„Mig langar til að hlusta á hann af því að lögin hans gleðja mig“

Kjarninn fjall­aði um svo­kall­aða úti­lok­un­ar­menn­ingu á dög­unum og leit­aði hann til Arnars Eggerts Thorodd­sen til þess að skoða hug­takið betur.

Arnar Eggert
Arnar Eggert Mynd: Aðsend mynd

Arnar Eggert Thorodd­sen, aðjunkt við félags­fræði-, mann­fræði- og þjóð­fræði­deild við HÍ, segir að út frá fræð­unum séu rann­sóknir á úti­lok­un­ar­menn­ingu, eða „cancel culture“ eins og það heitir á ensku, stutt á veg komnar.

Hugtakið hefur ein­ungis verið í notkun í um þrjú ár þrátt fyrir að sögnin að vera „cancelled“ – eða að vera úti­lok­aður – sé aðeins eldri.

Kjarn­inn fjall­aði ítar­lega um úti­lok­un­ar­menn­ingu í síð­ustu viku en Arnar Eggert var einn við­mæl­end­anna. Úti­lok­un­ar­menn­ing gengur út á það að úti­loka ein­stak­linga sem brotið hafa gegn sam­fé­lags­legum gildum og hags­munum þjóð­fé­lags­ins – ýmist með því að hafa tjáð sig á ákveð­inn máta eða gert eitt­hvað á hlut ann­arra.

[adspot]

Arnar Eggert segir það vera áhuga­vert verk­efni fyrir félags­fræð­inga, fjöl­miðla­fræð­inga og mann­fræð­inga að sjá hvernig þessi úti­lokun eigi sér stað því eng­inn einn taki ákvörðun um að úti­loka ein­stak­ling. Frekar sé hægt að segja að ein­hvers konar stemn­ing mynd­ist og í fram­hald­inu verði þessi úti­lokun.

Til þess að kafa betur ofan í hug­takið sé þó best að taka dæmi. Arnar Eggert tekur sjálfur dæmi um það sem liggur næst hjarta hans, tón­list.

Fólki stillt upp við vegg

Morrissey er breskur tón­list­ar­maður og kannski mest þekktur fyrir að vera söngv­ari hljóm­sveit­ar­innar The Smiths sem gerði garð­inn frægan á níunda ára­tugnum og þrátt fyrir stuttan feril hafði hljóm­sveitin gríð­ar­leg áhrif á svo­kall­aða indí-tón­list. Söngv­ar­inn hóf sól­ó­feril eftir að The Smiths hættu en hann hefur verið umdeildur til margra ára. Nú er hann sak­aður um öfga­full hægri­við­horf og ras­isma en sjálfur neitar hann slíku.

Arnar Eggert segir, þegar hann er spurður út í þá pressu að hætta á hlusta á ákveðna lista­menn vegna gjörða þeirra eða orða, að fólki sé þannig stillt upp við vegg. „Ég er til dæmis ekki per­sónu­lega til­bú­inn að hætta að hlusta á Morrissey. Mig langar til að hlusta á hann af því að lögin hans gleðja mig. Sér­stak­lega þá Smiths, ég gæti svo sem lifað af án sól­ó­fer­ils­ins.“

[links]Að hlusta á tón­list er svo per­sónu­leg upp­lifun, að hans mati. „Tónlist skil­greinir þig og er partur af lífi þínu. Það gefur eitt­hvað og lyftir þér upp.“ Svo svekk­elsið verður mikið þegar átrún­að­ar­goðið hagar sé ósæmi­lega eða brýtur af sér með ein­hverjum hætti. Hann spyr hvort það sé þá gild­is­dómur gegn þeim sem hlustar enn á tón­list þess sem hagar sér illa, gild­is­dómur um það hvernig mann­eskja hann er.

Jafn­ingja­þrýst­ingur gæti enn fremur haft áhrif á ákvarð­anir fólks. „Eitt hug­tak úr fjöl­miðla­fræð­inni heitir þagn­ar­svelg­ur­inn, eða „the spiral of silence“ á ensku. Það lýsir sér þannig að ef þú stendur inn í her­bergi með tutt­ugu manns og allir hata til dæmis Morrissey þá er mun lík­legra að þú takir undir það en hitt. Að þú þorir ekki að brjóta gegn fjöld­anum,“ segir hann.

Ákveðin sjálfsritskoðun á sér stað

Fleiri spurn­ingar vakna þó upp þegar rætt er um tón­list­ar­menn og hvort list þeirra hafi eitt­hvað með per­sónu þeirra að gera. Ein þeirra snýst um tím­ann, þ.e. á hvaða tíma­punkti í ferli tón­list­ar­manns sem er úti­lok­aður sé eðli­legt að hætta að hlusta á hann? Arnar Eggert nefnir tón­list­ar­mann­inn Michael Jackson sem dæmi en hann hefur verið ásak­aður í gegnum tíð­ina um gróf kyn­ferð­is­brot gegn börnum. Arnar Eggert spyr í því sam­hengi hvort það sé í lagi að hlusta á plöt­urnar sem hann gerði áður en hann varð full­orð­inn og hver ákveði það í raun.

Hann bendir á að það verði einnig ákveðin sjálfs­rit­skoðun eftir að upp kemst um mál þeirra frægu. „Ég til dæmis er sjálfur hættur að vitna í Woody Allen því ég finn að maður fær alltaf svip. Ég bara sleppi því.“ Þarna á Arnar Eggert við um leik­stjór­ann fræga sem hefur verið ásak­aður um mis­notkun á barni.

En hefur hann fundið fyrir því í eigin brjósti hvort hann vilji hætta að vitna í fyrr­nefndan leik­stjóra eða kom þrýst­ing­ur­inn ein­ungis utan frá? „Ég er bara ekki viss – ég er svona mis­volgur og heitur þegar aðilar eiga í hlut. Með Woody Allen er ég hrein­lega ekki viss. Varðandi Bill Cosby þá finn ég innra með mér að ég hef ekki lyst á því að horfa á þætt­ina hans. Þetta er mjög furðu­legt allt saman.“

Bill Cosby er banda­rískur grínisti sem var sak­felldur fyrir tveimur árum fyrir kyn­ferð­is­brot sem áttu sér stað fyrir meira en ára­tug áður. Mál hans varð umtalað – en lengi hafði verði orðrómur um hegðun hans gagn­vart konum.

Arnar Eggert segir að stóra spurn­ingin sé sú hvort hægt sé að aðgreina lista­mann­inn frá list­inni sjálfri. Hann telur að rosa­lega erfitt sé að svara þeirri spurn­ingu. „Sumir segja að það sé hægt að aðgreina þetta tvennt og aðrir bara alls ekki. Síðan er hægt að rök­ræða það út í hið óend­an­lega. Þetta er í raun stór­heim­speki­leg spurn­ing.“

Útilokunarmenning ekki skammaryrði

Hegðun fólks er oft ólík þeirri sem það sýnir á inter­net­inu. Þannig virð­ist heilt yfir vera auð­veld­ara fyrir fólk að tjá sig og vera leið­in­legt á net­inu, að mati Arnars Eggerts. Auð­veld­ara sé að vera dóna­legur við aðra á net­inu þar sem fólk þurfi ekki standa augliti til auglitis.

Honum finnst þó ekki vera hægt að ganga svo langt að segja að úti­lok­un­ar­menn­ing sé skammar­yrði, eins og sumir vilja halda fram.

„En um leið tek ég undir það að ákveðin stemn­ing í kringum úti­lok­un­ar­menn­ingu lík­ist norna­brennum. Fólk fer offari. Við sjáum stundum hversu mikil hóp­dýr við erum í þessum aðstæðum, við sveifl­umst með stemn­ingu nán­ast án þess að pæla mikið í því.“

Metoo-byltingin jákvæð – en stundum hafi verið farið offari

Þegar Arnar Eggert er spurður út í hvað það þýðir að axla ábyrgð. Hann bendir á að metoo-bylt­ingin hafi fellt stóra menn á borð við Bill Cosby og Harvey Weinstein. Hann segir að þetta séu aug­ljós dæmi um það sem vannst með metoo.

Kvik­­mynda­fram­­leið­and­inn Har­vey Wein­­stein var dæmdur í 23 ára fang­elsi fyrr á þessu ári fyrir kyn­­ferð­is­brot og nauðg­un. Segja má að metoo-bylt­ingin fyrir þremur árum hafi haf­ist með því að konur stigu fram og greindu frá ósæmi­legri og brot­legri hegðun Weinsteins.

„Þegar við sjáum hreina og beina upp­ræt­ingu á ákveðnu mynstri sem hafði við­geng­ist og við­haldið með rosa­legu félags­neti í kringum hann í ára­tugi. Það segir okkur svo mikið um það hvernig við sem mann­eskjur getum geng­ist við ein­hverju með því til dæmis að segja: „Þú veist hvernig hann er.“ Mér finnst það vera svaka­lega jákvæð þróun að setja mörk við svona hegðun,“ segir hann.

Þannig hafi metoo-bylt­ingin verið mjög jákvæð. „En svo eins og með allt þá er stundum farið offari – og það er mjög erfitt að greina hvenær það nákvæm­lega ger­ist. Þá þarf að taka hvert dæmi fyrir sig, vegna þess að þau eru ólík og á mis­mun­andi sviðum.“

[adspot]

Hvað þýðir í raun og veru að vera útilokaður?

Hinir ýmsu leik­arar, stjórn­mála­menn, uppi­stand­arar og lista­menn hafa opin­ber­lega verið úti­lok­aðir – þ.e. kall­aðir til ábyrgðar fyrir gjörðir sínar af sam­fé­lag­inu. Þá má spyrja hvort það að vera úti­lok­aður á inter­net­inu hafi raunaf­leið­ingar. Hefur það raun­veru­leg áhrif á stöðu, vald og áhrif ein­stak­lings­ins?

Fleiri spurn­ingar vakna á borð við hvað það þýði að halda öllu tengsla­neti og starfi þrátt fyrir að vera úti­lok­aður. Hefur hug­takið ein­hverja merk­ingu?

Arnar Eggert segir að sitt sýn­ist hverjum. Hann telur þó að fólk sé annað hvort úti­lokað eða ekki. Sumir hafa kom­ist „í gegn“ og telur hann erfitt að segja hvaða þættir það séu sem valdi því að fólk geti haldið áfram að starfa á sama sviði.

„Björn Bragi tók þannig á því að hann fór aftur í grínið og gerði grín að því sem kom fyrir hann. Fólk er mjög mis­á­nægt með þá nálgun. Það fer kannski líka eftir því hvaða kyni þú til­heyrir, ég varð var við það. Þetta að menn hafi – af því að þeir eru í ákveð­inni styrkri stöðu – ein­hvern veg­inn spilað þetta vel,“ segir hann.

Í þessu sam­hengi veltir hann því fyrir sér hvernig hægt sé að mæla hversu alvar­legt brotið þurfi að vera til þess að fólk sé úti­lokað. „Er í lagi að strjúka óvið­ur­kvæmi­lega? Þarf að nauðga einu sinni, tvisvar eða þrisvar? Hver ákveður það?“ spyr hann.

Hægt er að lesa umfjöll­un­ina um úti­lok­un­ar­menn­ingu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár