Útilokunarmenning: Hin réttláta útilokun eða múgæsingur?

Úti­lok­un­ar­menn­ing gengur út á það að úti­loka ein­stak­linga sem brotið hafa gegn sam­fé­lags­legum gildum og hags­munum þjóð­fé­lags­ins – ýmist með því að hafa tjáð sig á ákveð­inn máta eða gert eitt­hvað á hlut ann­arra.

Úti­lok­un­ar­menn­ing, eða „cancel culture“ eins og hug­takið er kallað á ensku, er til­tölu­lega nýtt fyr­ir­bæri sem varð aðal­lega til á net­inu. Með gríð­ar­lega miklu upp­lýs­inga­flæði og aðgengi almenn­ings að inter­net­inu hefur umræða færst yfir á opin­bera vett­vang­inn og geta allir verið sinn eigin fjöl­mið­ill.

Kost­ur­inn við tækn­ina og þessa nýju þróun er að raddir sem áður fengu aldrei að heyr­ast fá nú tæki­færi til að hljóma. Þeir valda­litlu geta tjáð sig á net­inu án þess að fara í gegnum rit­stjórn stóru miðl­anna – hlið­ar­verðir umræð­unnar eru teknir út úr mynd­inni.

Úti­lok­un­ar­menn­ing gengur út á það að úti­loka ein­stak­linga sem brotið hafa gegn sam­fé­lags­legum gildum og hags­munum þjóð­fé­lags­ins – ýmist með því að hafa tjáð sig á ákveð­inn máta eða gert eitt­hvað á hlut ann­arra. Segja má að um ákveðið félags­legt aðhald sé að ræða. Almenn­ingur sýnir þannig andóf gegn þessum ein­stak­lingum sem brjóta af sér. Bak­hliðin á þessu and­ófi er að stundum skortir mál­efna­lega umræðu og getur gagn­rýni snú­ist upp í per­sónu­legar árásir á net­inu.

Arnar Eggert Thorodd­sen, aðjunkt við félags­fræði-, mann­fræði- og þjóð­fræði­deild við HÍ, segir í sam­tali við Kjarnann að út frá fræð­unum séu rann­sóknir stutt á veg komnar en hug­takið hefur aðeins verið í notkun í um þrjú ár þrátt fyrir að sögnin að vera „cancelled“ – eða að vera úti­lok­aður – sé aðeins eldri.

Hann segir það vera áhuga­vert verk­efni fyrir félags­fræð­inga, fjöl­miðla­fræð­inga og mann­fræð­inga að sjá hvernig þessi úti­lokun eigi sér stað því eng­inn einn taki ákvörðun um að úti­loka ein­stak­ling. Frekar sé hægt að segja að ein­hvers konar stemn­ing mynd­ist og í fram­hald­inu verði þessi úti­lokun.

Til þess að kafa betur ofan í hug­takið sé þó best að taka dæmi. Arnar Eggert tekur sjálfur dæmi um það sem liggur næst hjarta hans, tón­list.

„Mig langar til að hlusta á hann af því að lögin hans gleðja mig“

Morrissey er breskur tón­list­ar­maður og kannski mest þekktur fyrir að vera söngv­ari hljóm­sveit­ar­innar The Smiths sem gerði garð­inn frægan á níunda ára­tugnum og þrátt fyrir stuttan feril hafði hljóm­sveitin gríð­ar­leg áhrif á svo­kall­aða indí-tón­list. Söngv­ar­inn hóf sól­ó­feril eftir að The Smiths hættu en hann hefur verið umdeildur til margra ára. Nú er hann sak­aður um öfga­full hægri­við­horf og ras­isma en sjálfur neitar hann slíku.

Arnar Eggert segir, þegar hann er spurður út í þá pressu að hætta á hlusta á ákveðna lista­menn vegna gjörða þeirra eða orða, að fólki sé þannig stillt upp við vegg. „Ég er til dæmis ekki per­sónu­lega til­bú­inn að hætta að hlusta á Morrissey. Mig langar til að hlusta á hann af því að lögin hans gleðja mig. Sér­stak­lega þá Smiths, ég gæti svo sem lifað af án sól­ó­fer­ils­ins.“

Að hlusta á tón­list er svo per­sónu­leg upp­lifun, að hans mati. „Tónlist skil­greinir þig og er partur af lífi þínu. Það gefur eitt­hvað og lyftir þér upp.“ Svo svekk­elsið verður mikið þegar átrún­að­ar­goðið hagar sé ósæmi­lega eða brýtur af sér með ein­hverjum hætti. Hann spyr hvort það sé þá gild­is­dómur gegn þeim sem hlustar enn á tón­list þess sem hagar sér illa, gild­is­dómur um það hvernig mann­eskja hann er.

Jafn­ingja­þrýst­ingur gæti enn fremur haft áhrif á ákvarð­anir fólks. „Eitt hug­tak úr fjöl­miðla­fræð­inni heitir þagn­ar­svelg­ur­inn, eða „the spiral of silence“ á ensku. Það lýsir sér þannig að ef þú stendur inn í her­bergi með tutt­ugu manns og allir hata til dæmis Morrissey þá er mun lík­legra að þú takir undir það en hitt. Að þú þorir ekki að brjóta gegn fjöld­anum,“ segir hann.

Ákveðin sjálfsritskoðun á sér stað

Fleiri spurn­ingar vakna þó upp þegar rætt er um tón­list­ar­menn og hvort list þeirra hafi eitt­hvað með per­sónu þeirra að gera. Ein þeirra snýst um tím­ann, þ.e. á hvaða tíma­punkti í ferli tón­list­ar­manns sem er úti­lok­aður sé eðli­legt að hætta að hlusta á hann? Arnar Eggert nefnir tón­list­ar­mann­inn Michael Jackson sem dæmi en hann hefur verið ásak­aður í gegnum tíð­ina um gróf kyn­ferð­is­brot gegn börnum. Arnar Eggert spyr í því sam­hengi hvort það sé í lagi að hlusta á plöt­urnar sem hann gerði áður en hann varð full­orð­inn og hver ákveði það í raun.

Hann bendir á að það verði einnig ákveðin sjálfs­rit­skoðun eftir að upp kemst um mál þeirra frægu. „Ég til dæmis er sjálfur hættur að vitna í Woody Allen því ég finn að maður fær alltaf svip. Ég bara sleppi því.“ Þarna á Arnar Eggert við um leik­stjór­ann fræga sem hefur verið ásak­aður um mis­notkun á barni.

En hefur hann fundið fyrir því í eigin brjósti hvort hann vilji hætta að vitna í fyrr­nefndan leik­stjóra eða kom þrýst­ing­ur­inn ein­ungis utan frá? „Ég er bara ekki viss – ég er svona mis­volgur og heitur þegar aðilar eiga í hlut. Með Woody Allen er ég hrein­lega ekki viss. Varðandi Bill Cosby þá finn ég innra með mér að ég hef ekki lyst á því að horfa á þætt­ina hans. Þetta er mjög furðu­legt allt saman.“

Bill Cosby er banda­rískur grínisti sem var sak­felldur fyrir tveimur árum fyrir kyn­ferð­is­brot sem áttu sér stað fyrir meira en ára­tug áður. Mál hans varð umtalað – en lengi hafði verði orðrómur um hegðun hans gagn­vart konum.

Arnar Eggert segir að stóra spurn­ingin sé sú hvort hægt sé að aðgreina lista­mann­inn frá list­inni sjálfri. Hann telur að rosa­lega erfitt sé að svara þeirri spurn­ingu. „Sumir segja að það sé hægt að aðgreina þetta tvennt og aðrir bara alls ekki. Síðan er hægt að rök­ræða það út í hið óend­an­lega. Þetta er í raun stór­heim­speki­leg spurn­ing.“

Útilokunarmenning ekki skammaryrði

Hegðun fólks er oft ólík þeirri sem það sýnir á inter­net­inu. Þannig virð­ist heilt yfir vera auð­veld­ara fyrir fólk að tjá sig og vera leið­in­legt á net­inu, að mati Arnars Eggerts. Auð­veld­ara sé að vera dóna­legur við aðra á net­inu þar sem fólk þurfi ekki standa augliti til auglitis.

Honum finnst þó ekki vera hægt að ganga svo langt að segja að úti­lok­un­ar­menn­ing sé skammar­yrði, eins og sumir vilja halda fram.

„En um leið tek ég undir það að ákveðin stemn­ing í kringum úti­lok­un­ar­menn­ingu lík­ist norna­brennum. Fólk fer offari. Við sjáum stundum hversu mikil hóp­dýr við erum í þessum aðstæðum, við sveifl­umst með stemn­ingu nán­ast án þess að pæla mikið í því.“

Metoo-byltingin jákvæð – en stundum hafi verið farið offari

Þegar Arnar Eggert er spurður út í hvað það þýðir að axla ábyrgð. Hann bendir á að metoo-bylt­ingin hafi fellt stóra menn á borð við Bill Cosby og Harvey Weinstein. Hann segir að þetta séu aug­ljós dæmi um það sem vannst með metoo.

Kvik­­mynda­fram­­leið­and­inn Har­vey Wein­­stein var dæmdur í 23 ára fang­elsi fyrr á þessu ári fyrir kyn­­ferð­is­brot og nauðg­un. Segja má að metoo-bylt­ingin fyrir þremur árum hafi haf­ist með því að konur stigu fram og greindu frá ósæmi­legri og brot­legri hegðun Weinsteins.

„Þegar við sjáum hreina og beina upp­ræt­ingu á ákveðnu mynstri sem hafði við­geng­ist og við­haldið með rosa­legu félags­neti í kringum hann í ára­tugi. Það segir okkur svo mikið um það hvernig við sem mann­eskjur getum geng­ist við ein­hverju með því til dæmis að segja: „Þú veist hvernig hann er.“ Mér finnst það vera svaka­lega jákvæð þróun að setja mörk við svona hegðun,“ segir hann.

Þannig hafi metoo-bylt­ingin verið mjög jákvæð. „En svo eins og með allt þá er stundum farið offari – og það er mjög erfitt að greina hvenær það nákvæm­lega ger­ist. Þá þarf að taka hvert dæmi fyrir sig, vegna þess að þau eru ólík og á mis­mun­andi sviðum.“

Arnar Eggert gagnrýnir ákveðna þætti í útilokunarmenningu en segir að hugtakið ætti þó ekki að vera skammaryrði.
Arnar Eggert gagn­rýnir ákveðna þætti í úti­lok­un­ar­menn­ingu en segir að hug­takið ætti þó ekki að vera skammar­yrði.

Hvað þýðir í raun og veru að vera útilokaður?

Hinir ýmsu leik­arar, stjórn­mála­menn, uppi­stand­arar og lista­menn hafa opin­ber­lega verið úti­lok­aðir – þ.e. kall­aðir til ábyrgðar fyrir gjörðir sínar af sam­fé­lag­inu. Þá má spyrja hvort það að vera úti­lok­aður á inter­net­inu hafi raunaf­leið­ingar. Hefur það raun­veru­leg áhrif á stöðu, vald og áhrif ein­stak­lings­ins?

Fleiri spurn­ingar vakna á borð við hvað það þýði að halda öllu tengsla­neti og starfi þrátt fyrir að vera úti­lok­aður. Hefur hug­takið ein­hverja merk­ingu?

Arnar Eggert segir að sitt sýn­ist hverjum. Hann telur þó að fólk sé annað hvort úti­lokað eða ekki. Sumir hafa kom­ist „í gegn“ og telur hann erfitt að segja hvaða þættir það séu sem valdi því að fólk geti haldið áfram að starfa á sama sviði.

„Björn Bragi tók þannig á því að hann fór aftur í grínið og gerði grín að því sem kom fyrir hann. Fólk er mjög mis­á­nægt með þá nálgun. Það fer kannski líka eftir því hvaða kyni þú til­heyrir, ég varð var við það. Þetta að menn hafi – af því að þeir eru í ákveð­inni styrkri stöðu – ein­hvern veg­inn spilað þetta vel,“ segir hann.

Í þessu sam­hengi veltir hann því fyrir sér hvernig hægt sé að mæla hversu alvar­legt brotið þurfi að vera til þess að fólk sé úti­lokað. „Er í lagi að strjúka óvið­ur­kvæmi­lega? Þarf að nauðga einu sinni, tvisvar eða þrisvar? Hver ákveður það?“ spyr hann.

Um 150 rit­höf­und­ar, aðgerða­sinnar og fræði­menn, meðal ann­ars J.K. Rowl­ing, Marga­ret Atwood, Salman Rushdie og Noam Chomsky, skrif­uðu und­ir opið bréf, sem birt var í júlí síð­ast­liðnum í Harper‘s Magazine, þar sem beðið var um svig­rúm til að hafa ólíkar skoð­anir.

„Við verðum að við­halda mögu­leik­anum á því að geta verið ósam­mála í góðri trú án alvar­legra afleið­inga gagn­vart starfs­ferli okkar. Ef við stöndum ekki vörð um þann grund­völl sem vinna okkar hvílir á þá getum við ekki búist við því að almenn­ingur eða ríkið standi vörð um hann fyrir okkur,“ sagði í loka­orðum bréfs­ins en lesa má bréfið í heild sinni hér að neðan.

Bréfið fékk þó mis­jafnar við­tökur. Margir fögn­uðu umræð­unni en aðrir gagn­rýndu þá sem skif­uðu undir. Rit­höf­und­ur­inn Jennifer Finney Boylan baðst afsök­unar á því að hafa skrifað undir bréfið eftir að hún sá hverjir aðrir skrif­uðu undir það en lík­leg­ast var hún að vísa í und­ir­skrift J.K. Rowling vegna ummæla hennar um trans fólk.

Erfitt að eiga núanseraða umræðu um málið

Kjarninn leit­aði einnig til Elísa­betar Ýrar Atla­dóttur aðgerða­sinna en hún segir að úti­lok­un­ar­menn­ing sé marg­slungið fyr­ir­bæri. Margir vilji jafn­vel halda því fram að fyr­ir­bærið sé ekki til og að stundum sé auð­velt að vísa því á bug sem beisk­leika yfir því að vera úti­lok­aður.

Þá hefur hún enn fremur tekið eftir því að fólk fái ein­hvers konar inter­net-stig fyrir að úti­loka aðra – meðal ann­ars í formi „læka“ og „endur-tísta“.

Að sama skapi séu lang­há­vær­ustu radd­irnar sem kvarta yfir úti­lok­un­ar­menn­ingu frá þeim sem verið sé að gagn­rýna fyrir ras­isma eða kven­hatur. „Þá er auð­velt að taka ekki mark á þeim röddum sem segja að kannski sé þetta orðið vanda­mál,“ segir hún.

Þannig sé erfitt að eiga núanser­aða umræðu um mál­efnið „því allir eru í svo mik­illi vörn og að passa sig svo mikið – og eng­inn vill heldur vera úti­lok­aður sjálfur.“ Ef ein­hver spyr hvort umræður á net­inu séu hugs­an­lega að ganga of langt þá séu líkur á að umræðan snú­ist gegn ein­stak­lingnum sem spyr spurn­ing­ar­innar. Þannig sé ákveðin hræðsla við það að tjá sig um úti­lok­un­ar­menn­ingu.

Fólk skiptist í tvo hópa

Elísabet Ýr segir að við fyrstu sýn virð­ist úti­lok­un­ar­menn­ing vera borð­leggj­andi – en þegar nánar sé að gáð flækj­ast málin.

Fólk skipt­ist iðu­lega í tvo hópa varð­andi úti­lok­un­ar­menn­ingu; með eða á móti. „Þetta er aftur á móti miklu núanser­aðri umræða, sér­stak­lega þegar við spyrjum okkur um hvað verið sé að tala. Erum við að tala um stjórn­mála­menn eða instagram-stjörnur?“ spyr hún. Mikill munir sé þarna á.

Þingmenn Miðflokksins sem sátu á Klaustur bar og viðhöfðu niðrandi ummæli um samferðafólk sitt sitja enn á þingi þrátt fyrir að hafa verið útilokaðir um stund.
Þingmenn Mið­flokks­ins sem sátu á Klaustur bar og við­höfðu niðr­andi ummæli um sam­ferða­fólk sitt sitja enn á þingi þrátt fyrir að hafa verið úti­lok­aðir um stund.

Hún tekur Klaust­ur­málið svo­kallað sem dæmi í þessu sam­hengi. Þar voru stjórn­mála­menn úti­lok­aðir fyrir orð­ræðu sem þeir við­höfðu en þeir héldu störfum sínum áfram þrátt fyrir það eins og ekk­ert hefði í skorist. Hún telur að instagram-stjarnan ætti hugs­an­lega erf­ið­ara með að jafna sig eftir við­líka útskúfun og koma til baka.

Elísabet Ýr bendir enn fremur á að fólk sé í raun aldrei algjör­lega úti­lokað, þ.e. að ein­hver geri eitt­hvað eða segi sem ekki fellur í kramið og að sá hinn sami eigi aldrei aft­ur­kvæmt á sam­fé­lags­miðla.

Útilokunin endist illa

Varðandi við­brögð fólks við því þegar það mis­stígur sig þá telur Elísabet Ýr það skipta máli hvernig ein­stak­ling­arnir sem um ræðir bregð­ist við.

Eitt dæmi þess er þegar Björn Bragi Arn­ars­son, grínisti og uppi­stand­ari, var á sínum tíma úti­lok­aður þegar upp komst um kyn­ferð­is­legt áreiti hans gegn ungri konu í októ­ber 2018 en í kjöl­farið baðst hann afsök­unar og tók stúlkan þeirri afsök­un­ar­beiðni, sem og fjöl­skylda hennar.

Elísabet Ýr segir að þrátt fyrir allt þá hafi það þó ekki verið umræðu­efnið í raun. „Í þessu til­felli náði umræðan að snú­ast þannig að þetta varð að ómerki­legu og pirr­andi umræðu­efni. Þá nennti eng­inn að hugsa um þetta lengur. Hann var þannig „cancelled“ í mjög stuttan tíma.“

Björn Bragi uppistandari lofaði „persónulegra gríni en áður“ þegar hann kynnti nýja sýningu í ágúst í fyrra.
Björn Bragi uppi­stand­ari lof­aði „per­sónu­legra gríni en áður“ þegar hann kynnti nýja sýn­ingu í ágúst í fyrra.

Þessi svo­kall­aða úti­lokun end­ist illa, að hennar mati. „Oft endar þetta með meiri vin­sældum ef þau spila þetta rétt. Ég held reyndar að Björn Bragi hafi ekki náð meiri vin­sældum en hann að minnsta kosti kom út á núlli. Þetta hafði engin sér­stök áhrif á hann. Jú, kannski leið honum illa, ég veit það ekki, en von­andi lærði hann eitt­hvað af þessu. En á end­anum var hann ekki að missa nein gigg.“

Það sama megi segja um Egil Ein­ars­son, eða Gillz eins og hann kall­aði sig, en hann var kærður fyrir nauðgun árið 2011 en kærunni var vísað frá á sínum tíma. „Það má ekk­ert segja um hvernig hann var úti­lok­aður, þú verður bara kærð,“ segir hún.

Konur lenda verr í hakkavélinni en karlar

Elísabet Ýr telur ljóst að auð­veld­ara sé að úti­loka konur en karla. „Það er þetta klass­íska kven­hatur. Það er svo inn­byggt í okkur að ef kona nær langt þá er ógeðs­lega gaman að sjá hana falla. Djöfull finnst fólki það gaman. Og þá er auð­velt að ná konu niður og skemma fyrir henni frekar en karli því mörgum finnst gaman að sjá karl ná árangri. Ef fólk sér karl­inn rif­inn niður þá er eitt­hvað plott í gangi – en ef konan er rifin niður þá á hún það skilið.“

Þessi kynja­vídd er svo lúmsk oft og tíðum, að hennar sögn. Elísabet Ýr segir að Twitter sé ein­stak­lega auð­veldur vett­vangur til að úti­loka fólk, því engin umræða eigi sér raun­veru­lega stað þar. Enginn eigi í raun núanser­aða umræðu þar.

„Mér finnst mjög mikið af konum lenda í hakka­vél­inni á Twitter og lenda verr í henni en nokkurn tím­ann karlar. Þetta er venju­lega ekki fólk með nein völd, bara fólk sem er orðið opin­berar per­sónur vegna þess að það er orðið vin­sælt á til dæmis Instagram. Ekki þurfi mikið að ger­ast til þess að það verði úti­lokað,“ segir hún.

Margir tilbúnir að vera hneykslaðir með þér

Elísabet Ýr bendir enn fremur á að sam­fé­lags­miðlar séu orðnir stór hluti af lífi fólks – og telur hún að ekki sé hægt að fella mikla gild­is­dóma á þá, þ.e. hvort þeir séu góðir eða slæmir fyrir umræð­una. „Þetta er líka svo mik­ill hluti af þró­un­inni sem við erum að ganga í gegnum núna. Allt sam­fé­lagið er í raun komið á sam­fé­lags­miðla, ef þú ert ekki á sam­fé­lags­miðlum þá er nær ómögu­legt að vita hvað þú ert að gera. Ertu til í alvör­unni?,“ segir hún og hlær.

Það sem sé gott og slæmt við sam­fé­lags­miðla er það sem sé gott og slæmt við fólk almennt. „Þetta er svona ýkt á sam­fé­lags­miðlum vegna þess að það er svo auð­velt að þróa eitt­hvert „trend“ á sam­fé­lags­miðlum – og það er rosa­lega auð­velt að láta hneyksl­un­ina verða stóra vegna þess að það eru svo margir til­búnir að vera hneyksl­aðir með þér og það er hægt að finna mjög rétt­mætar ástæður til þess.“

Hún segir létt í bragði að hún sé síð­asta mann­eskjan til að gagn­rýna það þegar fólk hneyksl­ast á net­inu. „Þetta er samt ákveð­inn þroski sem við göngum nú í gegnum. Eftir metoo þá fór það að verða þannig að hægt var að kalla fólk til ábyrgðar. Við erum enn í þeirri öldu; að krefj­ast ábyrgðar af fólki og að læra hvernig það getur gerst. Ég held að þetta sé partur af þeirri þróun, við erum ennþá að læra hvernig við getum kraf­ist ábyrgðar og á sama tíma gert það á hátt sem vit er í – og er á ein­hvern hátt upp­byggi­legur fyrir fólkið sem þarf á þessu að halda. Núna er þetta að mörgu leyti nið­ur­rif en mér finnst þetta vera að þró­ast áfram. Hvert það fer er síðan óljóst.“

Elísabet Ýr segir að erfitt sé að eiga núanseraða umræðu um útilokunarmenningu.
Elísabet Ýr segir að erfitt sé að eiga núanser­aða umræðu um úti­lok­un­ar­menn­ingu.

Erum enn í metoo-bylgju

Varðandi metoo-bylt­ing­una sem hófst fyrir þremur árum og áhrif hennar þá segir Elísabet Ýr að sam­fé­lagið sé enn í þeirri bylgju, þrátt fyrir að hún sé ekki eins stór og áður. Þó rís hún á ólíkum stöðum á ólíkum tímum eins og nú er að ger­ast í Danmörku. Mis­mun­andi bylgjur eigi sér stað innan ólíkra stétta – bylgjan rís og dalar því á mis­mun­andi tímum á mis­mun­andi stöðum.

„Hver ein­asta bylgja skilur eftir sig meiri lær­dóm, þannig að fyrstu bylgj­urnar end­uðu í miklu rifr­ildi þar sem allt var brjálað. Enginn vissi hvernig ætti að haga sér,“ segir hún. Núna aftur á móti sé fólk búið að læra af þess­ari fyrstu umræðu – og þannig verði það sífellt skiln­ings­rík­ara.

„Þessi lær­dómur er ennþá að eiga sér stað og mér finnst ég sjá fólk enn vera að átta sig á því hvernig það á að takast á við þessa umræðu vegna þess að nú eru komin for­dæmi sem ekki voru til áður,“ bendir hún ár.

Ekki hægt að aftengja listamanninn frá listinni – en þetta er ekki svo einfalt

Hvað á þá að gera við lista­menn­ina sem verða upp­vísir að óvið­eig­andi hegðun og list þeirra? Elísabet Ýr seg­ist í því sam­bandi ekki vera með svör á reiðum höndum, þau séu vissu­lega ekki aug­ljós.

„Vegna þess að það er ofsa­lega mikið af mik­il­vægri list og mik­il­vægri fram­för þar sem gott fólk hefur komið að. Mér finnst samt ekki að við getum aftengt lista­mann­inn og list­ina. Það er ákveðin mót­sögn; þú getur ekki aftengt hluti sem tengj­ast. Það er bara ekki hægt,“ segir hún.

Hún vill frekar spyrja hvort eitt­hvað gott sé að koma út úr þessu eða hinu verki eða eitt­hvað slæmt. Það finnst henni skipta meira máli en hvort lista­mað­ur­inn sé „skít­hæll eða ekki“. Hvort verkið sé í raun­inni beint eða óbeint að setja slæm við­horf lista­manns­ins út í sam­fé­lagið.

„Þannig finnst mér ekki hægt að aftengja lista­mann­inn frá verk­inu en að sama skapi finnst mér skipta máli að horfa á verkið og spyrja hvort það sé að setja slæm við­horf út í sam­fé­lagið. Er þetta verk að kenna mér að hata fólk, eða að vera kven­hat­ari eða ekki? Hvað er þetta verk að segja mér?“

Hún hefur mikið velt fyrir sér hug­taki sem nefn­ist skrímsla­væð­ing en með því að afskrímsla­væða ger­endur þá er hægt að gera sér grein fyrir því að góðir menn geta gert slæma hluti. „Mér finnst þetta sam­tal um að aftengja lista­mann­inn lykta af ákveð­inni skrímsla­væð­ingu.“

Erum öll hluti af heildinni

Elísabet Ýr bendir á vanda þegar við tölum um list og úti­lok­un­ar­menn­ingu sem liggur í því hvort við rétt­lætum sjálf list vegna þess að okkur langar að líka við hana. „Frá hvaða stað kemur rétt­læt­ingin?“ spyr hún og bætir því við að hún viti sjálf ekki endi­lega svörin við þessum spurn­ingum.

Elísabet Ýr telur enn fremur mik­il­vægt að ein­stak­ling­svæða ekki umræð­una, þ.e. að segja að þetta sé ein­ungis per­sónu­leg ákvörðun hvers og eins. Hún bendir á að við séum öll hluti af heild­inni; partur af kerf­inu. Þetta sé allt hluti af stærri menn­ingu og ef við getum fundið teng­ing­arnar – og gert það á hátt án þess að smána fólk fyrir skoð­anir þess.

Hver er raunverulega með valdið?

Þegar talið berst að valdi, hefur Elísabet Ýr mikið að segja. Frá því sam­fé­lags­miðlar komu til skjal­anna hefur orð­ræðan verið á þá leið að valdið hafi verið fært að ein­hverju leyti til almenn­ings.

Alltaf þegar hún heyrir orðið vald, þá spyr hún sig: „Hvernig vald?“ Hún segir að vert sé að spyrja þegar talað er um vald hver áhrifin raun­veru­lega séu. Hefur orð­ræða á net­inu virki­lega áhrif á laga­setn­ingar? Ef svarið er nei, þá er ekki um raun­veru­legt vald að ræða, að hennar mati.

„Rosalega mikið af umræðu sem við eigum sem sam­fé­lag er mjög góð og miklu fleiri taka þátt í henni en áður – en svo er kerfið nákvæm­lega eins og það var fyrir fimm­tíu árum. Þarna sé ég ekki raun­veru­legt vald,“ segir hún.

Athygli á samfélagsmiðlum ekki raunverulegt vald

Athygli getur verið afskap­lega yfir­borðs­legt vald, að mati Elisa­betar Ýrar. Hversu mörg „læk“ ein­hver fær á stöðu­upp­færslu á Facebook eða end­ur­deil­ingar á Twitter sé þannig ekki vald. Einungis ef hægt er að gera raun­veru­legar breyt­ingar sé mögu­legt að tala um vald.

Vissu­lega sé auð­veld­ara en áður fyrir fólk að koma sér inn í umræð­una, og jafn­vel færa sér völd – hugs­an­lega sé auð­veld­ara núna að hrinda hug­myndum í fram­kvæmd og ná til fólks sem er með raun­veru­leg völd til að vinna að þeim.

„Ég held aftur á móti að það sé ekk­ert vald falið í umræð­unni, þannig séð. Þetta er kannski svart­sýni en ég hef samt tekið eftir því að þrátt fyrir til dæmis metoo þá eru nákvæm­lega sömu málin í rétt­ar­kerf­inu.“ Þar breyt­ist lítið sem ekk­ert þrátt fyrir metoo.

Elísabet Ýr spyr jafn­framt hvort ein­hver sé raun­veru­lega að hlusta þrátt fyrir að ein­stak­lingar hafi millj­ónir fylgj­enda. „Margir halda að ef þú ert með marga fylgj­endur og færð mörg „læk“ þá sértu með ein­hver völd eða ein­hverja stjórn.“ Hún heldur því fram að hin raun­veru­legu völd liggi hjá þeim sem búa til sjálf lögin og regl­urnar – en ekki þeim sem hafa hvað hæst á sam­fé­lags­miðlum.

Mikilvægt að valdafólk sé dregið til ábyrgðar

Samtalið við Elísa­betu Ýr hófst á því að ræða gagn­rýni á úti­lok­un­ar­menn­ingu. Hún vill því taka það sér­stak­lega fram að hún vilji alls ekki að fólk haldi að hún tali gegn því að fólk láti í sér heyra eða að ein­stak­lingar séu dregnir til ábyrgðar. „Því mér finnst rosa­lega mik­il­vægt að við getum dregið valda­fólk til ábyrgðar. Þá er ég ekki að tala um ein­hverja 16 ára stelpu sem er að vera hálf­viti á inter­net­inu – mér finnst að full­orðið fólk þurfa að haga sér.“

Hún segir að fólk þurfi jafn­framt að geta lært af mis­tökum sínum. „Ég er viss um að hver ein­asta mann­eskja sem hefur verið á inter­net­inu hefur ein­hvern tím­ann verið hálf­viti þar. Það er bara þannig. Þetta er sann­leik­ur­inn, við getum ekki tekið þessa lær­dóma úr okkur. Við þurfum að geta sagt: „Ég hef lært þessa hluti og þeir voru ofsa­lega mik­il­vægir fyrir mig að læra. Þetta er núna í for­tíð­inni hjá mér“ – án þess að ein­hver komi og rifji eitt­hvað eld­gam­alt upp á ein­hverri síðu.“

Varðandi það að úti­lok­un­ar­menn­ing sé ofbeldi út af fyrir sig, eins og sumir hafa haldið fram, þá hlær hún og segir að svo sé ekki. „Rosalega mikið af fólki sem kallar þetta úti­lok­un­ar­menn­ingu er pirrað yfir því að ein­hver sé dreg­inn til ábyrgðar. Að kalla það ofbeldi að benda á ofbeldi eða eitt­hvað sem var gert rangt er ansi fimmára­legt. Ég tek það alls ekki til greina,“ segir hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár