Spennan á Kóreuskaga orðin áþreifanleg

Kim Jong-un leið­togi Norður-Kóreu er ólík­inda­tól sem helstu sér­fræð­ingar í alþjóða­stjórn­málum eru hættir að átta sig á. Hvað er hann að hugsa? Ógnin sem af honum stafar er metin mjög alvar­leg.

Eftir að jarð­skjálfta­mælar greindu skjálfta upp á 5,3 á Richter-kvarða 8. sept­em­ber síð­ast­lið­inn, þar sem upp­tökin voru á þekktu til­rauna­svæði Norður-Kóreu með kjarn­orku­vopn, þá var ljóst að leið­togi Norður-Kóreu, hinn 32 ára gamli Kim Jong-un, hafði látið fram­kvæma kjarn­orku­spren­ingu. Þetta var fimmta sprengjan sem sprengd hefur verið í til­rauna­skyni á und­an­förnum þremur árum, og hafa yfir­völd í Norður-Kóreu sagt að þau séu hvergi nærri hætt. Fleiri sprengjur verði sprengdar og her­inn styrktur.

„Brjálæðingurinn“

Nágrann­arnir í Suður-Kóreu hafa ekki tekið þessum tíð­indum þegj­andi og sagði for­sæt­is­ráð­herr­ann, Park Geun-Hye, að nú væri ekki hægt að sitja hjá. „Brjál­æð­ing­ur­inn“ Kim Jong-un mætti ekki fá að ögra alþjóða­sam­fé­lag­inu með kjarn­orku­sprengjum. Það væri ekki bara of langt gengið heldur sýndi glögg­lega að hann væri hættu­legur og til alls vís. „Núna þarf að segja stopp,“ sagði Geun-Hye meðal ann­ars í opin­berri yfir­lýs­ingu eftir að jörð nötr­aði og skalf á Kóreu­skaga, eftir kjarn­orku­sprengj­una.

Óttinn sem Kim Jong-un og her hans í Norður-Kóreu hefur skapað á Kóreu­skaga er nú orð­inn að stóru vanda­máli fyrir Banda­ríkja­menn. Ögr­an­irnar bein­ast ekki síst að Banda­ríkja­mönnum, en her­inn í Suður-Kóreu er studdur dyggi­lega af her Banda­ríkja­manna. Í gær komu yfir­völd í Norður-Kóreu því form­lega á fram­færi, í gegnum rík­is­fjöl­mið­il­inn KNCA, að þau vildi fá við­ur­kenn­ingu á því að Norður-Kórea væri kjarn­orku­ríki, og fengi á því alþjóð­lega við­ur­kenn­ingu. Slíkt myndi gefa þeim aukið vægi á hinu alþjóð­lega sviði, en ríkið er nær alveg ein­grað frá umheim­inum.

Verður ekki liðið

Barack Obama, for­seti Banda­ríkj­anna, hefur ítrekað sagt að Banda­ríkja­menn láti ekki ögra sér, og að grannt sé fylgst með gangi mála. Raunar sýndi sam­eig­in­legt lið Suður-Kóreu og Banda­ríkj­anna vald sitt í gær með því að fljúga BB-1 her­þotum yfir Kóreu­skaga og gefa út yfir­lýs­ingar um að öllu því her­valdi verði beitt sem þarf til, ef Norður-Kóreu­menn halda áfram að ógna með kjarn­orku­sprengjum.

Í dag bætt­ist svo viði yfir­lýs­ing frá yfir­völdum í Suður-Kóreu um að höf­uð­borgin í Norður-Kóreu, Pyongyang, verði jöfnuð við jörðu ef öryggi íbúa í Suður-Kóreu verði ógnað með kjarna­vopnum.

Ólíkindatól

Í tíma­rit­inu Foreign Policy segir að kjarn­orku­spreng­ingar Norður-Kóreu sýni glögg­lega hversu mátt­litlar til­raunir Sam­ein­uðu þjóð­anna hafa verið, þegar kemur að því að þvinga Kim Jong-un til sam­starfs við alþjóða­sam­fé­lagið.

Svo virð­ist sem aðgerð­irnar, sem meðal ann­ars fólust í almennum efna­hags­þving­unum og höftum á fjár­magns­flutn­inga til lands­ins, hafi þvert á móti leitt til þess að Norður-Kórea hóf frek­ari til­raunir með kjarn­orku­vopn.

Til við­bótar hafa svo komið tíð skot á flug­skeytum í Jap­ans­haf. Yfirvöld í bæði Kína og Japan hafa lýst yfir áhyggjum sínum vegna þessa, og hvatt Norður-Kóreu til að hætta taf­ar­laust æfingum og til­raunum með lang­dregin flug­skeyti.

Norður-Kórea hefur því mun minna skjól í alþjóða­sam­fé­lag­inu nú en nokkurn tím­ann fyrr, en í gegnum tíð­ina hefur Kína oft verið svo til eina skjólið sem landið hefur haft þegar kemur að alþjóða­samn­ingum.

En hvað er Kim Jong-un að hugsa og hvað gerir hann næst? Af hverju er hann að ögra Suður-Kóreu, Japan, Kína, Banda­ríkja­mönnum og raunar öllu alþjóð­sam­fé­lag­inu með kjarn­orku­sprengjum? Telur hann sig geta kom­ist upp með þetta?

Þegar kemur að þessum spurn­ingum er fremur lítið um áreið­an­leg svör. Það sem helst vekur óhug er að Kim Jong-un virð­ist vera algjört ólík­inda­tól, sem ómögu­legt er að semja við eða reiða sig á. Hann seg­ist sjálfur von­anst til þess að „hinn miklu leið­togi“ Donald J. Trump verði næsti for­seti Banda­ríkj­anna. Hann sé rétti mað­ur­inn til að stýra Banda­ríkj­unum.

Rússar og Bandaríkjamenn standa saman

Önnur vís­bend­ing um hversu alvar­lega þjóðir heims­ins líta á stöðu mála í Norður-Kóreu er sam­eig­in­leg yfir­lýs­ing Sergei Lavrov, utan­rík­is­ráð­herra Rúss­lands, og John Kerry, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, frá því 9 . sept­em­ber. Í henni lýsa þeir yfir áhyggjum sínum vegna til­rauna Norður-Kóreu með kjarn­orku­vopn og segja þær ólíð­andi. Þær ógni öryggi í heim­inum, og séu ögrun við umheim­inn. Blaða­manna­fundur þeirra var hald­inn í Genf, þar sem ástand mála í Sýrlandi var rætt á sér­stökum fundi.

Sameinuðu þjóðirnar máttlausar

Til­raunir Norður-Kóreu með kjarna­orku­sprengjur fara gegn sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna og er búist við að þær verði ræddar ítar­lega á næstu vikum og mán­uðum, bæði á vett­vangi örygg­is­ráðs­ins og einnig helstu stofn­ana þar sem staða lands­ins og ógn­unin sem frá því stafar þessi miss­erin, hefur snertifleti. Það er svo til að bæta gráu ofan á svart, að flóð hafa valdið gríð­ar­legu tjóni í Norður-Kóreu á und­an­förnum dögum og hafa Sam­ein­uðu þjóð­irnar sagt að alþjóð­leg hjálp þurfi að vera til reiðu til að afstýra hörm­ungum. Samtals hafa 133 látið lífið nú þegar, og tug­þús­undir hafa þurft að flýja heim­ili sín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár