Frelsisbolirnir gjöf frá Stefáni Einari

Bolirnir í anda þess sem Charlie Kirk klædd­ist þegar hann var myrtur eru gjöf til ungra Sjálf­stæð­is­manna frá fjöl­miðla­mann­inum Stefáni Einari Stef­áns­syni. Formaður SUS segir aðsókn­ina á kom­andi sam­bands­þing hafa auk­ist eftir að til­kynnt var um þá.

Nokkra athygli vakti í vik­unni þegar greint var frá því að Samband ungra Sjálf­stæð­is­manna (SUS) hygð­ist gefa öllum sem skráðu sig til þátt­töku á sam­bands­þing þeirra myndu fá að gjöf hvítan bol með orð­inu „Frelsi“ á.

Um er að ræða íslenskaða útgáfu af bolnum sem hægri­s­inn­aði banda­ríski áhrifa­vald­ur­inn var í þegar honum var ráð­inn bani á úti­fundi í Utah fyrr í mán­uð­inum. 

Hugmynd Stefáns Einars

Í tölvu­pósti sem sendur var ungum Sjálf­stæð­is­mönnum sagði að bol­ur­inn væri í sama stíl og bolur Kirks. „Með bolnum viljum við minna á að frelsið er grunn­stef í allri stefnu SUS og að tján­ing­ar­frelsið er horn­steinn vest­rænna sam­fé­laga. Frelsið er aldrei sjálf­gefið, fyrir því þarf ávallt að berj­ast. Sú bar­átta á sér stað með orðum, en aldrei með ofbeldi.“

Fjöl­miðla­mað­ur­inn og þátta­stjórn­and­inn Stefán Einar Stef­áns­son er sá sem greiðir fyrir bol­ina og gefur þannig þátt­tak­endum í sam­bands­þingi SUS þá að …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár