Jólasveinar klóra sér í skegginu

Danir íhuga að setja lög sem hafa áhrif á konur sem vilja ganga með búrkur. Lög­gjöfin gæti einnig haft áhrif á jóla­sveina og mót­or­hjóla­kappa.

Danskir þing­menn eru þessa dag­ana með til skoð­unar frum­varp sem óhætt er að full­yrða að eigi sér fáar hlið­stæður. Það snýr að klæðn­aði, nánar til­tekið klæðn­aði sem hylur and­lit. Þótt þetta frum­varp sé bein­línis sett fram til höf­uðs til­teknum höf­uð­bún­aði og and­lits­gervi snertir það marga, til dæmis jóla­svein­inn.

Ef íbúar Norð­ur­landa og kannski fleiri hefðu verið spurðir, fyrir tveimur ára­tugum eða svo, um merk­ingu orð­anna búrka (burka) og niqab er lík­leg­ast að flestir hefðu hváð. Þeim sem tala sænsku hefði kannski dottið í hug bjór­dós, þegar þeir heyrðu fyrra orðið en ekki haft grænan grun um merk­ingu þess síð­ar­nefnda, kannski ímyndað sér eitt­hvað mat­ar­kyns.

En heims­myndin hefur breyst, í dag vita flestir að búrka er ekki bjór­dós og niqab er ekki mat­vara, þessi tvö orði merkja skó­síðan fatnað múslímskra kvenna. Niqab teng­ist einkum Sádi- Arabíu og löndum umhverfis Persaflóa, upp­haf­lega vörn gegn sól og sandi, búrkan er hins­vegar útbreidd­ust í Afganistan og Pakistan. Búrkan, sem oft­ast er blá að lit, hylur allar lík­amann en fyrir aug­unum er eins­konar net. Á niqab, sem er svart að lit, er ein­ungis smá rifa í kringum augun, að öðru leyti er lík­am­inn hul­inn.

Mikil fjölgun múslima

Í mörgum Evr­ópu­löndum hefur múslímum fjölgað tals­vert á síð­ustu árum. Eins og títt er um fólk sem sest að fjarri heima­land­inu vilja múslím­arnir gjarna halda sínum siðum og venjum sem oft á tíðum eru mjög frá­brugðnir því sem tíðkast í ,,nýja“ land­inu. Þetta gildir um matar­æði, fjöl­skyldusiði, trú­ar­iðkun og klæðnað, einkum kvenna. Hið síð­ast­nefnda hefur valdið stjórn­völdum í mörgum Evr­ópu­löndum miklum höf­uð­verk. Samkvæmt trú­ar­siðum múslíma er konum sem klæð­ast skó­síðum búrkum eða niqab und­an­tekn­inga­laust bannað að sýna ókunn­ugum and­lit sitt. Gildir einu hver á í hlut.

Árekstrar og bönn

Árið 1931 settu Ítalir lög sem bönn­uðu klæðnað sem hylur and­lit að hluta eða öllu leyti. Samkvæmt lög­unum geta yfir­völd á til­teknu svæði þó heim­ilað ákveðnar und­an­tekn­ingar frá lög­unum. Árið 2011 tóku gildi í Frakk­landi lög sem banna, að viðlagri sekt, að and­lit sé hulið á almanna­færi. Þessi lög voru mjög umdeild en rök frönsku stjórn­ar­innar voru meðal ann­ars þau að ekki gæti gengið að t.d. lög­regla og kenn­arar gætu ekki vitað hver væri á bak við ,,grímuna“. Margir franskir þing­menn full­yrtu að konur hyldu iðu­lega and­lit sitt að skipan eig­in­manna sinna,eða feðra, ,,gríman“ væri tákn und­ir­ok­unar. Sama ár og Frakkar settu þessi lög fylgdu Belgar í kjöl­farið og síðar Hol­lend­ingar, Aust­ur­rík­is­menn, Lettar, Búlgarar og fleiri þjóðir.

Danir íhuga bann

Í Danmörku býr tals­verður fjöldi múslima og hefur fjölgað nokkuð á síð­ustu árum. Fyrir um það bil þremur árum var á danska þing­inu, Fol­ket­inget, tals­vert rætt um það sem Danir kalla búrku­bann en orðið gildir um hvers kyns klæðnað sem hylur stóran hluta and­lits­ins. Síðan hefur lítið verið um þetta talað, fyrr en nú. Danska útvarpið, DR, birti fyrir nokkrum dögum hluta úr minn­is­blaði sem emb­ætt­is­menn í dóms­mála­ráðu­neyt­inu höfðu samið varð­andi hugs­an­legt búrku­bann. Í minn­is­blað­inu kemur fram að slíkt bann myndi ekki ein­ungis gilda um búrkur og niqab, það myndi stríða gegn lögum um trú­frelsi. Bannið myndi því gilda um hvers konar höf­uð­búnað, sem hylur and­lit að því marki að erfitt sé að bera kennsl á þann sem bún­að­inn ber.

Lambhúshettur, grímur, jólasveinagervi

Danskir fjöl­miðlar hafa síð­ustu daga fjallað mikið um búrku­bannið. Þeir hafa ekki síst velt því fyrir sér hvernig eigi að fram­fylgja þessu banni. Spurn­ing­arnar eru ótal­margar: verður bannað að ganga með lamb­hús­hettu (sem Danir kalla elef­ant­hue)? Slík höf­uð­föt fást í öllum úti­vist­ar­búðum, og mörgum öðrum, og eru vin­sæl meðal hjól­reiða­fólks. Hvað með grímur? Á Strikinu í Kaup­manna­höfn má iðu­lega sjá grímu­k­lætt fólk stand­andi hreyf­ing­ar­laust á kassa með söfn­un­ar­bauk við fætur sér. Samkvæmt lög­unum yrði þetta óleyfi­legt. Hvað með mót­or­hjóla­hjálma (sem lög­bundið er að nota) þeir hylja stóran hluta and­lits­ins. Í minn­is­blað­inu kemur fram að hægt sé að víkja frá lög­unum, en varð­andi slíkar und­an­tekn­ingar er ekki nán­ari útlistun að finna. Þing­maður sem rætt var við spurði hvort lög­reglu­þjónn sem mætti gang­andi manni, með lamb­hús­hettu, ætti kannski að meta hvort hita­stigið væri of hátt til að vera þannig klæddur.

Lögreglan vill skýrar vinnureglur

Í löngu blaða­við­tali, fyrir nokkrum dögum, sagði for­maður félags danskra lög­reglu­manna brýnt, ef búrku­bannið verður leitt í lög, að lög­reglan fái mjög skýrar vinnu­reglur. Það geti ekki gengið að ein­stakir lög­reglu­þjónar eigi að meta hvort sjá eigi í gegnum fingur varð­andi lögin. ,,Slíkt kallar á mis­munun og vand­ræði“.

Jólasveinar hafa áhyggjur

Eitt dönsku dag­blað­anna ræddi við for­mann félags danskra jóla­sveina um búrku­bannið. Í við­tal­inu, sem var á gam­an­sömum nótum, sagði for­mað­ur­inn að þeir svein­arnir hefðu nokkrar áhyggjur af þess­ari hugs­an­legu laga­setn­ingu. ,,Eins og hjá öllum öðrum er skegg­spretta okkar jóla­svein­anna mis­jöfn og þess vegna hafa margir úr okkar hópi orðið að grípa til hjálp­ar­tækja, í formi gervi­skeggs.“ For­mað­ur­inn bætti við að ef hug­myndin um búrku­bann yrði að lögum væri bót í máli ef það gerð­ist fljót­lega ,,við höfum þá all­marga mán­uði til að safna. Þeir okkar sem glíma við sprettu­leysi verða svo ann­að­hvort að fá sér­stakt gervi­skegg­burð­ar­leyfi hjá lög­regl­unni, eða treysta á guð og lukk­una“ sagði for­mað­ur­inn.

For­ystu­menn stjórn­ar­flokk­anna hitt­ast í Herning á Jótlandi í dag, sunnu­dag­inn 28. jan­úar. Meðal þess sem þar er á dag­skrá er búrku­bannið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár