19 milljarða virðisaukaskattstekjur af sölu lyfseðilsskyldra lyfja á síðustu fimm árum

Í svari fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við fyr­ir­spurn Þor­steins Sæmunds­sonar kemur fram að virð­is­auka­skatts­tekjur af sölu lyf­seð­ils­skyldra lyfja á síð­asta ári hafi numið rúmum 4,4 millj­örðum króna.

Í fyrra námu tekjur ríkisins af virðisaukaskatti frá sölu á lyfseðilsskyldum lyfjum rúmum 4,4 milljörðum króna.
Í fyrra námu tekjur rík­is­ins af virð­is­auka­skatti frá sölu á lyf­seð­ils­skyldum lyfjum rúmum 4,4 millj­örðum króna. Mynd: Úr safni

Tekjur rík­is­sjóðs af virð­is­auka­skatti vegna sölu á lyf­seð­ils­skyldum lyfjum nemur að með­al­tali um fjórum millj­örðum króna á ári síð­ustu fimm ár á föstu verð­lagi árs­ins 2019. Þetta kemur fram í svari fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við fyr­ir­spurn Þor­steins Sæmunds­sonar, þing­manns Mið­flokks­ins, um tekjur rík­is­sjóðs vegna sölu á lyf­seð­ils­skyldum lyfjum. Lyf­seð­ils­skyld lyf eru í almennu þrepi virð­is­auka­skatts og bera því 24 pró­sent virð­is­auka­skatt.

Fyr­ir­spurn Þor­steins var svohljóð­andi: „Hverjar voru tekjur rík­is­sjóðs af virð­is­auka vegna sölu á lyf­seð­ils­skyldum lyfjum hvert ár árin 2015–2019 á föstu verð­lagi?“ Á tíma­bil­inu sem um ræðir nam heild­ar­verð­mæti lyf­seð­ils­skyldra lyfja sam­kvæmt skjala­kerfi Sjúkra­trygg­inga Íslands rúmum 97 millj­örðum.

Um fjórir milljarðar í skatttekjur á ári

Á tíma­bil­inu námu tekjur rík­is­sjóðs af virð­is­auka­skatti vegna sölu lyf­seð­ils­skyldra lyfja alls tæpum 19 millj­örðum eða tæpum 3,8 millj­örðum á ári að með­al­tali. Tekj­urnar uxu ár frá ári, voru tæpir 3,3 millj­arðar árið 2015 en voru rúmir 4,4 millj­arðar árið 2019.

Á föstu verð­lagi árs­ins 2019 námu virð­is­auka­skatts­tekjur rík­is­ins af sölu á lyf­seð­ils­skyldum lyfjum að með­al­tali rúmum fjórir millj­örðum á ári. Eðli máls­ins sam­kvæmt uxu þær líka ár frá ári. Á föstu verð­lagi árs­ins 2019 námu tekj­urnar rúmum 3,1 millj­arði árið 2015, árið síðar námu þeir rúmum 3,6 millj­örðum, árið 2017 námu þeir tæpum 4,1 millj­arði og árið 2018 rúmum 4,3 millj­örðum.

Í svari fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra segir um stað­virð­ingu: „Við stað­virð­ingu til verð­lags árs­ins 2019 er miðað við að með­al­lyfja­verð­skrár­gengi evru vegi 85% og vísi­tala neyslu­verðs (VNV) vegi 15%.“

Miðflokkurinn vill að lyf séu á viðráðanlegu verði

Í stefnu Mið­flokks­ins sem finna má á vef flokks­ins segir meðal ann­ars að setja eigi stefnu um Sjúkra­trygg­ingar Íslands. „Greiðslu­þátt­taka sjúk­linga með lífsógn­andi sjúk­dóma verði felld niður. Ráðast þarf í heild­ar­end­ur­skoðun vegna þeirra sem þurfa á þjón­ustu heil­brigð­is­kerf­is­ins að halda vegna lyfja- og ferða­kostn­aðar.“

Þá segir þar einnig að flokk­ur­inn leggi áherslu á að sjúk­lingum verði ávallt ávísað virk­ustu lyfjum sem fyr­ir­finn­ast á mark­aðnum hverju sinni og að læknar og, eftir atvikum sjúk­lingar, „hafi greiðan aðgang að frum­lyfjum til ávís­unar á við­ráð­an­legu verði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár