Af hverju er íslenska knattspyrnulandsliðið orðið eitt það besta í öllum heiminum?

Íslend­ingar eru margir hverjir sann­færðir um að við séum best í heimi, í öllu, miðað við höfða­tölu. Þessi sann­fær­ing og full­yrð­ingar sem byggja á henni eru and­lag gríð­ar­legs magns brand­ara sem við segjum um okkur sjálf til að rétt­læta eða verja mik­il­mennsku­brjál­æðið sem á stundum hel­tekur okkur á flestum sviðum sem við reynum fyrir okkur á. Drambið og brjál­æðið varð okkur að falli í banka­leiknum sem við lékum mörg án þess að hafa til þess nægi­lega kunn­áttu.

Á ýmsum öðrum sviðum hefur þetta „Davíð gegn Golíat“-við­mót til lífs­ins fleytt okkur miklu lengra en efni standa til og án þess að hafa þær nei­kvæðu bylm­ings­afleið­ingar sem banka­hrunið veitti okkur. Þvert á móti eru ­afleið­ing­arnar nær ein­vörð­ungu jákvæðar. Eitt þess­ara sviða er knatt­spyrnu­völl­ur­inn.

Konurnar komnar, karlarnir alveg að komast


Íslenska karla­lands­liðið hefur aldrei kom­ist á loka­mót í knatt­spyrnu. Á haust­mán­uðum árs­ins 2010 upp­hófst hins vegar til­raun til að ná því mark­miði með því að U21-lands­liðið okkar tryggði sér sæti í úrslita­keppni Evr­ópu­móts UEFA í Danmörku sum­arið eftir með tveimur 2-1 sigrum á liði Skota (5,5 millj­ónir íbúa).

Þótt lið­inu hafi ekki gengið neitt sér­stak­lega vel, samt unnið einn leik, og setið eftir í riðl­inum í þess­ari fyrstu loka­keppni, þá var ljóst að ein­hver grunnur hafði verið lagður. Að minnsta kosti sjö lyk­il­menn í lands­liði dags­ins í dag voru hluti af þeim hóp sem náði þessum árangri.

Iceland
Iceland

Íslenska kvenna­lands­liðið var auð­vitað þegar búið að ná því að kom­ast á loka­mót. Árið 2009 lék það í loka­keppni Evr­ópu­móts­ins, en komst ekki upp úr sínum riðli. Sama ár urðu fjöl­margir leik­menn liðs­ins atvinnu­menn í knatt­spyrnu, að mestu á Norð­ur­lönd­unum. Fjórum árum síðar voru þær mættar aftur á sama loka­mót og náðu í átta liða úrslit

Unnum 77 milljóna þjóð


Íslend­ingar eru 330,610 tals­ins og í 184. sæti yfir fjöl­menn­ustu ríki heims. Hér æfa um 20 þús­und manns knatt­spyrnu, sam­kvæmt tölum frá Knatt­spyrnu­sam­bandi Íslands.

Samt vorum við 45 mín­útum og einu marki frá því að tryggja okkur far­seðil á heims­meist­ara­mótið í Brasilíu sem fór fram síð­asta sumar. Hefðu Króatar ein­fald­lega ekki verið svona ógeðs­lega góðir í fót­bolta (ég er að tala við þig, Luka Modric) þá væru Íslend­ingar nú skráðir í sögu­bæk­urnar sem fámenn­asta þjóð sem spilað hefur á loka­móti í sögu heims­ins.

Croatia v Iceland - FIFA 2014 World Cup Qualifier: Play-off Second Leg
Croatia v Iceland - FIFA 2014 World Cup Qualifier: Play-off Second Leg

Í fyrra­haust hóf karla­lands­liðið okkar síðan veg­ferð sína í átt að loka­keppni Evr­ópu­móts­ins í knatt­spyrnu með því að kjöl­draga Tyrkland á Laug­ar­dals­velli 3-0. Tyrkir eru 77 millj­ónir alls. Skráðir knatt­spyrnu­menn í þessu þriðja fjöl­menn­asta ríki Evrópu (á eftir Rúss­landi og Þýska­landi) eru 466 þús­und tals­ins, og eru leik­menn yngri flokka þá ekki taldir með. Skömmu síðar unnu Íslend­ingar einn sinn frækn­asta sigur í sög­unni, þegar brons­verð­launa­haf­arnir frá síð­asta heims­meist­ara­móti, Hol­lend­ingar, voru kjöl­dregnir 2-0 í Laug­ar­dalnum. Um 1,2 millj­ónir manns æfa knatt­spyrnu í Hollandi.

Þessi sigur var einn sá frækn­asti, því hann var topp­aður á fimmtu­dag. Þá unnu Íslend­ingar Hol­lend­inga í Amster­dam í stór­kost­legum knatt­spyrnu­leik þar sem um eitt pró­sent þjóð­ar­innar yfir­gnæfði yfir 40 þús­und Hol­lend­inga í stúkunni í 90 mín­útur. Hol­lenska liðið hafði aldrei áður tapað á heima­velli í und­ankeppni Evr­ópu­móts­ins og tap­aði síð­ast heima­leik í und­ankeppni fyrir fimmtán árum síðan, þá fyrir Portúgal í und­ankeppni heims­meist­ar­móts. Auk þess varð Ísland fyrsta lands­liðið til að vinna Hol­lend­inga í báðum leikj­unum í und­ankeppni stór­móts.

Og nú er íslenska liðið í mesta lagi einu stigi frá því að vera á meðal þeirra liða sem munu leika á Evr­ópu­mót­inu í Frakk­landi næsta sumar.

Kýlum upp fyrir okkur


Íslenska liðið er nú í 23. sæti á heims­lista alþjóða­knatt­spyrnu­sam­bands­ins, FIFA, og hefur aldrei setið ofar. Íslenska liðið hefur aldrei verið ofar á list­anum en er þó ekki lengur besta lið Norð­ur­landa, þar sem Danir skjót­ast upp fyrir íslenska liðið í 22. sætið. Íslend­ingar geta þó huggað sig við að karla­lands­lið þjóð­ar­innar er sem stendur ofar á heims­list­anum en fyrrum heims- og Evr­ópu­meist­arar Frakka. Það hefur aldrei gerst áður.

Það ríki sem er ofar en Ísland á þeim lista sem er næst okkur í íbúa­fjölda er Úrúgvæ, með 3,4 millj­ónir íbúa, sem situr í 18. sæt­inu. Landslið þeirra er auð­vitað frá­bært- þeir eru ríkj­andi Suður-Amer­íku­meist­arar- en Úrúg­væjar eru líka tíu sinnum fleiri en við. Í sæt­inu fyrir ofan okkur sitja Danir (5,7 millj­ónir íbúa) og fyrir neðan okkur eru Frakkar (66,9 millj­ónir íbúa). Frakkar eru 203 sinnum fleiri en Íslend­ingar.

Íslenska kvenna­lands­liðið er í 18. sæti á lista FIFA yfir bestu knatt­spyrnu­lands­lið heims í kvenna­flokki. Nágrannar okkar í Noregi (5,2 milljón íbúa) eru fámenn­asta þjóðin fyrir ofan okkur. Fjórum sætum fyrir neðan ­stelp­urnar okkar er lands­lið Rúss­lands (146,6 milljón íbúa), fjöl­menn­asta ríki Evrópu.

Og ef þetta er ekki nóg þá er U21-karla­liðið, næsta kyn­slóð sem mun skila sér inn í þegar ungt og reynslu­mikið A-lands­lið, búið að vinna fyrstu tvo leiki sína í þeirri und­ankeppni sem nú stendur yfir. Í lið­inni viku unnu þeir enga aðra en Frakka 3-2.

Knattspyrnuhallir og gæðaþjálfun


Hvernig getur þjóð sem er sú fimmta fámenn­asta í Evrópu (fyrir ofan Færeyjar, Liechtenstein, Andorra og San ­Marínó) náð þessum árangri? Hvernig getur svona þjóð átt á ­átt­unda tug atvinnu­manna í fót­bolta, sem spila í ­sterk­ustu deildum heims á borð við þá ensku (64,8 milljón íbúa í Stóra-Bret­landi), ítölsku (60,8 millj­ónir íbúa), spænsku (46,5 millj­ónir íbúa), hol­lensku (16,9 millj­ónir íbúa) og rúss­nesku (ennþá 146,6 milljón íbúa) fyrir utan alla þá tugi sem spila í ­Skand­in­avíu. Íslensku leik­menn­irnir eru líka að ná ótrú­legum árangri. Sumir þeirra eru meira að segja marka­hæstu leik­menn þeirra deilda sem þeir spila í.

FBL-EUR-C3-STJARNAN-INTER
FBL-EUR-C3-STJARNAN-INTER

Sigurður Ragnar Eyj­ólfs­son, fyrrum lands­liðs­þjálf­ari kvenna í knatt­spyrnu og fræðslu­stjóri KSÍ um margra ára skeið, skrif­aði grein á heima­síðu sína,www.siggiraggi.is, í lok sept­em­ber 2012 sem útskýrir ástæð­urnar nokkuð vel. Þar fer hann yfir breyt­ingu á aðstöðu á Íslandi á ein­ungis einum ára­tug. Sigurður Ragnar segir að yfir tíu knatt­spyrnu­hallir hafi verið byggðar (þeim hefur fjölgað síðan og mun fjölga enn frekar á næstu árum), yfir 20 gervi­gras­vellir og 130 sparkvellir. Hann bendir líka á að með­al­knatt­spyrnu­þjálf­ari á Íslandi er yngri, með meiri reynslu af knatt­spyrnu­iðkun og miklu mennt­aðri í þjálf­un­ar­fræðum en kollegar hans erlendis, sem eru venju­lega for­eldrar iðk­enda sem þjálfa í sjálf­boða­vinnu. „Ef barnið þitt ætlar að læra að spila á píanó er það auð­vitað lík­legra til að ná betri árangri ef það fengi kennslu hjá fag­manni frekar en for­eldri sem oft kann ekki nógu vel til verka. Sama í fót­bolta,“ segir Sigurður Ragnar.

Í grein­inni fer hann auk þess yfir það að íslensk börn og ung­lingar æfa miklu meira en jafn­aldrar þeirra í mörgun löndum. Afreks­þjálfun, við­bót­ar­þjálfun fyrir þá sem eru lík­legir til að skara fram úr, er einnig mun meiri hér­lendis.

Að vaða áfram á sér bjartar hliðar


Að mörgu leyti er sú mikla og hraða upp­bygg­ing sem hefur átt sér stað í íslenskri knatt­spyrnu því afleið­ing af góð­ær­inu. Á rúmum ára­tug hafa íslenskir knatt­spyrnu­menn farið frá því að æfa hluta af ári á vondum mal­ar­völlum í aftaka­veðrum yfir í að æfa í sér­hönn­uðum knatt­spyrnu­húsum með gervi­gras­velli sam­kvæmt nýj­ustu tísku.

Aðstaðan sem tók stakka­skiptum, sér­stak­lega knatt­spyrnu­húsin, er að mestu byggð fyrir erlent láns­fjár­magn, þó sum hús­anna hafi verið byggð fyrir eigið fé sem streymdi til sveit­ar­fé­laga eða einka­verk­taka. Þegar erfið­leikar dundu yfir var auð­vitað ekki hægt að slíta þessi hús upp og leggja þau í skulda­hít­ina. Þau eru því orðin fastur hluti af innviðum á Íslandi, sem gera íbú­unum kleift að stunda knatt­spyrnu­iðkun við bestu aðstæður allt árið um kring, óháð veðri og vindum.

Fjár­fest­ing í íslenskum knatt­spyrnu­liðum, meðal ann­ars frá fjáðum stuðn­ings­mönnum, jókst líka mikið á þessum góð­ær­is­árum.

Þessi fjár­fest­ing, ásamt mik­illi áræðni og dugn­aði, hefur skapað þær eig­in­lega fárán­legu aðstæður að Ísland, sem hýsir svipað marga íbúa og breski bær­inn Coventry (329.810 íbúar), er orðið á meðal 35 bestu þjóða heims í karlaknatt­spyrnu og 20 bestu þjóða heims í kvenna­bolt­anum. Mik­il­mennsku­brjál­æði og „að-vaða-áfram“-hug­ar­farið hefur sínar björtu hliðar líka.


Frétta­skýr­ingin byggir að hluta á annarri sem birt var í sept­em­ber 2014.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár