108,2 millj­arða króna árið áður á gengi hvors árs. Vöru­við­skipta­hall­inn, sem sýnir virð­is­mun á þeim vörum sem Íslend­ingar fluttu inn og út á árinu 2017, var því 68,3 millj­örðum króna meiri en árið áður. Án skipa og flug­véla nam vöru­við­skipta­hall­inn 2017 161,7 millj­örðum króna sam­an­borið við 80 millj­arða króna halla árið 2016. Árið 2017 var verð­mæti vöru­út­flutn­ings 17,8 millj­örðum króna lægra sam­an­borið við árið 2016, eða 3,3 pró­sent á gengi hvors árs.

4.

Iðn­að­ar­vörur voru 53,9 pró­sent alls útflutn­ings árið 2017 og var verð­mæti þeirra 3,5 pró­sent hærra en á sama tíma árið áður. Útflutn­ingur á áli og álaf­urðum átti stærstu hlut­deild í útflutn­ingi á iðn­að­ar­vörum árið 2017 eða 39 pró­sent af heild­ar­út­flutn­ingi.

5.

Sjáv­ar­af­urðir voru 37,9 pró­sent alls vöru­út­flutn­ings og var verð­mæti þeirra 15,2 pró­sent lægra en á sama tíma árið áður. Lækkun var í nær öllum und­ir­liðum sjáv­ar­af­urða. Stærstu hlut­deild í útflutn­ingi sjáv­ar­af­urða árið 2017 áttu fryst flök og ferskur fiskur. Stærstu við­skipta­lönd í vöru­út­flutn­ingi voru Holland, Spánn og Bretland en 73,4 pró­sent alls útflutn­ings fór til ríkja ESB.

6.

Árið 2017 var verð­mæti vöru­inn­flutn­ings 50,5 millj­örðum króna hærra en árið 2016, eða 7,8 pró­sent á gengi hvors árs. Mestu mun­aði um fjár­fest­ingu í flutn­inga­tækjum, þá aðal­lega skipum og fólks­bílum, inn­flutn­ingi á unnum hrá- og rekstr­ar­vörum ásamt inn­flutn­ingi á elds­neyti og fjár­fest­inga­vörum. Stærstu hlut­deild í inn­flutn­ingi áttu hrá- og rekstr­ar­vörur, fjár­fest­ing­ar­vörur og flutn­inga­tæki. Stærstu við­skipta­lönd í vöru­inn­flutn­ingi voru Þýska­land og Noregur en 52,5 pró­sent alls inn­flutn­ings kom frá ríkjum ESB.

7.

Aðflutn­ings­gjöld og útflutn­ings­gjöld eru sam­heiti yfir tolla og aðra skatta og gjöld sem greiða ber við toll­með­ferð vöru við inn- eða útflutn­ing. Útflutn­ings­gjöld hafa ekki verið lögð á frá árinu 1990. Aðflutn­ings­gjöldin eru meðal ann­ars tollur, vöru­gjöld, eft­ir­lits­gjald vegna inn­flutn­ings plantna, áfeng­is­gjald, tóbaks­gjald, virð­is­auka­skattur, úrvinnslu­gjald og eft­ir­lits­gjald vegna raf­fanga.

8.

Tollar eru lagðir á vörur sem fluttar eru inn á toll­svæði rík­is­ins. Allir sem flytja inn vörur eru toll­skyldir og ber að greiða toll við inn­flutn­ing­inn nema vör­urnar beri 0 pró­sent toll eða séu með ein­hverjum hætti und­an­þegnar tolli. Til­teknir aðilar eru þó und­an­þegnir toll­skyldu að hluta eða öllu leyti sam­kvæmt ákvæðum tolla­laga. Svo­kall­aðir toll­kvótar eru til­tekið magn vöru sem flutt er inn á lægri tollum en sam­kvæmt toll­skrá. Toll­kvótum er úthlutað að und­an­gengnu umsókn­ar­ferli.

9.

Ferða­menn og far­menn njóta sér­stakra fríð­inda við inn­flutn­ing vöru sem þó hafa til­tekin fjár­hæð­ar­mörk. Þá eru ýmsar vörur und­an­þegnar tollum af mál­efna­legum ástæðum, t.d. búslóðir manna sem flytja hingað til lands, erlendi heið­urs­merki og verð­laun, vörur sem eru end­ur­sendar til lands­ins, end­ur­sendar tómar umbúðir, gjafir undir til­teknum tak­mörkum og send­ingar vegna mark­aðs­setn­ingar og vöru­þró­unar. Erlendir sendi­menn hér á landi eru und­an­þegnir tollum.

10.

Almenn vöru­gjöld voru lögð af í upp­hafi árs 2015. Hins vegar er enn lagt vöru­gjald á öku­tæki, elds­neyti og fleiri vörur. Vöru­gjald er greitt af skrán­ing­ar­skyldum öku­tækjum sem flutt eru til lands­ins eða fram­leidd hér á landi. Gjaldið er að meg­in­reglu lagt á öku­tæki í tíu gjald­þrepum miðað við skráða losun koltví­sýr­ings mælt í kíló­grömmum á hvern ekinn kíló­metra, frá 0 pró­sent ef los­unin nemur 0 til 80 grömmum á kíló­metra upp í 65 pró­sent ef los­unin nemur yfir 250 grömmum á kíló­metra. Viða­miklar und­an­þágur eru þó gerðar frá meg­in­regl­unni, þannig eru til­tekin öku­tæki alfarið und­an­þegin gjald­inu, önnur bera fast 13 pró­sent eða 30 pró­sent gjald og um enn önnur gilda sér­stakar reglur. Tvenns­konar vöru­gjöld eru lögð á bensín, það er almennt vöru­gjald og bens­ín­gjald. Gjöldin nema fastri krónu­töku á hvern líta bens­íns en inn­flytj­endur og fram­leið­endur bens­íns eru gjald­skyldir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár