Fyrstu tölur úr Norðausturkjördæmi: Framsókn fengið flest talin atkvæði

Fyrstu tölur úr Norð­aust­ur­kjör­dæmi komu í hús rétt um klukkan 23.

Samkvæmt þessum fyrstu tölum er Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn stærsti flokkur kjör­dæm­is­ins en af þeim 7000 atkvæðum sem talin hafa verið í kjör­dæm­inu féllu 649 í skaut Fram­sóknar eða 21,6 pró­sent. Flokk­ur­inn myndi því bæta við sig einum þing­manni og fá þrjá kjörna. Í þeim hópi er Ingi­björg Ólöf Isaksen sem kæmi ný inn á þing.

Flokkur fólks­ins fengi kjör­inn þing­mann í kjör­dæm­inu, Jakob Frímann Magn­ús­son, en fyrir hafði flokk­ur­inn engan.

Þeir flokkar sem missa þing­menn eru ann­ars vegar Vinstri Græn sem fá einn þing­mann og hins vegar Mið­flokk­ur­inn sem missir tvo. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður flokks­ins, mæld­ist inni sem jöfn­un­ar­þing­maður en þegar fyrstu tölur komu úr öðrum kjör­dæmum datt hann út og við bætt­ist einn þing­maður fyrir Viðreisn. Áður voru þing­menn Mið­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi tveir.

Auk Ingi­bjargar og Jakobs eru önnur ný and­lit í hópnum. Berglind Ósk Guð­munds­dóttir mælist inni sem annar þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í kjör­dæm­inu og Hilda Jana Gísla­dóttir mælist inni sem annar þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Þær eru engir nýliðar í stjórn­málum, hafa báðar starfað í sveita­stjórnum.


Talin atkvæði: 3000

Fram­sókn­ar­flokkur: 21,6 pró­sent – 3 þing­menn (+1)

Sjálf­stæð­is­flokkur: 19 pró­sent – 2 þing­menn (-)

Sam­fylk­ingin: 14,7 pró­sent – 2 þing­menn (-)

Vinstri græn: 12,1 pró­sent – 1 þing­menn (-1)

Flokkur fólks­ins: 10,8 pró­sent – 1 þing­maður (+1)

Mið­flokk­ur­inn: 6,4 pró­sent – 0 þing­maður (-2)

Viðreisn: 6 pró­sent – 1 þing­maður (+1)

Píratar: 4,5 pró­sent – 0 þing­menn

Sós­í­alista­flokk­ur­inn: 2,8 pró­sent – 0 þing­menn

Frjáls­lyndi lýð­ræð­is­flokk­ur­inn: 0,2 pró­sent – 0 þing­menn

Auðir seðlar voru 79 tals­ins og aðrir ógildir þrír.

[adspot]

Þingmenn kjörnir 2017:

Sjálf­stæð­is­flokkur 2

Fram­sókn­ar­flokkur 2

Sam­fylk­ingin 2

Vinstri græn 2

Mið­flokk­ur­inn 2

Hér að neðan má sjá loka­þing­sæta­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar fyrir Norð­aust­ur­kjör­dæmi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár