Guðmundur forstjóri vill setjast aftur í stjórn Brims

For­stjóri og aðal­eig­andi Brims vill setj­ast aftur í stjórn félags­ins. Alls sækj­ast sex ein­stak­lingar eftir fimm stjórn­ar­sætum.

Guðmundur Kristjánsson.
Guð­mundur Krist­jáns­son. Mynd: Brim

Guð­mundur Krist­jáns­son, for­stjóri og stærsti eig­andi Brims, vill setj­ast aftur í stjórn félags­ins. Hann er á meðal þeirra sex ein­stak­linga sem bjóða sig fram til setu í stjórn­inni, en þar sitja fimm ein­stak­lingar. Núver­andi stjórn býður sig öll áfram til setu og því ljóst að einn úr henni þarf að víkja fyrir Guðmundi, sem er langstærsti hlut­hafi Brims.

Sá sem þarf að víkja verður einn þeirra þriggja karl­manna sem þar situr; Eggert Benedikt Guð­munds­son, Kristján Þ. Dav­íðs­son eða Magnús Gúst­afs­son þar sem lögu um kynja­kvóta hindra að Anna G. Sverr­is­dóttir eða Kristrún Heim­is­dóttir missi sitt stjórn­ar­sæti.

[adspot]Hinn 18. apríl 2018 var til­kynnt um það að Brim hefði keypt rúm­lega þriðj­ungs­hlut í HB Granda, sem síðar var breytt í Brim, af félög­unum Vogun hf. og Fisk­veiði­fé­lag­inu Venusi fyrir 21,7 millj­arða króna.

Fljót­lega eftir þetta var Vil­hjálmur Vil­hjálms­son, sem hafði verið far­sæll for­stjóri félags­ins um ára­bil, rek­inn úr starfi og tók Guð­mundur við stjórn­ar­taumunum sem for­stjóri.

Þetta olli deilum í stjórn félags­ins og töldu tveir stjórn­ar­menn félags­ins, Rannveig Rist, for­stjóri álvers Rio Tinto Alcan í Straums­vík, og Anna G. Sverr­is­dóttir, ekki rétt að fara út í þessar aðgerðir.

Hann hætti í stjórn­inni í kjöl­farið en vill nú aftur inn í hana.

Útgerð­ar­fé­lag Reykja­vík­ur, í meiri­hluta­eigu Guð­mundar Krist­jáns­sonar, og dótt­ur­fé­lag þess á um 46 pró­sent eign­ar­hlut í Brim­i. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár