Hagnaður bankanna frá hruni kominn í 400 milljarða króna

Stóru við­skipta­bank­arnir þrír, Arion banki, Íslands­banki og Lands­bank­inn högn­uð­ust sam­tals um 26,7 millj­arða króna á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins í ár. Það er rúmum tíu millj­örðum króna meira en á sama tíma­bili í fyrra. Rúmur helm­ingur þess hagn­aðar varð hjá Arion banka. Þetta kemur fram í upp­gjörum bank­anna þriggja fyrir fyrsta árs­fjórð­ung sem birt voru í þess­ari viku.

Alls hafa bank­arnir þrír því hagn­ast um 397,3 millj­arða króna frá því að þeir voru búnir til úr inn­stæðum Íslend­inga og eignum föllnu bank­anna Kaup­þings, Glitnis og Lands­banka Íslands haustið 2008.

Sem fyrr er uppi­staðan í hagn­aði bank­anna tekjur af öðrum rekstri en grunn­rekstri. Þar skiptir virð­is­breyt­ing á hluta­bréfa­eign mestu máli.

Hagnaður stóru við­skipta­bank­anna frá hruni

|

Create infographics

Mikil hækkun á virði hlutabréfa

Arion banki hagn­að­ist um 14,9 millj­arða króna á fyrsta árs­fjórð­ungi árs­ins 2015, eða um 165 millj­ónir króna á dag að með­al­tali. Hagnaður bank­ans á sama tíma í fyrra var 2,9 millj­arðar króna. Hann fimm­fald­að­ist því á milli ára.

Hagn­að­ur­inn er að lang­mestu leyti til­kom­inn vegna ein­skipt­is­at­burða á borð við skrán­ingu og sölu bank­ans á hlutum í fast­eigna­fé­lag­inu Reitum og alþjóða­lega drykkja­fram­leið­and­anum Refresco Gerber. Alls nam hagn­aður vegna þessa liðs 7,5 millj­örðum króna, en hann er ekki sund­ur­liður niður á ein­stakar eignir. Ljóst má þó vera að skrán­ingu Refresco í Hollandi skiptir þarna mestu máli. Til sam­an­burðar má nefna að sami liður, hagn­aður af fjár­fest­ingum, skil­aði Arion banka 334 millj­ónum króna á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2014.

Tekju­lið­ur­inn hefur því meira en tutt­ugu­fald­ast á milli ára. Hagnaður af reglu­legri starf­semi á tíma­bil­inu nam fjórum millj­örðum króna sam­an­borið við 1,7 millj­arða á sama tíma­bili 2014 og heild­ar­eignir námu 1.004,3 millj­örðum króna sam­an­borið við 933,7 millj­arða króna í árs­lok 2014. Eig­in­fjár­hlut­fall Arion banka í lok mars var 23,9 pró­sent. Vaxta- og þókn­ana­tekjur Arion banka voru 9,6 millj­arða króna á tíma­bil­inu og eig­in­fjár­hlut­fall bank­ans er 23,9 pró­sent.

Hefur hagnast mest allra frá hruni

Hagnaður Lands­bank­ans á fyrsta árs­fjórð­ungi 2015 var 6,4 millj­arðar króna eftir skatta. Það er 2,1 millj­arði krónum meiri hagn­aður en á sama tíma­bili í fyrra. Íslenska ríkið á Lands­bank­ann að mestu, en lítil hlutur er í eigu starfs­manna hans. Aðrar rekstr­ar­tekjur bank­ans en af grunn­rekstri á árs­fjórð­ungnum voru um fimm millj­arða króna. Þær voru að miklum hluta til komnar vegna auk­ins hagn­aðar af hluta­bréfum. Lands­bank­inn á hlut í nokkuð mörgum skráðum félögum. Þau eru Reginn, Reitir, Marel, N1, Vodafone og Nýherji.

Vaxta- og þjón­ustu­tekjur bank­ans voru um 8,9 millj­arðar króna og eig­in­fjár­hlut­fallið er 26,7 pró­sent. Lands­bank­inn er áfram með mesta mark­aðs­hlut­deild í nýjum íbúða­lánum. Á fyrsta fjórð­ungi juk­ust þau veru­lega og námu ný lán 12,8 millj­örðum króna, en voru 8,5 millj­arðar á sama tíma á síð­asta ári. Lands­bank­inn bætti líka lang­mestu við sig af íbúða­lánum allra á síð­asta ári. Alls juk­ust íbúða­lán bank­ans til ein­stak­linga þá um 39 millj­arða króna.


Sá eini sem græddi minna en í fyrra


Íslands­banki hagn­að­ist um 5,4 millj­arða króna á árs­fjórð­ungnum. Hann er eini bank­inn sem skilar minni hagn­aði en hann gerði á sama tíma í fyrra, þegar bank­inn græddi 8,4 millj­arða króna. Ástæðan er ein­fald­lega sú að tekjur af ein­skipt­isliðum á borð við hagnað af aflagðri starf­semi var mun meiri þá en nú.

Alls námu rekstr­ar­tekjur bank­ans ell­efu millj­örðum króna og mun­aði þar mest um vaxta- og þókn­ana­tekjur sem sam­tals námu um níu millj­örðum króna. Það eru um 83 pró­sent af rekstr­ar­tekjum hans. Fjár­muna­tekjur eru þó eftir sem áður stór tekju­liður hjá bank­anum, en þær voru 1,7 millj­arður króna á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins. Eig­in­fjár­hlut­fall ‚Islands­banka er 28,4 pró­sent.

Í upp­gjörstil­kynn­ingu bank­ans kemur fram að mikil aukn­ing hafi orðið í nýjum hús­næð­is­lánum hjá honum. Miðað við sama tíma­bil í fyrra nemur aukn­ingin tæpum 60 pró­sentum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár