Munum eftir Samstöðu

Flokkur fólks­ins hefur mælst með umtals­vert fylgi í sumar. Annað nýtt afl, Sós­í­alista­flokk­ur­inn, mælist hins vegar vart með nokk­urt fylgi. En skiptir þetta ein­hverju máli? Og er hægt að leita for­dæma í sög­unni sem máta mætti við stöðu flokk­anna tveggja?

Inga Sæland er formaður Flokks fólksins.
Inga Sæland er for­maður Flokks fólks­ins. Mynd: RÚV/Skjáskot

Ein stærstu stjórn­mála­legu tíð­indi sum­ars­ins voru þau að í nýlegri könnun Gallup mæld­ist Flokkur fólks­ins, undir for­ystu Ingu Sæland, með 8,4 pró­sent fylgi. Ef þetta yrðu nið­ur­stöður kosn­inga þá myndi Flokkur fólks­ins ná inn fimm þing­mönnum. Flokk­ur­inn bauð fram í síð­ustu Alþing­is­kosn­ingum og fékk þá 3,5 pró­sent atkvæða sem dugði ekki til að koma manni á þing en nægði til þess að kom­ast á fjár­lög. Flokkur fólks­ins fær10,3 millj­ónir króna á þessu ári og yfir 40 millj­ónir króna á kjör­tíma­bil­inu. Það fé nýt­ist vel til að skipu­leggja flokks­starfið.

Annað nýtt afl sem hefur fengið mikla athygli, Sós­í­alista­flokkur Íslands undir for­ystu Gunnars Smára Egils­sonar, mæld­ist heldur verr í sömu könnun. Einungis fjórir aðspurðra sögð­ust myndu kjósa flokk­inn ef kosið yrði í dag. Það þýddi að flokk­ur­inn mæld­ist með 0,29 pró­sent fylgi.

En hvað þýða þessar tölur fyrir nýju flokk­anna sem eru að reyna að fóta sig í íslenskum stjórn­málum? Er þessi könnun ein­hver vísir á hvað þeir gætu gert í kosn­ingum, í ljósi þess að ekki er fjórð­ungur lið­inn af kjör­tíma­bil­inu?

Því fer nefni­lega fjarri að ný öfl, sem hafa boðað stórar popúl­ískar lausnir á djúp­stæðum og flóknum vanda, hafi ekki áður farið með him­in­skautum en síðan hrapað skarpt. Nær­tæk­asta dæmið sem vert er að minn­ast er Samstaða, flokkur Lilju Mós­es­dóttur.

Lilja og Biggi lögga

Lilja var áber­andi í íslenskum stjórn­málum eftir hrun og eign­að­ist marga fylg­is­menn. Hún boð­aði óhefð­bundnar leiðir og rakst oft á við flokks­fé­laga sína í Vinstri grænum. Lilja sagði sig svo úr þing­flokki Vinstri grænna árið 2011 og tæpu ári síðar var stjórn­mála­flokkur undir for­mennsku henn­ar, Sam­staða - flokkur lýð­ræðis og vel­ferð­ar, stofn­að­ur. Það var 7. febr­úar 2012 og þremur dögum síð­ar, 10. febr­ú­ar, birt­ist könnun á fylgi flokk­anna í Frétta­blað­inu. Þá mæld­ist flokk­ur­inn með 21,3 pró­senta fylgi og fjórtán þing­menn.

Lilja var hins vegar ekki lengi í para­dís. Samstaða hrundi í könn­unum næstu mán­uði og Lilja sagði af sér sem for­maður í ágúst 2012. Þannig ætl­aði hún að axla ábyrgð á fylgis­tap­inu. Í októ­ber það ár var kjör­inn nýr for­mað­ur, Birgir Örn Guð­jóns­son, sem seinna varð frægur á Íslandi sem Biggi lögga.

Þetta breytti engu og í síð­ustu könnun sem Samstaða var mæld í, hjá MMR í febr­úar 2013, var fylgið 0,7 pró­sent. Í sama mán­uði var ákveðið að bjóða ekki fram í kosn­ing­unum sem haldnar voru það vorið.

Hluti af ástæð­unni fyrir því að Samstaða missti sér­stöðu sína var sú að einn meg­in­straums­flokk­anna, og sögu­legu valda­flokk­anna á Íslandi, bauð líka upp á útgáfu af stærsta popúl­íska kosn­inga­lof­orði flokks­ins, að nota fé rík­is­sjóðs til að greiða hluta þjóð­ar­innar skaða­bætur vegna þess að hann hafði verið með verð­tryggð hús­næð­is­lán.

Þjóð­vaki Jóhönnu og Borg­ara­flokkur Alberts hátt upp og niður

Það eru líka eldri dæmi um flokka sem byrja vel en missa fylgi fljótt. Þjóð­vaki Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur mæld­ist með 17,5 pró­senta fylgi fyrst eftir að flokk­ur­inn var stofn­að­ur, sem klofn­ingur út úr Alþýðu­flokknum árið 1995. Fylgið minnk­aði og var mán­uði síðar orðið 10,5 pró­sent og þegar að kosn­ingum kom var fylgið farið niður í 7,2 pró­sent, en það þýddi þó fjóra menn inn á þing.

Sömu sögu má segja af Borg­ara­flokki Alberts Guð­munds­son­ar, sem bauð fram í alþing­is­kosn­ing­unum árið 1987, sem mæld­ist fyrst með um 20 pró­senta fylgi í könn­unum en end­aði með að fá 11 pró­sent í kosn­ing­un­um. Þró­unin var eins hjá Banda­lagi jafn­að­ar­manna, með Vil­mund Gylfa­son í for­ystu, sem byrj­aði mjög hátt en end­aði með rúm­lega sjö pró­senta fylgi.

Besti flokkurinn besta dæmið um góðan árangur

En það eru líka til dæmi af flokkum sem hafa náð miklum árangri í fyrstu kosn­ing­unum eftir að þeir urðu til. Píratar hafa til að mynda náð inn á þing í báðum kosn­ing­unum sem flokk­ur­inn hefur boðið fram í og aukið fylgið umtals­vert á milli þeirra, þótt að þeim hafi ekki tek­ist að halda við gríð­ar­legum vin­sældum sam­kvæmt skoð­ana­könn­unum sem um tíma sýndu þá með hátt í 40 pró­sent fylgi. Besti flokkur Jóns Gnarr er annað dæmi. Þegar hann sigr­aði borg­ina árið 2010 fékk flokk­ur­inn sem lof­aði því að svíkja öll lof­orð 34,7 pró­sent atkvæða.

Syst­ur­flokkur Besta flokks­ins, Björt fram­tíð, náði sömu­leiðis inn á þing í fyrstu til­raun með 8,2 pró­sent atkvæða. Það var reyndar mun lægra en fylgi flokks­ins hafði mælst í könn­unum þar sem það fór mest í 18,6 pró­sent. Og eftir að hafa varla mælst með lífs­marki allt síð­asta kjör­tíma­bil í könn­unum náði Björt fram­tíð að bjarga sér fyrir horn með and­stöðu gegn búvöru­samn­ingum á loka­metr­unum fyrir kosn­ingar, tryggja áfram­hald­andi veru á Alþingi og röt­uðu meira að segja í rík­is­stjórn.

Þar hitti Björt fram­tíð fyrir annað afl sem náði mjög góðum árangri í fyrstu til­raun, Viðreisn. Und­ir­bún­ingur að stofnun Við­reisnar sker sig reyndar aðeins úr, enda stóð hann yfir árum saman, var mjög vel fjár­magn­aður og hvert skref í átt að fram­boði þaul­skipu­lagt. Það skil­aði flokknum 10,5 pró­sent atkvæða í síð­ustu kosn­ingum og í lyk­il­stöðu til að mynda rík­is­stjórn annað hvort til hægri eða vinstri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár