Dymbilvika – Hvað er það?

Nú er dymbil­vikan gengin í garð og páskar framundan. Að gefnu til­efni kann­aði Kjarninn hvaðan orðið „dymbil­vika“ kemur og hvað það þýðir.

Dymbill gæti hafa verið klukkukólfur sem var vafinn tuskum í því skyni að dempa hljóminn.
Dymbill gæti hafa verið klukku­kólfur sem var vaf­inn tuskum í því skyni að dempa hljóm­inn. Mynd: Pexels

Páskar eru á næsta leiti og margir Íslend­ingar þegar farnir í páska­frí enda skólakrakkar komnir í frí. Páska­eggjaát og öll her­leg­heitin eru framundan. Sunnu­dag­ur­inn fyrir páska er nefndur pálma­sunnu­dagur og markar hann upp­haf dymbil­vik­unnar. Jesús er sagður hafa komið til Jer­úsalem á pálma­sunnu­degi, ríð­andi á asna. Mann­fjöld­inn fagn­aði með pálma­greinum og stráum af ökrum og breiddi auk þess yfir­hafnir sínar á veg­inn. En af hverju er þessi síð­asta vika fyrir páska kölluð dymbil­vika?

Þessi vika hefur gengið undir ýmsum nöfnum, þar á meðal dymbil­dagar, dymbil­daga­vika, dymbil­dægur, dymbil­vika, efsta vika, helga vika, helgu dagar, kyrra­vika, pín­ing­ar­vika og páska­vika.

Á Vís­inda­vefnum kemur fram að orðið dymbil­dagar finn­ist í rit­uðu máli frá því laust eftir 1300 en jafn­framt segir að orðið geti að sjálf­sögðu verið mun eldra. „Merki­legt er að það kemur ekki fyrir í íslenskum lög­bókum, hvorki í Krist­inna laga þætti Grágásar, sem var lög­tek­inn á Alþingi um 1130, né Krist­in­rétti hinum nýja (1275), og ekki heldur í Jónsbók (1281). Gæti það bent til þess að þetta hafi í upp­hafi verið alþýðu­orð sem ekki komst í opin­ber skjöl fyrr en til­tölu­lega seint. Orðið dymbil­vika sést ekki í íslensku fyrr en í kirkju­or­din­ansíu Krist­jáns 3. frá 1537, sem Gissur biskup Ein­ars­son þýddi árið 1541,“ segir á vefnum.

Margar tilgátur um orðið „dymbill“

Erfitt reyn­ist að finna skýr­ingar á því af hverju dymbil­vika er kölluð þessu sér­staka nafni. Hvaðan kemur nafnið? Á Vís­inda­vefnum segir að talið sé að nafn­giftin sé dregin af ein­hverju áhaldi, sem kallað var dymb­ill, og notað var í kaþ­ólskum sið við guðs­þjón­ustur undir lok sjövikna­föstu, enda finn­ist hlutir með þessu heiti í upp­taln­ingu kirkju­gripa í mál­dögum.

Þessi dymbil­orð þekkj­ast einnig í gömlum norskum og sænskum textum, sem og í hjalt­lensku, en eiga sér enga ein­hlíta hlið­stæðu í öðrum málum. Í umræddri viku deyfðu menn öll ljós og hringdu ekki klukkum.

Nokkrar til­gátur hafa komið fram um hvað þessi dymb­ill var. Í fyrsta lagi gæti verið um að ræða klukku­kólf sem var vaf­inn tuskum í því skyni að dempa hljóm­inn. Í öðru lagi tré­kólf sem settur var í kirkju­klukku í stað málm­kólfs. Í þriðja lagi bar­efli til að lemja kirkju­klukk­urnar utan og í fjórða lagi ljósa­stjaka sem stóð á kirkju­gólfi og var not­aður í stað ljósa­hjálms. Í fimmta lagi áhald til að slökkva á kertum, sam­an­ber þýska orðið Dümpfel og í sjötta lagi ein­hvers konar hand­skellu úr tré sem notuð var í stað málm­bjöllu við guðs­þjón­ustur á umræddum dögum.

Dymbill=trétól?

Grein­ar­höf­undur Vís­inda­vefs­ins bendir enn fremur á að Halldór Laxness hafi talið dymbil vera hljóð­deyfi á strengja­hljóð­færi. Ásgeir Blöndal Magn­ús­son greinir frá í Orð­sifja­bók sinni að orðið dymb­ill sé oft­ast talið skylt orð­inu dumbur, sem þýðir að vera þög­ull, mál­laus, hljóð­daufur, en gæti eins verið í ætt við demba og dumpa, og eig­in­leg merk­ing sé þá slag­kólfur.

Árni Björns­son þjóð­hátta­fræð­ingur, sem skrifar um málið í bók sinni Sögu dag­anna, full­yrðir að afskrifa megi þrjár fyrstu hug­mynd­irnar sem nefndar eru hér að ofan. Hann skrifar að ekki hafi verið eins ill­fram­kvæm­an­legt að vefja kólfinn og skipta um kólf, en báðar þessar til­gátur eru út í hött þegar af þeirri ástæðu að klukk­urnar áttu að stein­þegja á þessum dögum. Sama hafi verið að segja um þá aðferð að berja klukkur utan eins og alþekkt er til dæmis á Gotlandi. Slíkt hafi víðar verið gert við jarð­ar­farir, en ekki í dymbil­viku, alltjent ekki á mið­öldum. Auk þess sé ekki vitað til þess að neitt sér­stakt áhald hafi verið notað til þess arna, heldur venju­leg bar­efli úr tré eða hnöttóttir steinar sem tuskum var stundum vafið um til að deyfa hljóðið.

Hann ritar jafn­framt að hvort sem orðið dymb­ill sé hljóð­lík­ing við lat­neska orðið tinni­bulum eða skylt orð­inu dumbur, verður að telj­ast lík­leg­ast að það eigi upp­haf­lega við um tré­tól þau sem notuð voru í stað­inn fyrir klukkur og málm­bjöllur á sorg­ar­dögum kirkj­unnar vegna písl­ar­sögu Jesú Krists. Hin hljóm­rænu umskipti í guðs­þjón­ust­unni á þessum dögum hafi ætíð þótt mjög áhrifa­mikil og eft­ir­minni­leg og hefðu hæg­lega getað gefið dög­unum alþýð­legt nafn.

„Eflaust hefur einnig þótt eft­ir­minni­legt í guðs­þjón­ust­unni á dymbil­dögum þegar slökkt var á stórum kerta­stjökum með sér­stakri við­höfn. Við siða­skiptin hurfu tré­skell­urnar vita­skuld með öllu, en ljósa­stjak­arnir hljóta að hafa verið nýttir eftir sem áður, hvort sem haldið var áfram að slökkva á þeim eftir gömlum kúnst­ar­innar reglum eður ei. Það er því engan veg­inn úti­lokað að nafnið dymb­ill hafi færst af tré­skellum yfir á ljósa­stjaka,“ skrifar Árni.

En hvert sem svarið er þá halda Íslend­ingar áfram að kalla vik­una fyrir páska dymbil­viku. Við tökum þannig við nýjum siðum og sam­lögum við þá eldri – og borðum súkkulaði.

Gleði­lega páska!

Heim­ildir: Vís­inda­vef­ur­inn

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár