Staðfest smit orðin 409

Staðfest smit af nýju kór­ónu­veirunni eru nú orðin 409 hér á landi. Þau voru 330 í gær. 4166 manns eru í sótt­kví víða um land og sjö liggja á sjúkra­húsi vegna COVID-19.

Staðfest smit af nýju kór­ónu­veirunni eru nú orðin 409 hér á landi. Þau voru 330 í gær. 4.166 manns eru í sótt­kví víða um land og sjö liggja á sjúkra­húsi vegna COVID-19. Greindum smitum hefur því fjölgað um tæp átta­tíu á einum sól­ar­hring. Sama gerðits í gær á milli daga.

Þetta kemur fram á vefnum Covid.is.

Uppruni um 35% smita er óþekktur. 36% þeirra eru rakin til útlanda og um 28% eru svokölluð inn­an­lands­smit. Þetta eru tölu­verð breyt­ing frá því gær þar sem helm­ingur smita var enn rak­inn til útlanda.

Tæplega 9.200 sýni hafa verið tekin á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­al­ans og hjá Íslenskri erfða­grein­ingu. Fimmtán smit hafa greinst síð­asta sól­ar­hring­inn hjá Íslenskri erfða­grein­ingu sem er mesti fjöldi hingað til.

Fólk er nú í sótt­kví í öllum lands­hlutum. Í heild­ina hafa 577 manns lokið sótt­kví.

Búast má við 1.000 smitum í lok maí

Sam­kvæmt spálík­ani sem vís­inda­menn frá Háskóla Íslands, emb­ætti land­læknis og Land­spít­ala hafa gert, um lík­lega þróun COVID-19 far­ald­urs­ins á Íslandi, má búast við því að fyrir lok maí­mán­aðar hafi um 1.000 manns á Íslandi greinst með COVID-19.

Svart­sýn­ustu spár gera ráð fyrir því að fjöldi greindra smita gæti þó orðið yfir 2.000 tals­ins á þeim tíma­punkti.

Hver eru einkenni COVID-19?

Einkenni COVID-19 líkj­ast helst inflú­ensu­sýk­ingu, hósti, hiti, bein- og vöðva­verkir, þreyta og svo fram­vegis. Melt­ing­ar­ein­kenni (kvið­verkir, ógleði/upp­köst, nið­ur­gangur) eru ekki mjög áber­andi með COVID-19 en þó þekkt, líkt og við inflú­ensu og MERS. COVID-19 getur einnig valdið alvar­legum veik­indum með neðri önd­un­ar­færa­sýk­ingum og lungna­bólgu, sem koma oft fram sem önd­un­ar­erf­ið­leikar á 4.–8. degi veik­inda.

[links]COVID-19 smit­ast á milli ein­stak­linga. Smitleið er talin vera snerti- og dropa­smit, svipað og inflú­ensa. Það þýðir að veiran getur dreifst þegar veikur ein­stak­lingur hóstar, hnerrar eða snýtir sér og hraustur ein­stak­lingur andar að sér dropum/úða frá þeim veika eða hendur hans meng­ast af dropum og hann ber þær svo upp að and­liti sínu. Ekki hefur verið stað­fest að fólk geti verið smit­andi áður en ein­kenni koma fram en sumir fá lítil sem engin ein­kenni og geta þó verið smit­andi.

Nánir aðstand­endur ein­stak­linga sem hafa veikst af COVID-19 eru í mestri hættu á að smit­ast sjálfir. Ein­stak­lingar sem í starfi sínu eða félags­lífi umgang­ast náið mik­inn fjölda ein­stak­linga eru einnig í meiri smit­hættu en þeir sem umgang­ast fáa aðra. Hand­hreinsun og almennt hrein­læti eru mik­il­væg­asta vörn þess­ara hópa gegn smiti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár