Það sem Þórólfur vildi og það sem Svandís gerði

Heil­brigð­is­ráð­herra fer í flestu að til­lögum sótt­varna­læknis um hertar aðgerðir inn­an­lands. Þó er vikið frá þeim í tengslum við trú­ar­sam­komur og veit­inga­staði.

Svona var umhorfs í miðborg Reykjavíkur í upphafi samkomubannsins sem sett var á í mars í fyrra.
Svona var umhorfs í mið­borg Reykja­víkur í upp­hafi sam­komu­banns­ins sem sett var á í mars í fyrra. Mynd: Bára Huld Beck

Hertar reglur um sótt­varn­ar­ráð­staf­anir á lands­vísu taka gildi á mið­nætti í kvöld og gilda í þrjár vikur. Það þýðir að pásk­arnir verða í ár, líkt og í fyrra, með nokkru öðru sniði en við eigum að venj­ast frá fyrri tíð.

Tíu manna fjölda­tak­mörkun verður meg­in­regla, grunn-, fram­halds-, tón­listar- og háskólum verður lokað og marg­vís­leg starf­semi sem rúm­ast ekki innan reglu um 10 manna fjölda­tak­mörkun verður stöðvuð.

Ákvörðun Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra um hertar sótt­varna­að­gerðir bygg­ist á til­lögum sótt­varna­læknis vegna hóp­sýk­inga af völdum breska afbrigðis veirunnar sem upp eru komnar. En í örfáum atriðum fylgir heil­brigð­is­ráð­herra ekki til­lögum Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis.

[adspot]

Þórólfur leggur til: Almennar fjölda­tak­mark­anir verði mið­aðar við 10 manns. Börn fædd 2005 og síðar verði ekki und­an­þegin þar sem að smit hjá börnum er algengt af völdum breska afbrigð­is­ins.

Heil­brigð­is­ráð­herra ákvað: Almennar fjölda­tak­mark­anir 10 manns og ná til allra sem fæddir eru 2014 eða fyrr.

Þórólfur: Sund- og bað­stöðum verði lokað.

Heil­brigð­is­ráð­herra: Sund og bað­staðir lok­aðir.

Þórólfur: Lík­ams­rækt­ar­stöðvum verði lokað.

Heil­brigð­is­ráð­herra: Heilsu- og lík­ams­rækt­ar­stöðvar lok­aðar.

Þórólfur: Íþróttir innan sem utan ÍSÍ, inni og úti, með eða án snert­ingar verði ekki heim­ilar.

Heil­brigð­is­ráð­herra: Íþróttir inni og úti, jafnt barna og full­orð­inna, sem krefj­ast meiri nálægðar en 2 metra eða þar sem hætta er á snert­ismiti vegna sam­eig­in­legs bún­aðar, eru óheim­ilar.

Þórólfur: Sviðs­listir verði bann­aðar

Heil­brigð­is­ráð­herra: Sviðs­listir og sam­bæri­leg starf­semi, svo sem bíó, er óheimil.

Þórólfur: Við athafnir trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga þ.á.m. við útfarir verði að hámarki 20 gestir. Gestum verði skylt að nota and­lits­grímur og tveggja metra nánd­ar­regla verði tryggð. Hámarks­fjöldi í erfi­drykkjum verði 10 manns.

Heil­brigð­is­ráð­herra: Trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lög mega taka á móti 30 gestum við athafnir. Þeir skulu skráðir með nafni, kenni­tölu og síma­núm­eri en þurfa ekki að sitja í núm­eruðum sætum. Gestum er skylt að nota and­lits­grímur og tryggja skal 2 metra regl­una. Hámarks­fjöldi í erfi­drykkjum, ferm­ing­ar­veislum og sam­bæri­legum við­burðum er 10 manns.

Þórólfur: Versl­anir megi taka á móti 5 ein­stak­l­inum á hverja 10 m2 að hámarki 50 manns. 20 starfs­menn mega vera í sama rými og við­skipta­vinir. Gætt skuli að tveggja metra nánd­ar­reglu og skylt að bera and­lits­grímu þar sem regl­una er ekki hægt að við­hafa.

Heil­brigð­is­ráð­herra: Versl­anir mega taka á móti 5 ein­stak­lingum á hverja 10 m2 að hámarki 50 manns. 20 starfs­menn mega vera í sama rými og við­skipta­vinir. Tveggja metra nánd­ar­regla og grímu­skylda.

Þórólfur: Söfn og aðrir opin­berir staðir megi taka á móti að hámarki 10 ein­stak­lingum Gætt skuli að tveggja metra nánd­ar­reglu og skylt að bera and­lits­grímu þar sem regl­una er ekki hægt að við­hafa.

Heil­brigð­is­ráð­herra fjallar ekki sér­stak­lega um þetta í frétta­til­kynn­ingu sinni um ákvörðun sína.

Þórólfur: Skemmti­staðir, krár, spila­salir og spila­kassar verði lok­aðir.

Heil­brigð­is­ráð­herra: Skemmti­staðir, krár, spila­salir og spila­kassar lok­aðir.

Þórólfur: Veit­inga­staðir megi hafa opið til kl. 22 og gestir verði að hámarki 10 í rými og aðeins afgreitt í núm­eruð sæti og gestir skráðir. Vín­veit­ingar ein­ungis bornar fram til sitj­andi gesta. Heimilt verði að hleypa inn nýjum við­skipta­vinum til kl. 21 og skulu gestir hafa yfir­gefið stað­inn kl. 22:00. Gætt skuli að tveggja metra nálægð­ar­mörkum og skylt að hafa grímur þar sem að því verður ekki við komið.

Heil­brigð­is­ráð­herra: Veit­inga­staðir mega hafa opið til kl. 22, með að hámarki 20 gesti í rými sem allir skulu skráðir og fá afgreiðslu í sæti sem eru núm­eruð. Vín­veit­ingar skal bera til sitj­andi við­skipta­vina. Heimilt er að taka á móti nýjum gestum til kl. 21.00.

Þórólfur: Börn í leik­skólum verði und­an­þegin tveggja metra regl­unni og fjölda­tak­mörk­unum. Mælst verði til að grunn-, fram­halds- og háskólar fari nú þegar í páska­frí. Unnið verði að fyr­ir­komu­lagi skóla­halds sem taki gildi eftir páska. Íþrótta­starf barna á leik- og grunn­skóla­aldri verði ekki heim­ilt.

Heil­brigð­is­ráð­herra: Grunn-, fram­halds-, tón­listar- og háskólum verður lokað frá og með morg­un­deg­inum og þar til hefð­bundið páska­frí tekur við. Unnið verður að reglum um fyr­ir­komu­lag skóla­halds að loknu páska­fríi á næstu dögum.

Þórólfur: Ökunám og flug­nám með kenn­ara verði ekki heim­ilt.

Heil­brigð­is­ráð­herra: Ekki fjallað um í frétta­til­kynn­ingu en á blaða­manna­fundi stjórn­valda í dag kom fram að þess­ari til­lögu yrði fylgt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár