Dagur: Ég er einn af þúsundum í samfélaginu sem glíma við gigt

Borg­ar­stjór­inn í Reykja­vík segir að sjald­gæfur gigt­ar­sjúk­dómur sem hann greind­ist með í sumar hafi kennt honum ákveðna auð­mýkt. Hann var frá störfum í nokkrar vikur vegna sýk­ingar en kom aftur til starfa í byrjun lið­innar viku.

„Það eru þús­undir ein­stak­linga í þessu sam­fé­lagi sem eru að glíma við gigt. Ég er einn af þeim. Ég ætla að reyna að standa mig gagn­vart heils­unni eins og ég ætla að reyna að standa mig í vinn­unni.“

Þetta sagði Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík, í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarnans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut sem frum­sýnt var á mið­viku­dag. Hægt er að horfa á stiklu úr við­tal­inu hér að neðan.

Dagur hefur verið frá vegna veik­inda und­an­farnar vikur en kom aftur til starfa í byrjun lið­innar viku. Hann greind­ist með fylgi­gigt í sumar, sem er sjald­gæfur gigt­ar­sjúk­dómur, og er á sterkum lyfjum vegna hennar.

Þau lyf eru ónæm­is­bælandi og vegna töku þeirra er meiri hætta á sýk­ingum en ella. „Þetta hefur gengið býsna vel og ég var ansi brattur. Var far­inn að hlaða á mig eins og í gömlu góðu daga, þegar það tók sig upp sýk­ing sem ég var með síð­asta vetur. Ég þurfti tíma til þess að ná henni niður með sýkla­lyfjum og hvíld. En er núna kom­inn aftur til starfa. Ég þarf kannski að passa að fara of geyst.“

[adspot]Dagur seg­ist ekki vita allt um það hvernig sjúk­dóm­ur­inn muni hafa áhrif á sig. „Frændi minn, sem er yngri en ég og fékk gigt í kringum tví­tugt, orð­aði þetta þannig að hann hafi verið þving­aður inn í þroska­stökk sem að hann var kannski ekki alveg að biðja um að taka. En þetta er bara hluti af líf­inu sem kennir manni ákveðna auð­mýkt. Og ég þarf að passa mig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár