Aðalfundur Brims samþykkti í gær að halda arðgreiðsluáformum félagsins til streitu og greiða út alls 1,9 milljarða króna í arð 30. apríl næstkomandi, vegna frammistöðu síðasta árs.
Á sama fundi var tillaga um heimild stjórnar til að kaupa eigin bréf samþykkt. Sú heimild stendur í 18 mánuði og takmarkast við að Brim má ekki halda á meira en tíu prósent í sjálfu sér á hverjum tíma. Þá má kaupgengi „eigi vera hærra en í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem hærra er.
Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallar Íslands.
Kosning til stjórnar félagsins fór einnig fram, en sex höfðu boðið sig fram í fimm laus sæti. Þar vakti mesta Guðmundur Kristjánsson, forstjóri og stærsti eigandi Brims, vild setjast aftur í stjórn félagsins, en auk hans bauð öll fyrrverandi stjórn félagsins sig áfram til setu.
[adspot]Niðurstaðan var sú að Eggert Benedikt Guðmundsson var ekki kosinn í stjórnina, en hann var forstjóri félagsins á árunum 2005 til 2012 og hafði áður notið stuðnings lífeyrissjóða sem eiga stóran hlut í Brimi til stjórnarsetu.
Brim er einnig á meðal þeirra fyrirtækja sem heilbrigðisráðherra hefur skilgreint sem þjóðhagslega mikilvægt og veitt undanþágu frá samkomubanni.
Miklar sviptingar á fáum árum
Miklar sviptingar hafa verið innan Brims síðastliðinn tæp tvö ár, eða frá því að tilkynnt var að félag sem í dag heitir Útgerðarfélag Reykjavíkur hefði keypt rúmlega þriðjungshlut í félaginu, sem þá hét HB Grandi en var síðar var breytt í Brim, fyrir 21,7 milljarða króna.
Fljótlega eftir þetta var Vilhjálmur Vilhjálmsson, sem hafði verið farsæll forstjóri félagsins um árabil, rekinn úr starfi og tók Guðmundur við stjórnartaumunum sem forstjóri.
[links]Þetta olli deilum í stjórn félagsins og töldu tveir stjórnarmenn félagsins, Rannveig Rist, forstjóri álvers Rio Tinto Alcan í Straumsvík, og Anna G. Sverrisdóttir, ekki rétt að fara út í þessar aðgerðir.
Síðan hafa deilur á meðal hluthafa félagsins verið nokkuð tíðar, meðal annars út af viðskiptum sem Brim hefur átt um kaup á eignum annarra félaga þar sem Guðmundur er aðaleigandi. Gildi lífeyrissjóður seldi til að mynda alla hluti sína í Brim eftir slíkar deilur í fyrra.
Útgerðarfélag Reykjavíkur, í meirihlutaeigu Guðmundar Kristjánssonar, og dótturfélag þess á um 46 prósent eignarhlut í Brimi í dag.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir