Mynd: EPA

Rúmlega þriggja milljarða króna greiðsla fer að óbreyttu í ríkissjóð

Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur var í vik­unni dæmt til að greiða Glitni HoldCo tvo millj­arða króna auk drátt­ar­vaxta vegna afleiðu­samn­inga sem gerðir voru í aðdrag­anda hruns­ins. Með drátt­ar­vöxtum nemur upp­hæðin rúmum þremur millj­örðum króna.

Þegar sam­komu­lag náð­ist milli íslenska rík­is­ins og kröfu­hafa Glitnis um greiðslu stöð­ug­leika­fram­lags svo að hægt yrði að ljúka nauða­samn­ingi bank­ans, var ljóst að stærsti hluti alls stöð­ug­leika­fram­lags­ins sem greiddur yrði í rík­is­sjóð úr ranni kröfu­hafa allra föllnu bank­anna myndi koma úr Glitni. Þar mun­aði mestu um allt hlutafé í Íslands­banka, sem ákveðið var á loka­metr­unum að myndi fara til rík­is­ins, en ekki bara afrakst­ur­inn af sölu hans líkt og í til­felli Arion banka.

Ýmsar aðrar eignir, meðal ann­ars ætl­aðar skuldir ákveð­inna ein­stak­linga eða félaga, voru á meðal þeirra sem Glitnir skuld­batt sig að láta rík­inu í té. Á meðal þeirra var allur ávinn­ingur af inn­heimtu afleiðu­samn­inga sem Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur, að mestu í eigu Guð­mundar Krist­jáns­sonar, hafði gert við Glitni haustið 2008. Alls var um 31 samn­ing að ræða og heild­ar­skuld félags­ins við bank­ann vegna upp­gjörs þeirra var áætluð tveir millj­arðar króna. Útgerð­ar­fé­lagið hefur árum saman neitað að greiða þetta upp­gjör og meðal ann­ars borið fyrir sig að Glitnir hafi haft hag af því að fella íslensku krón­una og þar með gert það að verkum að afleiðu­samn­ing­arnir hefðu endað í tapi.

Glitnir hefur alla tíð hafnað þessu og stefndi Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­víkur til að greiða millj­arð­ana tvo. Málið hefur þvælst í dóms­kerf­inu frá árinu 2012 og nið­ur­staða fékkst loks í vik­unni. Fjöl­skip­aður hér­aðs­dómur Reykja­víkur sagði að Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur þyrfti að borga skuld­ina með drátt­ar­vöxtum frá maí­mán­uði 2016.

Sam­an­lögð upp­hæð sem Útgerð­ar­fé­lagið verður að óbreyttu greiða, að með­töldum drátt­ar­vöxtum, er um 3,1 millj­arður króna. Ef nið­ur­staða hér­aðs­dóms hefði verið á þann veg að félagið ætti að greiða drátt­ar­vexti frá haustinu 2008, þá hefði upp­hæðin verið á níunda millj­arð króna.

For­svars­menn Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur hafa ekki tekið ákvörðun um hvort að mál­inu verði áfrýjað eða ekki.

Lykilmenn úr Seðlabankanum báru vitni

Deil­urnar hafa staðið yfir meira og minna frá haustinu 2008. Glitnir höfð­aði mál sum­arið 2012 og krafð­ist þess að Útgerð­ar­fé­lag­ið, sem þá hét enn Brim, myndi greiða millj­arð­anna tvo auk drátt­ar­vaxta. Því var vísað frá árið 2106 en stefnt á ný í kjöl­farið. Þess vegna reikn­ast drátt­ar­vextir frá maí­mán­uði 2016.

Málið hefur tekið á sig margs­konar mynd­ir. Meðal ann­ars kærði Útgerð­ar­fé­lagið fram­ferði Ólafs Eiríks­son­ar, lög­manns Glitnis HoldCo, í dóms­mál­inu til Úrskurð­ar­nefndar lög­manna sem úrskurð­aði í mál­inu þann í lok jan­úar 2018. Þar var hátt­semi hans, sem í fólst að veita lyk­il­vitni rangar upp­lýs­ingar um stað­reyndir og láta hjá líða að til­kynna Útgerð­ar­fé­lag­inu að til stæði að hafa sam­band við vitn­ið, sögð vera aðfinnslu­verð.

Þá kærði Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur til lög­reglu, þann 17. apríl 2018, það sem í árs­reikn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins er kallað þá „hátt­semi að rang­færa sönn­un­ar­gögn“ í dóms­mál­inu. Sú hátt­semi á að hafa falið í sér „að „klippa“ eða fjar­lægja með öðrum hætti, 7 cm neðan af öllum samn­ingum svo að þeir myndu líta út á annan veg en þeir gerð­u.“

Lykilmenn úr Seðlabanka Íslands voru kallaðir fyrir sem vitni í tengslu við greiðslu stöðugleikaframlagsins.
Lyk­il­menn úr Seðla­banka Íslands voru kall­aðir fyrir sem vitni í tengslu við greiðslu stöð­ug­leika­fram­lags­ins.

Það vekur athygli að fyrir dóm voru kall­aðir bæði Haukur C. Bene­dikts­son, starfs­maður Seðla­banka Íslands sem stýrði Eigna­safni Seðla­banka Íslands (ESÍ) um ára­bil, og Steinar Þór Guð­geirs­son, lög­maður Seðla­banka Íslands í tengslum við greiðslu stöð­ug­leika­fram­lags­ins.

Til­gangur þess að láta þá bera vitni var sá að reyna að sýna fram á að Glitnir HoldCo, eign­ar­halds­fé­lagið um eft­ir­stand­andi eignir Glitnis eftir að nauða­samn­ingur bank­ans var klár­aður í des­em­ber 2015, ætti í raun ekki kröf­una sem verið væri að sækja fyrir dómi, heldur íslenska ríkið. Hún hafi verið að meðal þeirra stöð­ug­leika­fram­laga sem greidd hefðu verið til að leysa úr deilum rík­is­ins og kröfu­hafa föllnu bank­anna sem leiddi af sér að hægt yrði að slíta þrota­búum Kaup­þings, Lands­bank­ans og Glitnis og greiða út eft­ir­stand­andi eignir þeirra til rétt­mætra eig­enda. Í lok síð­asta árs var stöð­ug­leika­fram­lagið sem greitt var til rík­is­ins metið á 460 millj­arða króna þegar það hefur inn­heimst að fullu.

Þessi skoðun Útgerð­ar­fé­lags­ins var meðal ann­ars rök­studd með því að kröf­una væri hvergi að finna í árs­reikn­ingi Glitnis HoldCo eftir að stöð­ug­leika­samn­ing­arnir voru gerðir.

Vildu að stöðugleikasamningurinn yrði gerður opinber

Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur óskaði eftir því fyrir dómi að stöð­ug­leika­samn­ing­ur­inn yrði gerður opin­ber og hélt því fram að félagið hefði undir höndum mat frá rík­is­end­ur­skoð­anda sem segði að umræddar kröfur væru í eigu rík­is­sjóðs. Vegna þessa voru Haukur og Steinar kall­aðir fyrir sem vitni. Báðir sögðu þeir að kröfur vegna þeirra afleiðu­samn­inga sem málið snýst um hefðu ekki verið fram­seldar til Seðla­banka Íslands á grund­velli samn­ings um stöð­ug­leika­fram­lag í tengslum við nauða­samn­ing Glitnis. Fyrir liggur hins vegar að tæk­ist Glitni HoldCo að inn­heimta kröf­urnar myndi afrakstur þess fara til rík­is­ins. Það er því rík­is­sjóður sem mun fá millj­arð­anna tvo ef Útgerð­ar­fé­lagið lætur nú staðar numið og borgar.

Í til­kynn­ingu sem Runólfur Viðar Guð­munds­son, fram­kvæmda­stjóri Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur, sendi á fjöl­miðla á þriðju­dags­kvöld, sagði að Haukur hefði óhlýðn­ast dóm­ara máls­ins og neitað að mæta með stöð­ug­leika­samn­ing­inn fyrir dóm. „Vitn­is­burður fram­kvæmda­stjór­ans hjá Seðla­banka Íslands, stang­ast á við full­yrð­ingar í árs­reikn­ingum Glitnis 2015 til 2019, rík­is­reikn­ingi fyrir 2016 og Rík­is­end­ur­skoð­anda. ÚR unir illa úrskurði hér­aðs­dóms sér­stak­lega í ljósi þess að þrotabú Glitnis og full­trúar hins opin­bera kom­ast undan kröfu um að sanna aðild sína að mál­inu. Það skýtur skökku við þegar gerðar eru auknar kröfur af almenn­ingi og hinu opin­bera til einka­að­ila um gagn­sæi að opin­berir aðilar haldi kyrfi­lega leyndum samn­ingum sem þeir gera við þrotabú í eigu erlendra huldu­sjóða og hindri þannig fram­gang eðli­legrar rétt­vísi hér á landi,“ sagði í til­kynn­ing­unni.

Þessum mála­til­bún­aði var þó, líkt og áður sagði, hafnað af hér­aðs­dómi Reykja­víkur.

Eigið fé Útgerðarfélagsins á þriðja tug milljarða

Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur hét um ára­bil Brim. Nafni félags­ins var breytt þegar það keypti ráð­andi hlut í HB Granda á árinu 2018. Nafni HB Granda var svo breytt í Brim á hlut­hafa­fundi í ágúst 2019. Guð­mundur Krist­jáns­son, sem er end­an­legur eig­andi að um 75 pró­sent alls hluta­fjár í Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­víkur og tók sjálfur við sem for­stjóri HB Granda eftir inn­komu sína þar, hefur ávallt verið kenndur við það nafn og kall­aður Guð­mundur í Brim­i. Þar sem fyr­ir­tækið hefur aldrei við­ur­kennt kröfu Glitnis HoldCo þá hefur hún aldrei verið færð í rekstur eða efna­hag þess.

Guðmundur Kristjánsson er aðaleigandi Útgerðarfélags Reykjavíkur. Mynd: Brim.
Guð­mundur Krist­jáns­son er aðal­eig­andi Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur. Mynd: Brim.

Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur er risa­stórt fyr­ir­tæki. Rekstr­ar­tekjur þess á árinu 2018 voru um 22,4 millj­arðar króna ef miðað er við gengi evru í lok þess árs. Hagn­aður af starf­sem­inni var um 1,5 millj­arður króna á því ári.

Eigið fé fyr­ir­tæk­is­ins var 27,3 millj­arðar króna í árs­lok 2018 jókst á milli ára og skuldir þess grynnk­uðu umtals­vert, eða um 6,5 millj­arða króna. Á árinu 2019 á Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur að greiða um 7,7 millj­arða króna af lang­tíma­skuldum til lána­stofn­ana. Skuld­irnar voru þó enn umtals­verðar í árs­lok, alls um 32,4 millj­arðar króna.

Því blasir við að Útgerð­ar­fé­lagið hefur getu til þess að greiða skuld­ina við Glitni HoldCo, sem mun að óbreyttu renna í rík­is­sjóð sem hluti af stöð­ug­leika­fram­lag­inu

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár