Formleg rannsókn hafin á samkomunni í Ásmundarsal

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur hafið form­lega rann­sókn á hugs­an­legu broti á sótt­varna­lögum í Ásmund­ar­sal á Þor­láks­messu. Meðal gesta í hús­inu þegar lög­reglan kom á vett­vang var Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra.

Bjarni Bendiktsson, fjármálaráðherra.
Bjarni Bendikts­son, fjár­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Formleg rann­sókn lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er hafin á mögu­legu broti á sótt­varna­lögum í Ásmund­ar­sal á Þor­láks­messu. Að því er fram kom í dag­bók lög­regl­unnar að morgni aðfanga­dags voru milli 40-50 manns í hús­inu er lög­reglu bar að garði á ell­efta tím­anum á Þor­láks­messu. Meðal gesta var Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra.

[adspot]

Í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni í dag segir að rann­sókn máls­ins felist m.a. í því að yfir­fara upp­tökur úr búk­mynda­vélum lög­reglu­manna með til­liti til brota á sótt­vörnum.

[links]Bjarni hefur sagt í við­tölum eftir að málið komst í hámæli að hann telji ekki til­efni til að segja af sér ráð­herra­emb­ætti vegna máls­ins. Hann sagði í við­tali við Kastljós í vik­unni að hann hefði verið með grímu þegar hann mætti í húsið en hefði ekki haft hana á sér allan tím­ann.

Þá sagð­ist hann hafa upp­lifað að dvöl hans í hús­inu hafi ekki staðið yfir nema í fimmtán mín­útur en fjöl­miðlar hafa greint frá því að frá því að annar gestur til­kynnti um meint brot á sótt­varna­lögum í hús­inu og þar til lög­reglan mætti á vett­vang hafi liðið um 40-50 mín­útur. Bjarni hefði verið kom­inn þegar til­kynn­ingin barst og hann hefði enn verið í hús­inu er lög­reglan mætti og bað fólk að yfir­gefa sam­kvæmið.

Fleiri atriði eru umdeild. Í dag­bók lög­reglu kom fram að stað­ur­inn hefði átt að vera lok­aður sam­kvæmt flokkun rekstr­ar­ins. Eigendur halda hinu gagn­stæða fram. Þá hafa þeir einnig sagt að miðað við stærð og rekstur hefðu allt að 50 manns mátt vera saman komin þar en ekki tíu.

Í dag­bók lög­regl­unnar sagði að fáir hefðu verið með grímur, ölvun hefði verið tölu­verð og að fólk hefði jafn­vel faðm­ast og kysst í kveðju­skyni eftir að sam­koman var leyst upp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár