Bjarni: Jákvætt að fá banka með framtíðareignarhald

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra segir jákvætt að Arion banki verði skráður á markað og í fyrsta skipti frá hruni fáist banki með fram­tíð­ar­eign­ar­hald.

Bjarni og Sigurður Ingi tókust á í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi.
Bjarni og Sigurður Ingi tók­ust á í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra segir að eng­inn þriggja vog­un­ar­sjóða sem keyptu þriðj­ungs­hlut í Arion banka telj­ist kjöl­festu­fjár­festar og að hver sem er eigi að geta keypt hluti í fjár­mála­fyr­ir­tæki sem skráð sé á mark­aði.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, spurði Bjarna í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag hvort kaup þriggja vog­un­ar­sjóða á eign­ar­hlut í Arion banka séu til þess fallin að auka traust á fjár­mála­kerfið á Íslandi. Þar að auki spurði hann hvort Bjarni teldi vog­un­ar­sjóði vera heppi­lega eig­endur banka og hvort það sé sið­ferð­is­lega verj­andi að einn þess­ara þriggja sjóða sé flæktur í spill­ing­ar­máli.

[adspot]

Bjarni svar­aði að það hefði lengi verið fyr­ir­séð að nýir eig­endur myndu leita nýrra fjár­festa. Hið jákvæða væri að „við fáum banka sem fái eitt­hvað fram­tíð­ar­eign­ar­hald“ í fyrsta skipti frá hruni. Hann þvertók fyrir það að vera sér­stak­lega ánægður með ein­staka eig­endur bank­ans en bætti við að hluta­bréfa­kaup fjár­mála­fyr­ir­tækja á mark­aði séu frjáls.

„Fjár­mála­fyr­ir­tæki eins og öll önnur fyr­ir­tæki sem eru skráð á markað getur gengið kaupum og sölum og hver sem er getur keypt hlut í þeim.“ Bjarni bætti svo við að annað gildi þegar talað er um kjöl­festu­fjár­festa, en hingað til telj­ist eng­inn þeirra vera það.

[links]Þá vitn­aði Sigurður Ingi í einn kaup­end­anna sem sagði að eign­ar­hlut­ur­inn væri tak­mark­aður um 9,99 pró­sent til að tefja ekki sölu­ferlið og að yfir­völd litu það jákvæðum augum. Sigurður Ingi spurði hvaða aðilar það væru sem litu það jákvæðum augum.

Bjarni sagð­ist ekki kann­ast við þessi orð en ítrek­aði að það væri reglu­verk til staðar fyrir virka eig­endur fjár­mála­fyr­ir­tækja. „Það gilda lög í land­inu þegar talað er um kjöl­festu­fjár­festa. Ég hef enga ástæðu til þess að ætla annað en að þar verði farið vel og vand­lega yfir þessi mál.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár