MS, útgerðir og álver á meðal fyrirtækja sem fá undanþágu frá samkomubanni

Fyr­ir­tæki sem telj­ast „kerf­is­lega og efna­hags­lega mik­il­væg“ hafa fengið und­an­þágu frá tak­mörk­unum sam­komu­banns fyrir starf­semi sína.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra veitir undanþágurnar.
Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra veitir und­an­þág­urnar. Mynd: Bára Huld Beck

Stjórn­völd hafa birt lista yfir þau fyr­ir­tæki sem hafa fengið und­an­þágu frá sam­komu­banni svo unnt sé að halda starf­semi þeirra órof­inni. Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra veitir slíka und­an­þágu eftir sam­ráð við sótt­varna­lækni, almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra og Mat­væla­stofnun. Und­an­þágan tekur til fyr­ir­tækja í stór­iðju, sjáv­ar­út­vegi, mat­væla­fram­leiðslu og annarri mik­il­vægri starf­semi.

Fyr­ir­tækin sem starfa á grund­velli und­an­þágu eru meðal ann­ars Íslands­póstur, Mjólk­ur­sam­salan (MS), Matfugl, Alcoa á Reyða­firði, Norðurál á Grund­ara­tanga, Terra í Hafn­ar­firði og Elkem á Grund­ar­tanga.

Þá hafa nokkur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki fengið und­an­þágu. Þau eru Brim hf. og Fiskkaup hf. í Reykja­vík, Fisk­vinnslan Íslands­saga hf. á Suð­ur­eyri, Guð­mundur Run­ólfs­son hf. á Grund­ar­firði, Hrað­frysti­húsið Gunnvör hf. á Hnífsdal, Ísfélag Vest­manna­eyja hf. og Vinnslu­stöðin í Vest­manna­eyjum, Nes­fiskur ehf. í Garði, Oddi hf., á Pat­reks­firði, Þorbjörn hf. í Grinda­vík, Samherji ehf. og Útgerð­ar­fé­lag Akur­eyr­inga ehf. á Akureyri og Dalvík og Skinney-Þinganes hf. á Horna­firði.

Þá hafa Bænda­sam­tök Íslands átt fund með heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu vegna mögu­legrar und­an­þágu vegna aðild­ar­fé­laga sinna en ekki liggur fyrir hvort ein­hverjir falli undir þá und­an­þágu og þurfi eða sjái sér fært að nýta hana.

[adspot]Í til­kynn­ingu frá stjórn­ar­ráð­inu segir að margar umsóknir hafi borist um und­an­þágur en að flestum þeirra sé hafnað. „Und­an­þágur eru því aðeins veittar að afar brýnir hags­munir liggi að baki sem varði vel­ferð almenn­ings og þjóð­ar­hag.“

Viðmiðin sem horft er til mið­ast við að um sé að ræða „sam­fé­lags­lega ómissandi inn­viði sem mega ekki stöðvast vegna lífs­bjarg­andi starf­semi, svo sem raf­orku, fjar­skipta, sam­gangna, heil­brigð­is­starf­semi, lög­gæslu, sjúkra­flutn­inga og slökkvi­liða. Önnur starf­semi sem mögu­lega getur fallið undir heim­ild til und­an­þágu skv. aug­lýs­ingu heil­brigð­is­ráð­herra um tak­mark­anir á sam­komum er starf­semi fyr­ir­tækja sem telst kerf­is­lega og efna­hags­lega mik­il­væg, svo sem til að tryggja inn­viði, sorp­hirðu, aðföng, mæt­væla­fram­leiðslu, flutn­inga mat­væla, lyfja og ann­arra nauð­synja­vara eða efna­hags­legt öryggi rík­is­ins með útflutn­ingi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár