Libra skjálfti hjá seðlabönkum

Áform Facebook um að setja í loftið Libra raf­mynt­ina á næsta ári hafa valdið miklum titr­ingi hjá seðla­bönkum. Hver verða áhrifin? Þegar stórt er spurt, er fátt um svör og óvissan virð­ist valda áhyggjum hjá seðla­bönkum heims­ins.

Mikill skjálfti er nú innan seðla­banka heims­ins vegna áforma sam­fé­lags­miðla- og tækniris­ans Facebook að setja raf­mynt­ina Libra í loftið á næsta ári. Samkvæmt til­kynn­ingum frá fyr­ir­tæk­inu þá er mark­miðið að setja í loftið gjald­miðil sem yrði gjald­gengur í dag­legum við­skiptum í því rúm­lega 2,3 millj­arða manna sam­fé­lagi sem Facebook tengir saman.

Nýtt gjaldmiðlastríð

Eitt af því sem sér­fræð­ingar seðla­banka heims­ins ótt­ast er að þessi áform Facebook geti ýtt af stað atburða­rás, sem eykur á fjár­mála­ó­stöð­ug­leika heims­ins og búið til nýtt gjald­miðla­stríð, að því er fram kemur í umfjöllun Bloomberg.

Jerome Powell, seðla­banka­stjóri Banda­ríkj­anna, eyddi drjúgum tíma í að ræða um áform Facebook þegar hann kynnti þá ákvörðun bank­ans að halda vöxtum óbreyttum í tveimur pró­sentum, í síð­ustu viku. Hann sagði að bank­inn hefði form­lega sett sig í sam­band við Facebook, og sér­fræð­ingar hefðu átt í sam­skiptum um áformin.

Hann ítrek­aði jafn­framt að ekk­ert hefði enn gerst, sem ógn­aði öryggi fjár­mála­kerf­is­ins eða Banda­ríkja­dals­ins, en mik­il­vægt væri að fylgj­ast grannt með því hvernig fram­vindan yrði.

Ýmsar spurn­ingar vakna, þegar kemur að áformum Facebook. Samkvæmt skrifum Yahoo Finance, þá vilja sér­fræð­ingar eft­ir­lits­stofn­anna að stjórn­mála­menn bregð­ist við með hert­ara reglu­verki. Er það mat margra að best sé að stíga var­lega til jarðar, en ekki leyfa hlut­unum að ger­ast hratt, þegar svo mikið er undir eins og fjár­mála­kerfi heilu þjóð­ríkj­anna.

Ekki opnar dyr

Full­trúar sjö stærstu iðn­ríkja heims­ins hafa ákveðið að skoða áhrifin af áformum Facebok sam­eig­in­lega, mun Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn taka þátt í þeirri vinnu. Mark Carney, seðla­banka­stjóri Bret­lands, sagði að eft­ir­lits­stofn­anir myndu nálg­ast áform Facebook með opnum huga, en ekki opnum dyrum. Meta þyrfti allar hliðar máls­ins, áður en gjald­mið­ill­inn yrði settur í loftið.

En hvaða máli skiptir þetta fyrir fólk? Hvað gæti gerst og hver er hugs­unin að baki?

Í fyrsta lagi, er eng­inn með skýr svör við því hvað muni ger­ast þegar Libra fer í loftið og verður gjald­mið­ill í Facebook sam­fé­lag­inu. Með honum vill Facebook bjóða upp á val­kost sem getur til lengri tíma litið verið val­kostur sem gjald­mið­ill í við­skiptum. Líklegt er að hann verði auð­skipt­an­legur yfir í helstu myntir heims­ins, svo sem evru og Banda­ríkja­dal, en ekki er aug­ljóst hvernig útfærsl­urnar verða í upp­hafi.

Ljóst er þó að tæknirisar eins og Facebook - og eftir atvikum fleiri, t.d. Amazon og Apple - búa yfir djúpum gögnum um not­endur, sem geta nýst við að meta áhættu við­skipta, t.d. við að lána. Með því að setja raf­myntir í loftið þá geta mynd­ast mikil hagn­að­ar­tæki­færi, sökum þessa, og mikið sam­keppn­is­for­skot, sem getur ógnað til­veru hefð­bund­inna banka eins og við höfum þekkt hana til þessa.

Áhyggj­urnar eru marg­vís­legar.

Margir óst­t­ast að með því að setja Libra gjald­mið­il­inn í loftið, geti opn­ast flóð­gáttir fyrir pen­inga­þvætti, þar sem eft­ir­lit verður erfitt. Auðvelt verði að koma illa fengnum verð­mætum í verð með raf­mynt­inni.

Facebook hefur reynt að slá á þessar áhyggjur með opin­berum yfir­lýs­ingum, en deild fyr­ir­tæk­is­ins sem vinnur að inn­viða­upp­bygg­ingu fyrir gjald­miðla­kerfið - Calibra - hefur sent frá sér yfir­lýs­ingar um að öll skref verði tekin með yfir­völdum. Eitt af því sem er erfitt er að skil­greina mark­aðs­svæði og hvernig áhrifin verða innan ákveð­inna svæða.

Þannig eft­ir­lits­stofn­anir haft ólíka nálgun eftir löndum, og bannað til­tekna við­skipta­hegðun - eða jafn­vel alveg alla notkun - á meðan önnur svæði verða opn­ari frá fyrstu dögum. Þannig geti mynd­ast stórar fjár­magns­hreyf­ingar sem verði erf­iðar fyrir mörg hag­kerfi, ekki síst þau sem eru lítil og óvarin.

Þannig geta lönd eins og Ísland þurft að gaum­gæfa vel, hvernig áhrifin af auk­inni raf­mynta­væð­ingu geta komið fram og hver áhrifin verða á fjár­mála­stöð­ug­leika.

Miklar sveiflur

Seðla­banki Ástralíu hefur sent frá sér skýrar við­var­anir vegna áforma Facebook. Hann segir að það sé ekki hægt að heim­ila starf­semi sem geti ógnað stöð­ug­leika, og það sé heldur ekki hægt að hleypa of miklum sveiflum inn í hag­kerfin, bara til þess að opna fyrir spenn­andi tækni. Engar auð­veldar leiðir verði í boði fyrir Facebook. Of mikið sé í húfi fyrir almenn­ing.

Þá er líka spurn­ing hvort það sé hægt að treysta Facebook fyrir því að setja gjald­miðil í loftið, eftir allt sem er á undan gengið hjá fyr­ir­tæk­inu. Meðal ann­ars ítrekuð mis­tök fyr­ir­tæk­is­ins, þegar kemur að því að vernda gögn not­enda, og einnig áhrifin á sam­fé­lags­lega umræðum, sem hafa verið veru­lega umdeild á heims­vísu á und­an­förnum árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár