120 herbergja hótel við Skógarböðin þarf ekki í umhverfismat

Fimm hæða hótel sem áformað er að reisa við hlið Skóg­ar­bað­anna í Eyja­fjarð­ar­sveit þarf ekki að und­ir­gang­ast umhverf­is­mat sam­kvæmt ákvörðun Skipu­lags­stofn­unar. Bygg­ing­ar­lóðin er skógi vaxin og því þarf að færa merk tré og gróð­ur­setja önnur í stað þeirra sem verða felld.

Inni í brekku
Inni í brekku Hótelið á að byggja á eyri við Eyja­fjörð og nokkuð inn í brekku. Tölvu­teikn­ingin er gerð af Basalt Arki­tektum. Mynd: Hótel Gjá

Hótel Gjá ehf. áformar að byggja allt að 120 her­bergja hótel á fimm hæðum auk kjall­ara á jörð­inni Ytri-Varðgjá við hlið Skóg­ar­bað­anna við Eyja­fjörð. Bíla­stæði, aðkomu­vegur og ný laug verða einnig hluti af fram­kvæmd­unum. Hótelið á að byggja á eyri og að hluta inni í brekku. Það verður að lík­indum um 23 metrar á hæð og umvafið skógi á þrjá vegu.

Hótel Gjá ehf., sem er í eigu sömu aðila og eiga Skóg­ar­böðin, kynnti áformin fyrir Skipu­lags­stofnun sem leit­aði umsagnar ýmissa stofn­ana sem komust allar að því að þrátt fyrir að umhverf­is­á­hrif hót­els­ins verði ein­hver, m.a. á fugla­líf, þyrfti fram­kvæmdin ekki að und­ir­gang­ast mat á umhverf­is­á­hrifum. Tók Skipu­lags­stofnun undir þá nið­ur­stöðu og telur fram­kvæmd­ina ekki lík­lega til að hafa í för með sér veru­leg og óaft­ur­kræf áhrif á umhverfið.

Er það mat Skipu­lags­stofn­unar að um sé að ræða umfangs­mikla mann­virkja­gerð sem jafn­framt sé við jaðar svæðis á nátt­úru­minja­skrá. Þrátt fyrir vernd­ar­stöðu Óshólma Eyja­fjarð­arár telur hún svæðið ekki við­kvæmt enda sé það tölu­vert raskað nú þegar af land­fyll­ingu og vega­fram­kvæmdum.

Umvafið skógiSkóg­ar­böðin draga nafn sitt af Vaðla­skógi sem þau eru inn í og hið fyr­ir­hug­aða hótel, sem merkt er með gulum kassa til hægri á mynd­inni, verður innan skóg­ar­ins sömu­leiðis.

Samkvæmt gögnum Hótels Gjár er auk gisti­her­bergj­anna 120 gert ráð fyrir veit­inga­stað, bar, fund­ar­her­bergjum, heilsu­lind og lík­ams­rækt­ar­stöð í bygg­ing­unni sem yrði að hámarki 9.000 fer­metrar að stærð. Þak hót­els­ins verður ýmist flatt eða með lág­marks halla og það og veggir hafðir í nátt­úru­legum tónum og klæddir timbri til að lág­marka sýni­leika. „Hótelið verður stað­sett þannig að útsýni úr her­bergjum þess verður til vest­urs og suð­urs að Akureyri og inn Eyja­fjörð,“ segir í gögnum fram­kvæmda­að­ila. „Það er talið eitt helsta aðdrátt­ar­afl hót­els­ins ásamt því að byggja það inni í skóg­inum og að hafa bað­stað­inn Skóga­böðin í næsta nágrenni.“

 Lögð verði sér­stök áhersla á að mann­virki falli sem best að lands­lagi og raski á skógi verði haldið í lág­marki.

Stækka þarf landfyllingu og leggja veg yfir lón

Vinnu­vegur að fyr­ir­hug­uðu hót­eli verður frá Eyja­fjarð­ar­braut eystri og þverar lón á fyll­ingu á milli Eyja­fjarð­ar­brautar eystri og fjöru­borðs­ins. Hótelið verður innan núver­andi land­fyll­ingar en þörf verður á við­bótar land­fyll­ingu vegna bíla­stæða og aðkomu­svæðis vestan hót­els. Innan lóðar hót­els er gert ráð fyrir bíla­stæðum 20-40 bíla­stæðum en í bíla­geymslu í kjall­ara hót­els­ins yrðu 54 stæði til við­bótar.

Við hót­elið er gert ráð fyrir heitri laug frá laug sem þegar er við Skóg­ar­böðin Laugin verður um 100 metrar að lengd.

Á eyr­inniUpp­dráttur af svæð­inu úr deiliskipu­lags­til­lögu svæð­is­ins.

Innan bygg­ing­areits hót­els­ins er Vaðla­skógur á um 0,2 hekt­ara svæði og þarf að ryðja þann skóg. Vegna laugar þarf einnig að ryðja skóg á um 8 metra breiðu og 100 metra löngu belti. Fram­kvæmda­að­ilar segj­ast þegar hafa átt sam­ráð við Skóg­rækt­ar­fé­lag Eyfirð­inga vegna þessa rasks. „Þar sem því er við komið munu merk tré sem þurfa að víkja af svæð­inu verða tekin upp og þeim plantað á öðrum stað í skóg­inum. Sótt verður um fell­ing­ar­leyfi skógar til Skóg­rækt­ar­innar. Þær mót­væg­is­að­gerðir verða að skógi verður plantað í land Ytri-Varðgjár í jafn stórt svæði og þarf að ryðja vegna hót­els og tengdra fram­kvæmda.“

Með upp­bygg­ingu hót­els mun atvinnu­líf á svæð­inu efl­ast þar sem mörg störf verða til á hót­el­inu eftir opnun þess, segir í gögnum Hótel Gjár um verk­efnið. „Vegna þessa starfa má gera ráð fyrir að áhrif á íbúa­þróun í sveit­ar­fé­lag­inu verði jákvæð þar sem gera má ráð fyrir að starfs­fólk hót­els­ins muni í ein­hverjum til­fellum sækj­ast eftir því að setj­ast að í sveit­ar­fé­lag­inu. Gera má ráð fyrir því að ein­hver afleidd störf í þjón­ustu muni skap­ast í Eyja­fjarð­ar­sveit auk þess sem frek­ari grund­völlur er fyrir auk­inni þjón­ustu í sveit­ar­fé­lag­inu.“

Vel tekið

Skóg­ar­böðin í Eyja­fjarð­ar­sveit voru opnuð í fyrra­vor. Hagnaður á fyrsta rekstr­ar­ári var um 100 millj­ónir króna. Stofn­endur og aðal­eig­endur Skóg­ar­bað­anna eru hjónin Sigríður María Hammer og Finnur Aðal­björns­son, en næst­stærsti hlut­hafi er félagið Bjarna­son Holding ehf., sem er í eigu Birkis Bjarna­sonar, atvinnu­manns í knatt­spyrnu.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár