Breska þingið mun ræða aðra þjóðaratkvæðagreiðslu í haust

Yfir fjórar millj­ónir skrif­uðu undir áskorun þess efnis að haldin verði önnur þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um Evr­ópu­sam­bandið í Bret­landi.

Frá mótmælum við Westminster eftir að niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar urðu ljósar.
Frá mót­mælum við Westminster eftir að nið­ur­stöður þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar urðu ljósar. Mynd: EPA

Neðri deild breska þings­ins mun ræða til­lögu um að haldin verði önnur þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um Evr­ópu­sam­bands­að­ild Bret­lands þann 4. sept­em­ber næst­kom­andi.

Ástæðan er ekki vilji stjórn­valda til þess að halda aðra atkvæða­greiðslu, heldur sú að und­ir­skrifta­söfnun þar um náði yfir 100 þús­und und­ir­skriftum, sem er lág­markið til þess að breska þingið verði að taka til greina að hafa umræðu um mál. Sögulega eru und­ir­skrifta­safn­anir sem ná 100 þús­und und­ir­skriftum langoft­ast teknar til umræðu. Und­ir­skrifta­söfn­unin um aðra þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu fékk yfir fjórar millj­ónir und­ir­skrifta, sem er met.

Und­ir­skrifta­söfn­unin var sett af stað af stuðn­ings­manni þess að Bretland yfir­gæfi ESB mán­uði áður en þjóð­ar­at­kvæða­greiðslan fór fram þann 23. júní. Þar var kallað eftir því að rík­is­stjórnin myndi ógilda úrslit atkvæða­greiðsl­unnar ef kosn­inga­þátt­takan væri undir 75% eða ef önnur hvor afstaðan, Leave eða Remain, nýti minna en 60% stuðn­ings. Maðurinn sem setti söfn­un­ina af stað hefur afneitað henni síðan þá og sagði að búið væri að ræna söfn­un­inni.

Umræða í þing­inu þýðir þó ekk­ert form­lega, þar sem það eru stjórn­völd sem taka ákvörðun um þessi mál. Þau hafa nú þegar úti­lokað að önnur þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla verði haldin. Utan­rík­is­ráðu­neytið sendi frá sér yfir­lýs­ingu þar sem kom fram að 33 millj­ónir manna hefðu nú þegar sagt sína skoðun og ákvörðun þeirra beri að virða. „Nú þurfum við að und­ir­búa okkur fyrir ferlið sem fylgir því að yfir­gefa ESB.“

Yfir þús­und lög­menn hafa skrifað undir bréf til David Cameron, frá­far­andi for­sæt­is­ráð­herra, þar sem þeir segja að þjóð­ar­at­kvæða­greiðslan hafi ekki verið bind­andi á nokkurn laga­legan hátt, heldur aðeins ráð­gef­andi. Stjórn­völd ættu því að láta gera sjálf­stæða rann­sókn á kostum og göllum þess að draga sig út úr Evr­ópu­sam­band­inu áður en haldið er áfram með áætl­anir um að yfir­gefa það.

Skoð­ana­könnun sem gerð var fyrir blaðið Independent sýndi að fjórir af hverjum tíu Bretum vildu sjá aðra þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár