Þeir komu, sáu og sigruðu...en voru farnir átta mánuðum seinna

Þegar vinstri­flokk­ur­inn Syriza í Grikk­landi vann mik­inn kosn­inga­sigur, 25. jan­úar á þessu ári, hét hann því að binda enda á „nið­ur­læg­ing­ar­tíma­bil Grikk­lands“. Hann vildi kom­ast út úr efna­hags­á­ætl­un­inni sem sam­þykkt var 2012, eftir við­ræður við kröfu­hafa lands­ins, þar á meðal Evr­ópu­sam­bandið, Seðla­banka Evrópu, Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn og alþjóð­lega banka.

Kosn­inga­sig­ur­inn var sögu­legur og með ólík­indum. Flokk­ur­inn fékk 149 þing­sæti af 300, næstum hreinan meiri­hluta, og var með alla þræði í hendi sér. Alexis Tsipras, sem fór fyrir flokknum sem for­maður, varð for­sæt­is­ráð­herra, og hans nán­asti sam­starfs­maður, Yanis Varoufakis, varð fjár­mála­ráð­herra. Ljóst var að þessir tveir menn voru með mikið sjálfs­traust eftir kosn­ing­arnar og skýrt umboð frá kjós­endum um að hverfa frá áætlun um mik­inn nið­ur­skurð hjá hinu opin­bera. Sama dag og Varoufakis tók við emb­ætti var hægt að fara á vef Amazon og ná í bók eftir hann þar sem hann fyrir lið fyri lið í gegnum það, hvernig hann teldi að væri best að end­ur­skipu­leggja efna­hag Grikk­lands og end­ur­semja við kröfu­hafa. Bókin nefn­ist Europe after the Minotaur: Greece and the Future of the Global Economy.

Óhætt er að segja að þjóð­leið­togar heims­ins væru hræddir við fram­haldið, og lét David Cameron, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, meðal ann­ars hafa eftir sér á Twitter, að þessi kosn­inga­úr­slit myndu auka á óör­yggi í heim­inum.


The Greek election will increase economic uncertainty across Europe. That's why the UK must stick to our plan, deli­ver­ing security at home.


— David Cameron (@David_Cameron) January 25, 2015

Þrautaganga hófst - Beint lýðræði ræður ferðinni

Nú, tæpum átta mán­uðum eftir hinn sögu­lega sigur Tsipras, Varoufakis og félaga í Syriza, eru þeir báðir horfnir á braut og veru­lega umdeil­an­legt þykir, hvort þeir hafi náð miklum árangri við að end­ur­semja um skuldum vaf­inn þjóð­ar­hag Grikk­lands. Tsipras sagði af sér í gær sem for­sæt­is­ráð­herra og boð­aði um leið til kosn­inga í land­inu 20. sept­em­ber. Vaxandi þrýst­ingur var á hann innan úr Syriza flokknum, þar sem mikil óánægja var með það sam­komu­lag sem að lokum var gert við kröfu­hafa. Varoufakis var þá þegar búinn að segja af sér sem fjár­mála­ráð­herra, enda var hann ævur yfir sam­komu­lag­inu og afar ósáttur við að Grikkir hafi verið „þving­aðir til þess að taka á sig skuldir sem þeir ráða ekki við“ eins og hann komst sjálfur að orði. Sam­komu­lagið við kröfu­hafa, sem sam­þykkt hefur verið í gríska þing­inu og þegar er byrjað að vinna eftir, gerir ráð fyrir 86 millj­arða evra lán­veit­ingum, sem er risa­vaxin fjár­hæð fyrir ríf­lega ell­efu millj­óna þjóð. Skuldir hins opin­bera eru svim­andi háar sömu­leiðis og nema um 175 pró­sentum af árlegri lands­fram­leiðslu. Um tutt­ugu millj­arðar evra a þess­ari heild­ar­á­ætlun fara í end­ur­skipu­lagn­ingu á fjár­mála­kerfi lands­ins, sem er að hruni komið, en stór hluti afgangs­ins fer í að end­ur­fjár­magna skuldir og styrkja rekstur hins opin­bera. Eftir að mik­ill meiri­hluti grísku þjóð­ar­innar hafn­aði sam­komu­lagi við kröfu­hafa í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu, 6. júlí, hefur mikið vatn runnið til sjávar. Á aðeins rúm­lega sex vikum hefur Syriza flokk­ur­inn misst vopnin og glímir við miklar inn­an­flokks­deilur, sem ekki sér fyrir end­ann á. Kosn­ing­arnar 20. sept­em­ber marka því enn á ný tíma­mót í grískt þjóð­líf, og nýtt upp­haf í stjórn­mála­líf­inu á sama tíma.

[caption id="attachment_18143" align="alignnone" width="4000"] Alexis Tsipras, nýr for­sæt­is­ráð­herra Grikk­lands. Hann fagn­aði dátt eftir sig­ur­inn í kosn­ing­unum í jan­úar, en kvaddi með dramat­ískum hætti í gær. Mynd: EPA.[/caption]

Efnahagsmálin á réttri leið - Verður meira afskrifað?

Alexis Tsipras, nýr forsætisráðherra Grikklands. Hann fagnaði dátt eftir sigurinn í kosningunum í janúar, en kvaddi með dramatískum hætti í gær. Mynd: EPA.
Alexis Tsipras, nýr for­sæt­is­ráð­herra Grikk­lands. Hann fagn­aði dátt eftir sig­ur­inn í kosn­ing­unum í jan­úar, en kvaddi með dramat­ískum hætti í gær. Mynd: EPA.

Þrátt fyrir böl­móð og glund­roða í grískum stjórn­málum, og sögu­leg inn­grip grísku þjóð­ar­innar í lyk­ilá­kvarð­anir lands­ins í gegnum þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur, þá hefur gríska hag­kerfið komið mörgum á óvart að und­an­förnu. Hag­töl­urnar hafa ekki verið eins slæmar og margir ótt­uð­ust og svo virð­ist sem landið sé að rétta úr kútnum, þó merkin séu veik enn sem komið er. Hag­vöxtur í Grikk­landi var 0,8 pró­sent á öðrum árs­fjórð­ungi en að með­al­tali á Evru­svæð­inu var hann 0,2 pró­sent. Atvinnu­leysi er enn helsta áhyggju­efni Grikkja, en það er yfir 25 pró­sent. Þrýst­ing­ur­inn um að meira verði afskrifað af skuldum Grikk­lands heldur en þegar hefur verið gert, hefur ekki aðeins komið frá Syriza flokknum og stjórn­völdum í Grikk­landi, heldur ekki síður frá Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðnum, þar sem hin franska Christine Lagarde er hæst­ráð­andi. Hún hefur ítrekað sagt að nauð­syn­legt sé að afskrifa meira af skuldum Grikk­lands, þar sem skulda­staðan sé ekki sjálf­bær. Ekki sé hægt að ná því fram með hag­ræð­ingu sem stefnt sé að, og ekki sé víst að hækk­anir á virð­is­auka­skatti og skatti á ríkt fólk muna skila því sem að er stefnt. Rökræður um þetta eru enn í gangi, og ekki ólík­legt að sam­komu­lagið verði end­ur­skoðað með þessi áherslu­at­riði sem helsta leið­ar­ljós.

Árangur þrátt fyrir hörku og innanflokksátök

Þegar öllu er á botn­inn hvolft þá hefur Grikk­land þrátt fyrir allt náð árangri þegar kemur að því að láta hjól efna­hags­lífs­ins snú­ast hraðar. Skulda­staða lands­ins var yfir­þyrm­andi eftir hrunið á fjár­mála­mörk­uðum á árunum 2007 til 2009, og fátt annað en greiðslu­þrot virt­ist blasa við rík­is­sjóði og helstu fyr­ir­tækjum lands­ins einnig. En þó staðan sé afar erfið, og ennþá um margt tví­sýn, þá er ekki hægt að segja annað en að árangur hafi náðst þrátt fyrir harðar alþjóð­legar deilur og inn­an­flokksá­tök. Því ástandi hefur oft verið líkt við það sem gengið hefur á hér á landi, með réttu eða röngu. Tsipras var dramat­ískur þegar hann til­kynnti um afsögn sína og kosn­ing­arnar 20. sept­em­ber, í ávarpi í gær, eftir spennu­þrungna og sögu­lega átta mán­uði sem þjóð­ar­leið­togi Grikk­lands. „Á þessum erf­iðu tímum þurfum við að halda í það sem mestu skiptir: þjóð­ina og lýð­ræðið. Þakka ykkur fyrir.“

In these difficult times, we must hold on to - and champion- what matt­ers most: our country and #democracy. Thank you. #Greece — Alexis Tsipras (@tsipras_eu) August 20, 2015
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár