Afrek íslenska landsliðsins á forsíðum miðla út um allan heim

Þrátt fyrir að íslenska karla­lands­liðið í knatt­spyrnu hafi verið á ótrú­legri sigl­ingu und­an­farnar tvær und­ankeppnir þá áttu fáir von á því að liðið færi með sigur að hólmi þegar það mætti Hol­lend­ingum í Amster­dam í gær. Hol­lenska liðið, sem fékk brons­verð­laun á síð­asta heims­meist­ara­móti, hafði enda aldrei tapað á heima­velli í und­ankeppni Evr­ópu­móts­ins og tap­aði síð­ast heima­leik í und­ankeppni fyrir fimmtán árum síðan, þá fyrir Portúgal í und­ankeppni heims­meist­ar­móts.

Það fór þó svo að litla lestin sem gat, íslenska lands­liðið, sigr­aði það hol­lenska og þarf ein­ungis eitt stig í þremur leikjum til þess að tryggja að liðið kom­ist í fyrsta sinn á loka­mót í knatt­spyrnu karla næsta sumar. Raunar getur farið svo að íslenska liðið verði komið á loka­mótið áður en það leikur gegn Kasakstan á sunnu­dag, fari svo að Holland og Tyrkland geri jafn­tefli í leik sínum fyrr um dag­inn.

Íslend­ingar eru 329 þús­und tals­ins og í 180. sæti yfir fjöl­menn­ustu ríki heims. Hér æfa um 20 þús­und manns knatt­spyrnu, sam­kvæmt tölum frá Knatt­spyrnu­sam­bandi Íslands, en í Hollandi er sú fjöldi um 1,2 millj­ónir manns. Ef/þegar far­seð­ill­inn til Frakk­lands næsta sumar verður tryggður þá mun Ísland skrá sig á spjöld sög­unnar sem fámenn­asta ríki til að leika á loka­móti í knatt­spyrnu í heims­sög­unni.

Sigur Íslend­inga á Hol­lend­ingum, og sú staða sem upp er komin í riðli lið­anna, vakti því víðar athygli en bara hér heima á eld­fjalla­eyj­unni. Íslenska lands­liðið er umfjöll­un­ar­efni á miðlum út um allan heim. Kjarninn tók saman helstu frétt­irnar. Hægt er að smella á fyr­ir­sagn­irnar til að fara inn í frétt­irnar.

Sky Sports: Ísland vinnur, Holland tapar



Reuters: Ísland á brúninni



Politiken: Íslensku hetjurnar rotuðu bronsverðlaunahafanna



NRK: Ísland hefur "sjokkerað" evrópska knattspyrnu



New York Times: EM nálgast fyrir Ísland



The Indian Express: Hollendingar í hættu



The Guardian: Ísland nálægt eftir óvæntan sigur



Expressen: Snilld Íslendinganna



Eurosport: Hörmung Hollendinga blasir við eftir óvæntan sigur Íslands



ESPN: Eru Wales og Ísland að komast á lokamót?



Ekstra Bladet: Ísland nálægt draumalandinu



de Volkskrant: Lélegir Hollendingar



De Telegraaf: Hörmungarbyrjun hjá Blind



Daily Mail: Sammála De Telegraaf



BT: Ballaða og fíaskó



Bleachers report: Nokkuð sterílt allt saman



Bild: Holland mun bara upplifa EM af tjaldsvæðinu



Berlinske: Robben hraunar yfir Martins Indi



BBC: Högg fyrir Hollendinga



Al Jazeera: Umdeilt víti gerir út um leikinn í Amsterdam



Aftonbladet: Lars sem forseta!


Sky sports
Sky sports
reuters
reuters
politiken
politi­ken
NRK
NRK
New York Times
New York Times
Indian express
Indian express
Guardian
Guardian
Expressen
Expressen
Eurosport
Eurosport
ESPN
ESPN
ekstra bladet
ekstra bla­det
De volkskrant
De volkskr­ant
de telegraaf
de tel­egraaf
Daily mail
Daily mail
BT
BT
bleachers report
bleachers report
Bild
Bild
berlinske
berl­inske
BBC
BBC
Al Jazeera
Al Jazeera
AFtonbladet
AFton­bla­det

Og svo nokkur tweet í lokin frá mönnum sem heita Ruud og hol­lenska knatt­spyrnu­sam­band­inu:

https://twitter.com/GullitR/status/639519521431232512

https://twitter.com/GullitR/status/639539205895536644

https://twitter.com/RuudLassche/status/639539966427725828

https://twitter.com/HollandOranje/status/639423817576792064

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár