Stærsti eigandi Marel fær 25 milljarða að láni og erlendir sjóðir geta eignast 8,1 prósent í félaginu

Það var mikið um að vera hjá Marel, verð­mætasta félag­inu á íslenska hluta­bréfa­mark­að­inum, í gær­kvöldi. Það birti upp­gjör, til­kynnti um tug­millj­arða króna sam­banka­lán og stærsti eig­and­inn gerði samn­ing um að fá 25 millj­arða króna lán.

Eyrir Invest, stærsti eig­andi Marel, hefur fengið 175 millj­ónir evra, um 25,2 millj­arða króna, að láni frá tveimur erlendum fjár­fest­ing­ar­sjóðum JNE Partners LLP og The Baupost Group.

Lánin eru til fjög­urra ára. Í lok þess tíma fá sjóð­irnir rétt til að eign­ast 8,1 pró­sent hlut í Marel, verð­mætasta skráða fyr­ir­tæk­is­ins á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði. frá Eyri Invest. Um er að ræða þriðj­ung af eign­ar­hlut Eyris Invest í Marel en mark­aðsvirði hans við lokun mark­aða í gær var um 31 millj­arður króna.

Bréf í Marel hafa lækkað gríð­ar­lega það sem af er ári, eða um 41 pró­sent. Mark­aðsvirði félags­ins var 663,5 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót en er nú 382,4 millj­arðar króna. Það þýðir að 281,1 millj­arðar króna af virði Marel hafa þurrkast út það sem af er ári.

HNE Partners er þegar hlut­hafi í Marel og Baupost Group hefur umtals­verða reynslu af því að sýsla á Íslandi. Sjóð­ur­inn, sem var stofn­aður og er stýrt af Seth Klarman, er sá sjóður sem hagn­að­ist einna mesta allra á falli íslensku bank­anna.

Nýtt sambankalán og minni hagnaður

Í gær­kvöldi var einnig til­kynnt um að Marel hafi und­ir­ritað samn­ing um nýtt sam­banka­lán til þriggja ára upp á 300 millj­ónir Banda­ríkja­dala, um 43,8 millj­arða króna. Lánið er frá sömu bönkum og komu að 700 milljón evra, 100,8 millj­arða króna, sam­banka­lána­línu til félags­ins í febr­úar 2020,, þ.e. ABN AMRO, BNP Paribas, Danske Bank, HSBC, ING, Rabobank, og UniCredit.

Allt þetta gerð­ist sam­hliða því að Marel birti upp­gjör sitt fyrir fyrstu níu mán­uði árs­ins þar sem fram kom að hagn­aður félags­ins á fyrstu níu mán­uðum árs­ins var 40,2 millj­ónir evra, um 5,8 millj­arðar króna. Það er næstum 40 pró­sent minni hagn­aður en á sama tíma­bili í fyrra. Hagnaður á þriðja árs­fjórð­ungi var 60 pró­sent minni en á sama árs­fjórð­ungi í fyrra. Tekjur Marel hafa hins vegar auk­ist mikið, eða um tæp 23 pró­sent milli ára, og voru tæp­lega 176 millj­arðar króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins.

Þegar Marel birti hálfs­árs­upp­gjör sitt fyrr á árinu sendi félagið frá sér afkomu­við­vörun þar sem rekstr­ar­nið­ur­staða ann­ars árs­fjórð­ungs var undir vænt­ing­um, að uppi­stöðu vegna „áfram­hald­andi áskor­ana tengdum aðfanga­keðju og hárrar verð­bólgu sem leiddi til hæg­ari tekju­vaxtar en vænt var.“ Dag­inn eftir að afkomu­við­vör­unin var send út lækk­uðu hluta­bréf í Marel um tæp ell­efu pró­sent.

Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar kom fram að Marel myndi grípa til aðgerða til að bæta rekstr­ar­af­komu sína þegar í stað. „Til að lækka kostnað hefur sú erf­iða ákvörðun verið tekin að fækka starfs­mönnum félags­ins um fimm pró­sent á heims­vís­u.“

Eyrir Invest hagn­að­ist um rúm­lega 23 millj­arða króna á árinu 2021 ef miðað er við gengi evru í dag. Eigið fé félags­ins var 127,1 millj­arður króna um síð­ustu ára­mót. Það hafði þá auk­ist um 76,5 millj­arða króna síðan í lok árs 2018.

Lang­verð­mætasta eign Eyris er 24,7 pró­sent eign­ar­hlutur í Marel, en Eyrir hefur verið stærsti hlut­haf­inn í Marel frá 2005. Hlut­ur­inn í Marel var met­inn á 156,1 millj­arð króna um síð­ustu ára­mót, sem var um 94 pró­sent af öllum eignum Eyris Invest. Hluta­bréf í Marel, sem er langstærsta félagið í íslensku Kaup­höll­inni ásamt því að vera líka skráð á markað í Amster­dam, hafa lækkað umtals­vert það sem af er árinu 2022, eða um 41,5 pró­sent. Þau hafa hins vegar hækkað um 10,7 pró­sent á síð­ast­liðnum mán­uði. Allt hefur þetta bein áhrif á eigið fé Eyri Invest sem þessum lækk­unum nemur.

Eyrir Invest á auk þess 46,5 pró­sent hlut í Eyri sprotum sem fjár­festir í vaxt­ar­fyrt­ir­tækjum, allt hlutafé í Eyri Ventures og 23,4 pró­sent hlut í sprota­sjóðnum Eyri vexti sem settur var á fót í fyrra. Þá á félagið Eyrir Venture Mana­gement sem ann­ast rekstur sjóð­anna; Eyrir sprotar, Eyrir vöxtur og Eyrir Ventures auk félags­ins Grænt met­anól ehf. sem er 100 pró­sent í eigu Eyris Invest.

Feðgarnir stærstu eigendurnir

Stærstu eig­endur Eyris Invest eru feðgarnir Þórður Magn­ús­son og Árni Oddur Þórð­ar­son, sem einnig er for­stjóri Marel. Þórður á 20,6 pró­sent hlut í Eyri en Árni Oddur 17,9 pró­sent. Sam­an­lagður hlutur þeirra, miðað við upp­lausn­ar­virði sam­kvæmt bók­færðu eigin fé félags­ins, var því 49 millj­arða króna virði um síð­ustu ára­mót.

Þórður Magnússon, stjórnarformaður Eyris Invest.
Þórður Magn­ús­son, stjórn­ar­for­maður Eyris Invest.

Í til­kynn­ingu frá Eyri Invest vegna samn­ings­ins við erlendu fjár­fest­ing­ar­sjóð­ina segir að samn­ing­ur­inn styrki efna­hag Eyris og auð­veldi umtals­verðar end­ur­greiðslur banka­skulda. Þá styðji hann við upp­bygg­ingu og vöxt næstu ára í sam­ræmi við áætl­anir félags­ins. Þar er haft eftir Þórði Magn­ús­syni, stjórn­ar­for­manni Eyris Invest og eins stærsta ein­staka hlut­hafans í félag­inu, að staða Marel sé mjög sterk, þrátt fyrir þá þróun í heims­hag­kerf­inu sem átti hafi sér stað. „Með inn­komu JNE Partners og The Baupost Group er Eyrir nú enn betur í stakk búið til að styðja frekar við Marel sem kjöl­festu­fjár­festir. Samkvæmt þeirri fram­tíð­ar­sýn sem stjórn­endur Marel hafa dregið upp opin­ber­lega má búast við veru­legum vexti og virð­is­aukn­ingu Marel á næstu árum sem og í öðrum eignum í eigna­safni Eyris.“

Almenningur á óbeinan hlut í Marel í gengum Landsbankann

Á meðal ann­arra stórra eig­enda er Lands­bank­inn, sem á 14,1 pró­sent hlut í Eyri Invest, og þar af leið­andi um 3,5 pró­sent óbeinan hlut í Marel í gegnum það eign­ar­hald. Eigandi Lands­bank­ans er íslenska ríkið.

Sá hlutur var um 23,6 millj­arða króna virði í lok júni í fyrra, eftir mikla hækk­un­ar­hr­inu sem átti sér stað sam­hliða því að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á. Alls hækk­uðu hluta­bréf í Marel um 93,2 pró­sent frá því í mars 2020 og til ágúst­loka 2021. Þau næstum tvö­föld­uð­ust. Og virði þeirra bréfa sem Lands­bank­inn heldur á í félag­inu jókst um sama hlut­fall.

Hlutur Lands­bank­ans í Marel er nú met­inn á 13,4 millj­arða króna. Hann hafði lækkað um rúm­lega tíu millj­arða króna á rúmu ári. Þar er því komin stærsta ástæðan fyrir því að hagn­aður Lands­bank­ans var jafn mikið úr takti við hagnað hinna stóru bank­anna tveggja á fyrstu níu mán­uðum árs­ins.

Aðrir sem eiga yfir tíu pró­sent hlut í Eyri Invest eru Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (A- og B-deild) með 14,1 pró­sent hlut og Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna sem á 11,2 pró­sent hlut.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár