Flugfreyjufélagið og Icelandair náðu nýjum samningi

Nýi samn­ing­ur­inn felur í sér breyt­ingu á tveimur umdeildum atriðum í samn­ingnum sem FFÍ felldi fyrir skemmstu. Flugmenn munu ekki ganga í störf flug­freyja.

Samn­inga­nefnd Flug­freyju­fé­lags Íslands (FFÍ) skrif­aði í nótt undir nýjan kjara­samn­ing við Samtök atvinnu­lífs­ins og Icelandair sem gildir til 30. sept­em­ber 2025. Það gerð­ist eftir langa fund­ar­setu hjá rík­is­satt­ar­semj­ara og til­kynn­ing þess efnis var send út á öðrum tím­anum í nótt.

Icelandair hafði til­kynnt um það á föstu­dag að félagið hefði lokið við­ræðum sínum við FFÍ og að öllum starf­andi flug­freyjum og -þjónum yrði sagt upp. Í kjöl­farið yrði samið við aðra aðila um að sinna störfum þeirra og til að byrja með yrði það í höndum flug­manna. Í fram­haldi á und­ir­ritun samn­ings hefur Icelandair óskað eftir vinnu­fram­lagi frá flug­freyjum og flug­þjónum félags­ins og því munu flug­menn ekki sinna störfum örygg­is­liða um borð.

Ákvörð­unin var harð­lega gagn­rýnd víða, sér­stak­lega hjá verka­lýðs­for­yst­unni, en Samtök atvinnu­lífs­ins studdu hana.

FFÍ boð­aði sam­stundis til und­ir­bún­ings alls­herj­ar­verk­falls.

I til­kynn­ingu frá FFÍ sem send var út í nótt segir að nýund­ir­rit­aði samn­ing­ur­inn byggi á fyrri samn­ingi sem felldur var í atkvæða­greiðslu hjá FFÍ nýverið. Nýi samn­ing­ur­inn feli hins vegar m.a. í sér breyt­ingar á tveimur umdeildum ákvæðum. Mála­miðlun náð­ist milli deilu­að­ila um auka­frí­daga fyrir flug­freyjur eldri en 60 ára og um svo­kall­aða sex daga reglu.

Guðlaug Líney Jóhanns­dóttir, for­maður FFÍ, segir að það hafi alltaf verið vilji FFÍ að koma til móts við Icelandair í því gjör­breytta lands­lagi sem blasi við á þessum mark­aði. „Það er von okkar að sem flestir félags­menn FFÍ geti í fram­haldi af þessu mætt til vinnu á ný og aðilar geti í sam­ein­ingu unnið að þeim stóru verk­efnum sem við blasa. Jafn­framt fögnum við því að sam­hliða und­ir­ritun kjara­samn­ings mun Icelandair draga til baka þær fyr­ir­hug­uðu upp­sagnir sem til­kynntar voru félags­mönnum FFÍ 17. júlí 2020.“

Samn­ing­ur­inn verður kynntur félags­mönnum FFÍ á fundi 20. júlí og verða greidd atkvæði um hann í kjöl­farið. Atkvæða­greiðsl­unni lýkur 27. júlí nk.

Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair, segir það mik­inn létti fyrir alla að búið sé að semja. Hann bindur miklar vonir við að félags­menn FFÍ sam­þykki samn­ing­inn. „Með þessum samn­ingi næst sú hag­ræð­ing sem við teljum nauð­syn­lega. Und­an­farnir dagar hafa reynt veru­lega á og ég er afskap­lega sáttur að við séum að ná lend­ingu. Þetta er gríð­ar­lega mik­il­vægt skref í því stóra verk­efni sem við stöndum frammi fyrir.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár