Borgarleikhúsið auglýsir eftir umsóknum um stöðu leikhússtjóra

Stjórn Leik­fé­lags Reykja­víkur hefur ákveðið að aug­lýsa eftir umsóknum um stöðu leik­hús­stjóra Borg­ar­leik­húss­ins.

Stjórn Leik­fé­lags Reykja­víkur hefur ákveðið að aug­lýsa eftir umsóknum um stöðu leik­hús­stjóra Borg­ar­leik­húss­ins. Stefnt er að því að við­kom­andi hefji störf við und­ir­bún­ing leik­árs­ins 2021 til 2022 í árs­byrjun 2021 en taki svo form­lega við stjórn leik­húss­ins í júlí 2021.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá leik­hús­inu.

„Stjórn LR vill vanda til ráðn­ing­ar­ferlis leik­hús­stjóra til að tryggja sem öfl­ugastan hóp umsækj­enda og eðli­lega sam­fellu í því skap­andi og góða starfi sem fer fram í Borg­ar­leik­hús­inu. Þessi ráð­stöfun gefur nýjum leik­hús­stjóra færi á að koma fyrr að vali verk­efna, ráðn­ingu leik­ara og leik­stjóra. Þá telur stjórn LR einnig að auk­inn fyr­ir­vari á ráðn­ingu leik­hús­stjóra auð­veldi umsækj­endum sem þegar eru í verk­efnum heima eða erlendis að skipu­leggja fram­tíð sína og auki þannig lík­urnar á áhuga­verðum umsóknum,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Starf leik­hús­stjóra Borga­leik­húss­ins verður aug­lýst til umsóknar 16. jan­úar næst­kom­andi og rennur umsókn­ar­frestur út tveimur vikum síðar eða 30. jan­úar 2020.

Vilja undirbúa ráðningu eftirmanns Kristínar tímanlega

Eggert Benedikt Guð­munds­son, for­maður stjórnar Leik­fé­lags Reykja­víkur, segir að Borg­ar­leik­húsið sé þekkt fyrir að vera fram­sækið leik­hús og hafi gengið afar vel und­an­farin ár undir for­ystu Krist­ínar Eysteins­dóttur. „Seinna ráðn­ing­ar­tíma­bil hennar rennur út í júlí 2021, en stjórn LR vill und­ir­búa ráðn­ingu eft­ir­manns hennar tím­an­lega. Stjórnin telur mik­il­vægt að laða að hæfi­leik­a­ríkt sviðs­lista­fólk og fara ótroðnar slóðir við ráðn­ingu stjórn­enda, ekki síst í ljósi þess hve starfs­um­hverfi þeirra hefur breyst að und­an­förnu með fjölgun tæki­færa á alþjóða­vett­vangi. Þannig telur stjórnin að breytt til­högun við ráðn­ingu leik­hús­stjóra auki lík­urnar á áhuga­verðum umsóknum og tryggi að list­rænn metn­aður verði héðan í frá sem hingað til í algjöru fyr­ir­rúmi.“

Kristín Eysteins­dóttir, leik­hús­stjóri Borg­ar­leik­húss­ins, telur það vera mikið heilla­skref að staða Borg­ar­leik­hús­stjóra sé aug­lýst með svona góðum fyr­ir­vara. „Það ber vott um fag­lega nálgun stjórnar enda eru sam­bæri­legar stöður erlendis aug­lýstar að minnsta kosti ári áður en við­kom­andi aðili tekur við. Þetta er gert til að nýr leik­hús­stjóri fái tæki­færi til að und­ir­búa vel komu sína í leik­húsið. Ég mun leggja mig alla fram við að styðja eft­ir­mann minn í þeim und­ir­bún­ingi, enda er það mér mikið hjart­ans mál að leik­hús­stjóra­skiptin séu fag­leg og vel að þeim staðið. Með þessu móti getur nýr leik­hús­stjóri frá fyrsta degi sett skýran svip á starf­semi leik­húss­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár