Þrjár hópsýkingar – allar af völdum breska afbrigðisins

Breska afbrigði veirunnar er til muna meira smit­andi en flest önnur og norskar rann­sóknir sýna að spít­ala­inn­lagnir eru meira en tvö­falt algeng­ari hjá öllum ald­urs­hópum, einnig hjá börnum eldri en sex ára.

Ellefu börn í einum grunnskóla greindust með veiruna í gær.
Ellefu börn í einum grunn­skóla greindust með veiruna í gær. Mynd: EPA

Und­an­farnar þrjár vikur hafa komið upp þrjár hóp­sýk­ingar inn­an­lands, allar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og eru þær af völdum breska afbrigðis kór­ónu­veirunnar. Rað­grein­ing hefur tengt tvö hópsmitin saman þar sem upp­runinn virð­ist kom­inn frá ein­stak­lingi sem greind­ist á landa­mær­unum. Uppruna þriðju hóp­sýk­ing­ar­innar er hins vegar ekki hægt að rekja.

Þetta kemur fram í minn­is­blaði Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknir þar sem hann leggur til hertar aðgerðir inn­an­lands að nýju. Þær aðgerðir voru kynntar á blaða­manna­fundi í Hörpu í dag.

[links]„Síðustu dag­ana hefur rakn­ing í kring um þriðju hóp­sýk­ing­una sýnt að um 200-300 manns hafa verið útsettir fyrir veirunni síð­ast liðna viku og í gær greindust 11 nem­endur í 6. bekk Laug­ar­nes­skóla smit­aðir og tengj­ast vafa­laust þess­ari hóp­sýk­ingu,“ skrifar Þórólfur. „Þessir nem­endur hafa útsett fjölda ein­stak­linga fyrir smiti á und­an­gengnum dögum.“

Þannig má að sögn Þórólfs telja víst að tölu­verð sam­fé­lags­leg útbreiðsla hafi nú orðið á breska afbrigði kór­ónu­veirunnar sem nauð­syn­legt sé að bregð­ast við. „Rann­sóknir erlendis hafa sýnt að breska afbrigðið er til muna meira smit­andi en flest önnur afbrigði og norskar rann­sóknir sýna að spít­ala­inn­lagnir eru meira en tvö­falt algeng­ari hjá öllum ald­urs­hópum, einnig hjá börnum eldri en sex ára,“ skrifar hann.

[adspot]

Af þessum sökum lagði hann í minn­is­blaði sínu til að farið yrði í sam­bæri­legar aðgerðir og not­aðar voru til að kveða niður þriðju bylgju far­ald­urs­ins. Fjölda­tak­mark­anir verða færðar úr 50 í 10 frá og með mið­nætti og gildir ný reglu­gerð, sem þá tekur gildi, í þrjár vikur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár