Vilja endurheimta náttúru- og dýralíf Lundúna

Gangi metn­að­ar­full áform borg­ar­stjóra Lundúna eftir gæti almenn­ings­garð­ur­inn Hyde Park orðið heim­kynni villtra dýra á borð við bjóra og föru­fálka á ný.

Býfluga safnar safa úr blómum í Hyde Park.
Býfluga safnar safa úr blómum í Hyde Park. Mynd: EPA

Sadiq Khan, borg­ar­stjóri Lundúna, vill auka nátt­úru­líf borg­ar­innar með því að gera almenn­ings­garða „villta“ á ný og hvetja fólk til að þöku­leggja þök húsa sinna. Unnið verður að verk­efn­inu í sam­starfi við breska umhverf­is­ráðu­neytið. Ben Goldsmith ráð­herra umhverf­is­mála segir að gangi þessar fyr­ir­ætl­anir eftir verði fleiri villtar teg­undir, bæði gróður og dýr, í borg­ar­land­inu.

Í frétt The Guardian um málið segir að Khan hafi tryggt verk­efn­inu 600 þús­und pund en það er hluti af því mark­miði að ná kolefn­is­hlut­leysi í London. Meira fé þarf til og mun verk­efn­is­stjórn sem skipuð hefur verið leita fram­laga frá einka­að­ilum.

„Allt fólk þarf að finna náin tengsl við nátt­úr­una en þetta er langt í frá raun­veru­leiki margra Lund­úna­búa í dag,“ hefur Guardian eftir Goldsmith. Til að end­ur­heimta „nátt­úru borg­ar­innar okkar,“ segir Goldsmith, munu lækir renna á ný, varp­kössum komið upp fyrir fugla og önnur dýr og teg­undum sem eitt sinn bjuggu á því svæði sem London hefur risið og breitt úr sér á verður komið þar fyrir á ný.

1.600 reitir í London, eða um 20 pró­sent borg­ar­lands­ins, hafa verið skil­greindir sem nátt­úru­svæði. Á þessum svæðum má m.a. finna alla helstu almenn­ings­garða en talið er að nátt­úran eigi undir högg að sækja í um helm­ingi þeirra.

Í verk­efni Khan og Goldsmiths verður ein­blínt á 20-30 þess­ara svæða og m.a. reynt að koma þar aftur upp stofnum föru­fálka, hjart­ar­bjalla og stúf­músa. Markmið borg­ar­stjór­ans er að allir Lund­úna­búar búi í innan við tíu mín­útna göngu­fjar­lægð frá grænum svæðum. Ef vel tekst til er talið að hægt verði að draga úr loft­mengun og flóða­hættu.

Khan hefur minnt á að nær hvergi í heim­inum hafi verið gengið meira á ósnortna nátt­úru en í Bret­landi. „Við verðum að taka djarfar ákvarð­anir í London til að tryggja að við ekki aðeins hægjum á hnignun líf­fræði­legs fjöl­breyti­leika í umhverf­inu heldur að við und­ir­búum jarð­veg­inn fyrir vöxt og breyt­ingar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár