AGS: Það verður að afskrifa meira af skuldum Grikkja

Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn (AGS) telur að afskrifa þurfi enn meira af skuldum Grikkja en gert hefur verið til þessa, og nýtt sam­komu­lag um end­ur­greiðslu á skuldum lands­ins gerir ráð fyrir. Skulda­staðan sé ekki sjálf­bær og það geti verið hættu­legt fyrir inni­viði hag­kerf­is­ins í Grikk­landi að skera of mikið niður.

Grikkir munu fá 86 millj­arða evra að láni á næstu þremur árum sam­kvæmt efna­hags­á­ætlun sem stjórn­völd hafa sam­þykkt og kröfu­hafar sömu­leiðis.

Samkvæmt umfjöllun breska rík­is­út­varps­ins BBC mun fyrsti lána­hlut­inn vera upp á 26 millj­arða evra, um 3.800 millj­arðar króna, og fara um 10 millj­arðar evra af því í að end­ur­skipu­leggja banka­kerfi lands­ins. Á móti þurfa stjórn­völd að fara út í víð­tækar hag­ræð­ing­ar­að­gerðir og eigna­sölu.

Christine Lagarde, fram­kvæmda­stjóri AGS, segir að efna­hags­á­ætl­unin þurfi að taka meira til­lit til þess að nauð­syn­legt sé að afskrifa meira af skuldum Grikk­lands.


My remarks at today’s Finance & Society forum http://t.co/7apWTMYbZl pic.twitter.com/vdnVk8IDLl


— Christine Lagarde (@Lagarde) May 6, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár