Hundrað ára afmæli Cafe Fodkold

Árið 1921 hafði orðið skyndi­biti ekki verið fundið upp. Réttur sem íbúum Kaup­manna­hafnar stóð þá, í fyrsta sinn, til boða að seðja hungrið með, utandyra stand­andi upp á end­ann, varð síðar eins konar þjóð­ar­ein­kenni Dana. Og heitir pylsa.

Pylsuvagn á Ráðhústorginu árið 1954.
Pylsu­vagn á Ráð­hús­torg­inu árið 1954. Mynd: Aðsend mynd

Kjarn­inn end­­­­­­­ur­birtir nú valda pistla Borg­þórs Arn­gríms­­­­­­­sonar sem sam­hliða eru gefnir út sem hlað­varps­þætt­­­­­­­ir. Frétta­­­­­­­skýr­ingar Borg­þórs njóta mik­illa vin­­­­­­­sælda og sú sem er end­­­­­­­ur­birt hér að neðan var upp­­­­­­­haf­­­­­­­lega birt þann 23. jan­úar 2021.

Árið 1910 sendi hljóm­sveit­ar­stjór­inn Charles Svendsen Stevns borg­ar­yf­ir­völdum í Kaup­manna­höfn bréf. Innihald bréfs­ins var beiðni um leyfi til að selja pylsur úr hand­vögnum á nokkrum til­teknum stöðum í borg­inni. Einn þeirra staða sem Stevns til­greindi var torg sem þá var farið að kalla Ráð­hús­torgið, við hið nýbyggða ráð­hús borg­ar­innar.

Pylsu­vagnar á götu­hornum og torgum voru ekki nýlunda, þótt þeir væru óþekktir í Danmörku á þessum tíma. Slíkir vagnar höfðu um ára­tuga skeið þekkst í Þýska­landi og síðar í Svíþjóð og Noregi. Það var einmitt í Noregi sem hljóm­sveit­ar­stjór­inn Stevns hafði kynnst þessum götu­veit­inga­stöðum. Hann hafði, áður en hann sneri heim til Dan­merkur verið stjórn­andi hirð­hljóm­sveitar Hákonar VII Nor­egs­kon­ungs í Krist­janíu (Ósló). Stevns sá fyrir sér að pylsu­vagnar yrðu góð við­bót við fremur fábreytta flóru veit­inga­staða dönsku höf­uð­borg­ar­innar.

Borg­ar­yf­ir­völd og lög­reglan í Kaup­manna­höfn voru ekki upp­rifin yfir hug­mynd hljóm­sveit­ar­stjór­ans og synj­uðu beiðn­inni. Meðal rök­semda yfir­valda var að „það yrði leið­in­leg sjón að sjá fólk standa utandyra og borða pylsur“.

[adspot]

Fékk loks leyfi árið 1920

Þótt Stevns hljóm­sveit­ar­stjóri hafi ekki haft erindi sem erf­iði í erindi sínu til borg­ar­stjórn­ar­innar árið 1910 gafst hann ekki upp, en það var þó ekki fyrr en árið 1919 að hreyf­ing komst á málið. Í októ­ber það ár lagði Ernst Kaper borg­ar­stjóri (þeir voru þá eins og nú sjö tals­ins) fram til­lögu í borg­ar­stjórn. Hann hafði lengi átt í deilum við veit­inga­húsa­eig­endur í borg­inni, deilu­málið var verð­lagn­ing á veit­ingum. Borg­ar­stjór­inn vildi að verð­lag á veit­inga­húsum yrði sam­ræmt þannig að alls­staðar væri sama verð, sem borgin skyldi ákveða. Rökin voru þau að matur á veit­inga­stöðum væri alltof dýr. Veit­inga­menn áttu marga vini í borg­ar­stjórn­inni og hug­myndir borg­ar­stjór­ans um sam­ræmt verð­lag hlaut aldrei stuðn­ing í borg­ar­stjórn­inni.

Þegar Ernst Kaper lagði fram til­lög­una um að leyfa pylsu­vagna í borg­inni urðu miklar umræður í borg­ar­stjórn­inni og borg­ar­ráði. Thorvald Stauning, síðar for­sæt­is­ráð­herra, var for­maður borg­ar­ráðs og þegar málið var rætt þar var mik­ill hiti í ræðu­mönnum. Stauning þurfti oft að slá í fund­ar­stjóra­bjöll­una og biðja menn (allt karlar) að halda sig við efnið. Blaða­menn sögðu að Stauning hefði haft sér­staka ánægju af að nota orða­lagið „holde sig til pøl­sesnakken“. Í þessu var ákveðin tví­ræðni því í dönsku merkir orðið (sem er lítið notað núorðið) nefni­lega slúður og blaður um allt og ekk­ert.

En leyfið fékkst á end­anum.

Fall er fararheill og sú rauða

Þann 1. jan­úar 1921 birt­ust sex pylsu­vagnar á torgum Kaup­manna­hafnar, þar á meðal á Ráð­hús­torg­inu. Einn réttur var í boði: venju­leg pylsa hituð í vatni, og rún­stykki, pylsan kost­aði 25 aura og brauðið 5 aura. Mörgum þótti þetta dýr mál­tíð en tíma­laun verka­manns voru 2 krónur. Ekki er hægt að segja að ríf­andi gangur hafi verið í við­skipt­unum þennan fyrsta dag. Margir voru for­vitnir að vita hvað verið væri að selja en engin pylsa seld­ist og undir lokun gáfu pylsusal­arnir úr pott­unum. Þótt ekki hafi upp­hafið lofað góðu átti það fljót­lega eftir að breyt­ast. Pylsu­vagnar birt­ust á næstu árum á æ fleiri stöðum um land allt og úrvalið jókst smám saman. Grunn­ur­inn hefur alla tíð verið sá sami: pylsa og brauð.

Í frá­sögnum af upp­hafi „pylsu­aldar“ má lesa að pyls­urnar hafi ekki haft útlitið með sér, verið fölar og grámyglu­legar. En ekki voru liðin mörg ár þegar sú rauða „den røde“ kom á mark­að­inn. Hún sló í gegn. Ýmsar skýr­ingar voru á lofti um rauða lit­inn, sumir töldu að ekki væri hrá­efnið alltaf í úrvals­flokki en lit­ur­inn gæti leynt því, aðrir að rauði lit­ur­inn væri ein­fald­lega svo fal­legur og lystauk­andi. Sú var líka skýr­ing fram­leið­enda. Rauði lit­ur­inn var feng­inn úr skildi sér­stakrar teg­undar blað­lúsa, sem ku ein­göngu finn­ast í Suður- Afríku og á Gran Canaria. Lit­ar­efnið er mjög sterkt og þess má geta að lengi vel var það notað í Campari drykk­inn og sömu­leiðis í vara­liti.

Óhætt er að segja að sú rauða sé eins konar sam­nefn­ari dönsku pyls­unnar og þótt pylsusalar nútím­ans bjóði nú margar mis­mun­andi pylsu­gerðir heldur sú rauða alltaf velli. Hún er hituð í vatni, en ekki á hita­plötu eins og flestar aðrar sem í boði eru hjá pylsu­söl­unum.

Gullöldin og heitir hundar

Ár síð­ari heims­styrj­aldar reynd­ust dönskum pylsu­sölum erfið. Flestar nauð­synjar voru skammt­aðar og pylsusalar áttu oft á tíðum í erf­ið­leikum með að útvega vörur til að selja. Fyrir kom að ein­ungis ein pylsu­teg­und var í boði í vagn­inum og stundum urðu við­skipta­vin­irnir að gera sér að góðu rúg­brauð í stað pylsu­brauðs­ins, eða bara pyls­una eina í smjör­papp­írs­snifsi „en með hånd­tag“.

En stríð­inu lauk og þá tóku við betri tímar. Blóma­skeið dönsku pylsu­vagn­anna var á sjötta og sjö­unda ára­tug síð­ustu aldar og um 1970 voru rúm­lega 700 pylsu­vagnar í Danmörku. Ástæður þess að svo vel gekk hjá pylsu­sölum á þessum árum voru einkum betri efna­hagur almenn­ings og pylsur voru nán­ast eini skyndi­bit­inn sem í boði var. Það fór ekki fram­hjá dönskum pylsu­sölum að í Ameríku væru pyls­urnar kall­aðar „hot dog“. Þeir dönsku aug­lýstu þess vegna „varme hunde efter amerikansk recept“. Ekki voru allir jafn klárir á því hvað verið væri að selja og einn pylsu­sali sagði síðar frá því í við­tali að hann hefði tekið eftir gömlum manni sem fylgd­ist drjúga stund grannt með við­skipta­vinum við vagn­inn. Þegar færi gafst, og eng­inn kúnni við vagn­inn spurði sá gamli hvort það væri virki­lega hunda­kjöt í pyls­unum og hvernig hundar væru þá not­aðir í þessar pylsur. „Ég veit ekki hvort hann trúði mér þegar ég sagði honum að þetta væri bara nafn, það væri svína­kjöt í öllum pylsum hjá mér, eins og öðrum.“

Café Fodkold og öll hin nöfnin

Pylsu­vagn­arnir, pyls­urnar og allt sem þeim teng­ist er hluti dönsku þjóð­arsál­ar­innar. Ótal bækur hafa verið skrif­aðar um þetta efni og margir Danir hafa mjög ákveðnar skoð­anir á því hvaða pylsur séu bestar og vilja ein­ungis „sína teg­und“. Danir eru dug­legir við að gefa hlutum nöfn, og það gildir sann­ar­lega um pyls­urnar. Ekki er nokkur leið að fara yfir þá nafna­súpu í pistli sem þessum en þó er rétt að nefna hér eitt þess­ara nafna. Það skýrir sig sjálft og teng­ist því að ekki er alltaf hlýtt og nota­legt við pylsu­vagn­inn: Cafe Fodkold.

Blikur á lofti en þó vonarglæta

Frá því á níunda ára­tug síð­ustu aldar hefur hallað undan fæti og pylsu­vögn­unum hefur fækkað jafnt og þétt. Áður var nefnt að um 1970 voru rúm­lega 700 pylsu­vagnar í Danmörku, núna eru þeir taldir vera rétt um 100. Jafnvel talað um að þeir séu bein­línis í útrým­ing­ar­hættu. Ástæð­urnar eru fyrst og fremst stór­aukið fram­boð alls kyns skyndi­bita. Slíkir staðir eru nán­ast á hverju götu­horni og á svæði þar sem áður var kannski einn pylsu­vagn eru kannski fimm til sjö skyndi­bita­staðir í dag.

Pylsusalar og fram­leið­endur telja sig þó sjá merki um breyt­ingar. Æ fleiri Danir átti sig á því að pylsu­vagn­inn sé hluti af dönsku þjóð­lífi og menn­ingu. Ferða­menn, sem undir venju­legum kring­um­stæðum eru margir, kunna líka vel að meta Cafe Fodkold.

Hvernig dönsku pylsu­vögn­unum reiðir af verður að koma í ljós en flestir eru lík­lega sam­mála um að það væri sjón­ar­sviptir ef þeir hyrfu algjör­lega úr bæj­ar­mynd­inni.

Svona í lokin um aðdrátt­ar­afl pylsu­vagna. Við Íslend­ingar þekkjum það vel að erlendir ferða­menn leggja gjarna leið sína að pylsu­vagn­inum „Bæjarins bestu“ við Tryggva­götu. Hafa lesið um hann og heyrt aðra segja frá þessum minnsta veit­inga­stað höf­uð­borg­ar­innar og vilja sjálfir prófa pyls­urnar. Margir muna að Bill Clinton fyrr­ver­andi Banda­ríkja­for­seti kom hingað til lands árið 2004. Fæstir muna kannski hvert erindi hans var en nær allir, sem á annað borð muna eftir þess­ari heim­sókn, muna eftir einu sem hann gerði: Hann fékk sér pylsu á „Bæjarins bestu“.

Á þess­ari síðu má finna fjöl­mörg nöfn sem pyls­urnar hafa fengið í gegnum árin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár