„Auðvitað einungis mannlegur“

Skýrsla Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­mál hefur heldur betur hrist upp í fólki og seg­ist umhverfis- og auð­linda­ráð­herr­ann hafa fundið fyrir von­leysi í kjöl­far útgáfu hennar. Þó hugsi hann fremur í lausnum og hvernig eigi að útfæra þær.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra.
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

„Ég finn alveg fyrir von­leysi rétt eins og hver annar, en líka fyrir von.“ Þetta segir Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, í við­tali við Kjarnann þegar hann er inntur eftir per­sónu­legum við­brögðum við svartri skýrslu milli­ríkja­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­breyt­ingar í heim­inum sem kom út í októ­ber síð­ast­liðnum. Hann segir í þessu sam­hengi auð­vitað vera ein­ungis mann­legur.

Í skýrsl­unni kemur fram að ríki heims hafi aldrei átt jafn langt í land með að upp­fylla mark­mið sín í lofts­lags­málum. Magn gróð­ur­húsa­loft­teg­unda heldur áfram að aukast í and­rúms­loft­inu og hita­stig jarðar heldur áfram að hækka. Skýrslan sýnir fram á að ríki heims hafa ekki gripið til nægi­legra ráð­staf­ana til þess að mark­miðið náist um að hiti á jörð­inni fari ekki yfir 1,5 gráður að jafn­aði.

„Ég er umhverf­is­fræði­mennt­aður og þá gengur maður í gegnum einn stóran sál­fræði­tíma. Vegna þess að þú byrjar að læra um vanda­málin og það tekur langan tíma, því þau eru mörg og víð­feðm. Svo lærir maður hvers konar lausnir og stjórn­tæki við höfum til þess að takast á við þessi vanda­mál. Maður má ekki gef­ast upp áður en komið er í þann hluta. Og ég er á þeim stað núna að vinna við að hugsa í lausnum og fram­kvæma þær. En ég tel mjög mik­il­vægt að maður geri sér grein fyrir umfangi við­fangs­efn­is­ins – hvort sem þú vilt kalla það vanda­mál eða áskorun,“ segir Guð­mundur Ingi.

Í skýrsl­unni segir enn fremur að ríki heims þurfi að þre­falda aðgerðir sínar til þess að hægt verði að halda hita­stigi á jörð­inni innan við tvær gráður, miðað við stöð­una nú. Til þess að hita­stigið fari ekki yfir 1,5 gráður þurfi ríkin að auka þær fimm­falt.

Þrátt fyrir þetta þá seg­ist ráð­herr­ann vera þannig gerður að hann líti svo á að verk­efnin séu spenn­andi og skemmti­leg og trúir hann að þau að muni færa Íslend­inga í rétta átt.

Margt jákvætt verið að gera

[links]Guð­mundur Ingi segir jafn­framt að margt jákvætt sé gert í lofts­lags­mál­unum – bæði inn­an­lands og erlendis – en engu að síður sé þetta risa­vaxið verk­efni. „Það er ekk­ert annað í boði en að vera jákvæður og hrinda verk­efn­unum í fram­kvæmd hverju af öðru. Það er sú veg­ferð sem við byrj­uðum á í haust og hún heldur áfram. Ég get alveg sagt það að ég var búinn að bíða í mörg ár eftir að fá fjár­magn­aða aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum en hún hefur aldrei komið fram áður. Þannig að það eitt og sér er ákveð­inn sigur fyrir umhverfið okkar.“

Hann telur að auð­vitað hefði verið æski­legt að byrjað hefði verið fyrr. „Það sem er þó svo mik­il­vægt er að við náum ein­hvern veg­inn að koma þessum málum á þann stað að ekki komi bakslag og allt verði eins og áður var,“ segir hann.

Loftslagsskýrslan hristi upp í fólki

Þegar Guð­mundur Ingi er spurður hvort þær aðgerðir sem rík­is­stjórnin hefur kynnt í lofts­lags­málum séu nægar þá svarar hann um hæl og segir að sá pakki hafi verið settur fram sem fyrsta skref. „Það var alveg ljóst að við tæki nán­ari grein­ing á þeim aðgerðum sem þar eru lagðar fram. Og þetta var sett í sam­ráðs­gátt til að athuga hvað fólki fynd­ist um þær,“ segir hann.

Nú sé unnið úr þessum umsögnum og tekin inn atriði eins og fyrr­nefnd skýrsla milli­ríkja­nefndar SÞ um lofts­lags­mál. Í því sam­hengi bendir hann á að skýrslan hafi gengið lengra en gengur og ger­ist. „Hún hristi upp í fólki og gerði það mót­tæki­legra,“ segir hann en ráð­herr­ann telur að margir hafi sýnt lofts­lags­málum meiri áhuga og athygli síðan skýrslan kom út.

Það sem bíður Íslend­inga alþjóð­lega sé í fyrsta lagi að fara inn í sam­eig­in­legar aðgerðir Noregs og Evr­ópu­sam­bands­ins. „Ein­fald­lega vegna þess að Evr­ópu­sam­bandið hefur verið leið­andi í þessum málum eins og Norðmenn. Og með því að semja við sam­bandið að vera með í þeirra sam­eig­in­lega mark­miði um að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda þá teljum við okkur frekar geta verið með þeim sem mest gera. Það veitir okkur aðhald og aðstoð,“ segir hann og bendir á smæð Íslands í þessu sam­hengi. „Þá tökum við upp ákveðnar reglu­gerðir frá þeim sem hjálpa okkur til að þess að halda utan um þetta allt saman. Ég tel það mjög mik­il­vægt,“ segir Guð­mundur Ingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár