Mynd: Bára Huld Beck

Stóru orð leiðtoganna

Þrír stjórn­mála­menn stíga á svið í dimmum sal þar sem gleðin er vön að vera við völd. En þeir eru alvar­legir og brúna­þungir.

Norð­ur­ljósa­salur Hörpu iðar alla jafna af lífi. Lista­menn stíga á stokk, leika á hljóð­færi, syngja eða dansa, fyrir fullum sal af fólki sem bregst við með hrifn­ing­ar­hrópum, hlátra­sköllum og lófa­klappi. Það sama má segja um tón­listar- og ráð­stefnu­húsið Hörpu í heild, þangað fer fólk til að skemmta sér, nú eða fræð­ast.

Í dag er yfir­bragðið í hús­inu allt annað. Ein­kenni­leg­heitin byrja strax í bíla­kjall­ar­anum þar sem greiðslu­vélin og röðin við hana er allt í einu orðin gróðr­ar­stía fyrir ósýni­legu veiruna sem umlykur allan okkar veru­leika. Engir prúð­búnir tón­leika­gestir eru sjá­an­legir. Og eng­inn er bak­sviðs að hita upp fyrir tón­leika kvölds­ins.

Norð­ur­ljósa­sal­ur­inn á annarri hæð­inni er í fyrstu þrung­inn þögn. Óvenju­legur blaða­manna­fundur er í upp­sigl­ingu. Um gólfið er búið að raða stólum á víð og dreif, allt eftir kúnst­ar­innar reglum sótt­varna­læknis.

Á sviðið stíga svo dökkklæddir og ábúð­ar­fullir leið­togar rík­is­stjórnar Íslands. Þeir koma sér fyrir með góðu milli­bili við púlt sem á standa ekki aðeins vatns­glös til að væta kverkarnar heldur stórir spritt­brúsar. Brúsar sem eru að verða stað­al­bún­aður á hverju heim­ili lands­ins.

Salurinn er dimmur en lýs­ingin þó mjúk. Blá­leitir tónar flæða um rýmið og minna einna helst á útfjólu­blá ljós sól­baðs­stofa eða „blacklight“-ljós dans­staða níunda ára­tug­ar­ins. En hér er engin diskó­kúla að snú­ast og það ríkir bók­staf­lega graf­ar­þögn. Við­staddir, nokkrir blaða­menn og ljós­mynd­arar, spjalla smá­vegis sín á milli hálfum hljóðum.

Alvar­leik­inn er áþreif­an­legur.

„Komið þið sæl og verið vel­komin til þessa blaða­manna­fundar sem tekur mið af þeim for­dæma­lausu tímum sem við lifum á,“ segir Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra. Hún byrjar að tala með kross­lagðar hendur en hættir því fljótt. „Þetta er dálítið eins og vís­inda­skáld­saga að vera staddur hér inni þar sem gert er ráð fyrir tveimur metrum á milli allra þeirra sem hingað eru mættir en það er í anda þeirra aðstæðna sem við stöndum frammi fyrir. Og það eru aðstæður sem við höfum tak­mark­aða þekk­ingu á – eins og raunar öll önnur ríki sem núna glíma við bar­átt­una gegn þessum vágesti sem kór­ónu­veiran er.“

Hún stendur fyrir miðju, með Bjarna Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra sér á vinstri hönd og Sigurð Inga Jóhanns­son sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra á þá hægri.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hóf fundinn á því að segja að uppsetning fundarins væri dálítið eins og vísindaskáldsaga.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hóf fund­inn á því að segja að upp­setn­ing fund­ar­ins væri dálítið eins og vís­inda­skáld­saga.

Að baki þeim á stóru tjaldi stendur skrifað: Við­spyrna fyrir Ísland – efna­hags­að­gerðir stjórn­valda vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru.

Á tjald­inu blasir skjald­ar­merki Íslands einnig við. Og svo má sjá mynd af fuglum, lík­lega álftum, í odda­flugi.

Líf­fræð­ingar hafa lengi leitað skýr­inga á odda­flugi fugla en nýlegar rann­sóknir sýna fram á að hjart­slátt­ar­tíðni þeirra í odda­flugi er lægri en þegar fugl­arnir fljúga einir. Oddaflug dregur líka umtals­vert úr loft­móts­stöðu og þar af leið­andi eyða fugl­arnir minni orku og kom­ast þess vegna lengra án þess að þreyt­ast.

Að fljúga saman er betra.

Að standa saman í þreng­ingum er betra en að fljúga einn.

Það rímar ágæt­lega við það sem leið­tog­arnir þrír eru að fara að segja.

Katrín: „Sögulegt minni okkar sem hér stöndum nær ekki aftur til svipaðra tíma.
Katrín: „Sögulegt minni okkar sem hér stöndum nær ekki aftur til svip­aðra tíma.

„Það er svo að óvissan er mjög mikil,“ segir Katrín. Hún talar rólega, allt að því var­lega, er hún hefur mál sitt. „Sögulegt minni okkar sem hér stöndum nær ekki aftur til svip­aðra tíma. [...] Við öll sem hér búum finnum þetta í okkar nán­asta umhverfi, það er tóm­legt á göt­unum hérna fyrir utan. Fólk heldur tveggja metra fjar­lægð á milli sín í mat­vöru­búðum og það er langt síðan að maður hefur séð fólk faðm­ast og kyss­ast á götum úti. Þessi sam­eig­in­legi óvinur okkar allra er ekki aðeins að hafa mikil áhrif á efna­hags­lífið heldur líka til­ver­una og sam­fé­lagið.“

Katrín segir svo ákveðið að aðgerð­irnar sem kynntar verði á fund­inum séu til næstu vikna og mán­aða en „við erum mjög ein­beitt í því að það verður gert það sem þarf að gera svo að íslenskt sam­fé­lag kom­ist óskaddað frá þessum hremm­ingum.“

Þreng­ing­arnar séu þó tíma­bundnar og það sé mik­il­vægt „að íslenskt sam­fé­lag fari þannig í gegnum þær að við getum náð við­spyrnu hratt þegar að því kemur að það fari að rofa til“.

Það má ráða það af orðum hennar að póli­tískt dæg­ur­þras hefur nú verið lagt til hliðar. Hún segir sam­stöð­una á Alþingi við afgreiðslu frum­varpa í síð­ustu viku hafa glatt sig. „Og kannski var and­inn á Alþingi lýsandi fyrir sam­fé­lagið allt því við höfum fundið það líka, fyrir und­ir­bún­ing þess­ara aðgerða sem kynntar eru í dag [...], að það er ríkur vilji til að standa saman, að við getum leyst úr þessum málum sam­eig­in­lega og látið hvers­dags­legri þrætu­efni liggja á milli hluta á meðan við stöndum í þessu stríði.“

Kjarni aðgerð­anna er að sögn Katrínar sá að verja störf og efna­hags­líf og að tryggja afkomu fólks. Hún kynnir meðal ann­ars til sög­unnar sér­stakan barna­bóta­auka, því „við vitum það að hjá fólki sem á börn er mikið álag um þessar mundir þar sem allt venju­legt skóla­starf er úr lagi gengið“.

Katrín er ekki að teygja lopann. Eftir að fara yfir helstu efna­hags­að­gerð­irnar sem nú á að grípa til lýkur hún máli sínu á þessum orðum: „Heild­ar­um­svif þess­ara aðgerða eru um 230 millj­arðar króna en það jafn­gildir um átta pró­sentum af lands­fram­leiðslu. Þannig að þetta eru alveg gríð­ar­lega mikil umsvif en við teljum að aðstæður séu með slíkum hætti í efna­hags­líf­inu að þær kalli á að við bregð­umst við með sterkum hætti og sýnum það í verki að við séum reiðu­búin...,“ Katrín hikar eitt and­ar­tak og dregur djúpt að sér and­ann, „...til að standa með fólk­inu í land­inu. Því þess vegna erum við hér á vett­vangi stjórn­mál­anna það er af því að við viljum sýna, ekki síst þegar vá steðjar að, að við stöndum öll saman í þessu.“

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra með fuglana í oddaflugi á bak við sig.
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra með fugl­ana í odda­flugi á bak við sig.

Bjarni, óvenju brúna­þungur, beitir rödd­inni ákveðið frá fyrsta orði. „Þessar aðgerðir sem við kynnum hér í dag eru án hlið­stæðu. Við sem stöndum hér ætlum að gera okkar til að létta undir með fólki og fyr­ir­tækjum. En við erum ekki ein. Það ríkir sam­staða. Hvar sem við komum eru allir til­búnir og boðnir og búnir; heil­brigð­is­starfs­fólk, allir í skól­unum, fyr­ir­tækin, stjórn­völd, ríki og sveit­ar­fé­lög, Alþingi, Seðla­bank­inn. Allir Íslend­ingar.“

Hann heldur áfram, rjóður í kinnum, og ákveðnin eykst í rödd­inni frekar en hitt: „Þetta er tví­þætt áskorun; heil­brigð­isvá og efna­hags­vandi. Og til að takast á við þessa áskorun þarf að vinna saman.“

Algjör þögn er í salnum. Áhorf­endur heima í stofu velta fyrir sér: Er eng­inn þarna? Eru þau ein í salnum, þre­menn­ing­arnir sem leiða flokka svo ólíka að upp­lagi að margir efuð­ust um að sam­sett rík­is­stjórn þeirra gæti nokkru sinni orðið að veru­leika?

Bjarni gerir örstutta hvíld á máli sínu og heldur áfram með upp­hafs­orðum sem hann er gjarn á að grípa til opin­ber­lega: „Ég hef oft sagt...,“ byrjar hann, „að við þessar aðstæður væri betra að gera meira og taka af því kostn­að­inn en gera of lítið. Vegna þess að af því gæti hlot­ist mun meira tjón en af því að hafa gert rúm­lega það sem til þurfti.“

Fjár­mála­ráð­herr­ann verður svo per­sónu­legur. Hann leggur fing­ur­góma beggja handa annað slagið saman, fingur sem hann sýndi lands­mönnum í und­ankeppni Söngvakeppni sjón­varps­ins á dög­unum að geta dansað fim­lega um píanó­n­ótur.

„Við viljum létta áhyggjum af fólki,“ segir hann og dregur svo djúpt að sér and­ann. „Við viljum að allir geti hugað að heilsu sinni og við viljum veita öryggi vegna fram­færslu fjöl­skyld­unnar.“

Hann lítur svo á punkt­ana fyrir framan sig og segir: „Það er þess vegna sem við erum hér í dag til að kynna stærstu ein­stöku efna­hags­að­gerðir sög­unnar á Íslandi. Þetta eru afger­andi við­brögð við óvissu og ógn.“

Bjarni talar skýrt og með miklum þunga. Hann tekur hlé á máli sínu, lítur aftur niður á borðið þar sem stóri spritt­brús­inn stendur, lítur svo upp og segir: „Við munum tryggja laun þeirra sem þurfa að fara í sótt­kví. Við viljum með þessu hvetja til réttrar breytni. Það er ekki sjálf­gefið án sér­stakrar trygg­ingar fyrir því að halda launum sínum að allir hefðu verið í stöðu til þess að taka þátt. En með þessu viljum við hjálpa fólki að taka rétta ákvörðun fyrir sam­fé­lagið allt – og fyrir sig.“

Blaðamenn og ljósmyndarar voru vel dreifðir um Norðurljósasalinn á fundinum í dag.
Blaða­menn og ljós­mynd­arar voru vel dreifðir um Norð­ur­ljósa­sal­inn á fund­inum í dag.

Hann hækkar svo örlítið rödd­ina er hann segir með áherslu: „Við erum að hvetja fyr­ir­tæki til að segja ekki upp fólki. Við erum að segja við fyr­ir­tækin í land­inu að við ætlum að standa með ykkur í gegnum þennan tíma. Haldiði fólk­inu hjá ykkur eins langt og þið getið gengið í þeim efnum og þá mun rík­is­sjóður koma til aðstoðar.“

Með fyr­ir­greiðslu sé líka ætl­unin að koma í veg fyrir að fyr­ir­tæki gef­ist upp. „Með því erum við líka að tryggja að fyr­ir­tækin verði til­búin þegar tæki­færin gef­ist á ný. Þetta er það sem ég á við þegar ég segi: Gerum frekar meira núna en að taka skað­ann af því að gera of lítið.“

Hann lýkur svo máli sínu á þessum orðum: „Þetta eru skýr skila­boð um að við ætlum öll að standa saman á erf­iðum tímum. Við ætlum að standa með fólki og kom­ast í gegnum þetta saman.“

Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hóf orð sín á bjartsýnisnótum.
Sigurður Ingi Jóhanns­son sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra hóf orð sín á bjart­sýn­isnótum.

Sigurður Ingi grípur orð Bjarna á lofti og end­ur­tekur inn­tak þeirra: „Gegnum þessa tíma komumst við ekki nema að standa öll saman.“

Hann er nokkuð bjart­sýnn til að byrja með, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, og segir margt benda til að Íslend­ingar muni kom­ast hraðar og von­andi auð­veldar í gegnum far­ald­ur­inn heldur en margar aðrar þjóðir. „Við skulum engu að síður átta okkur á því að við erum ekki komin mjög ofar­lega í brekk­una, við eigum eftir tvær, þrjár, fjórar erf­iðar vikur í þeim slag og við þurfum að halda áfram í þess­ari sam­stöðu um að ná árangri.“

Það séu ekki síst aðgerðir ann­arra landa sem eru að hafa hér stór­kost­leg áhrif og af annarri stærð­argráðu en sést hafi á frið­ar­tímum. „En við vonum engu að síður að allir kom­ist í gegnum þetta og heim­ur­inn kom­ist á eitt­hvert ról, en hann mun hins vegar aldrei verða á sama ról­inu aftur. Við verðum að átta okkur á því að við munum ekki leita inn í nákvæm­lega eins hag­kerfi. [...] Þetta mun breyta mörgu í sam­skiptum í heim­inum og hvernig menn munu hugsa.“

Sigurður minnir svo á að við erum að „kljást við eitt­hvað sem er lif­andi og við vitum ekki nákvæm­lega hvernig það heldur áfram að þró­ast, við vonum auð­vitað það besta, það stytt­ist í vor eftir mjög langan og erf­iðan vetur sem hefur teygt á sál­ar­lífi mjög margra Íslend­inga.“

Forsætisráðherra segir að stjórnvöld séu reiðubúin til að standa með fólkinu í landinu.
For­sæt­is­ráð­herra segir að stjórn­völd séu reiðu­búin til að standa með fólk­inu í land­inu.

Já, vissu­lega er hún lif­andi, nýja kór­ónu­veiran sem jafn­vel undir smá­sjá lítur sak­leys­is­lega út. En er nú búin að heimta um 12.000 manns­líf um allan heim og grein­ast í 473 manns hér á landi.

Síðustu orð Sigurðar Inga á fund­inum eru þau að ef far­ald­ur­inn og áhrif hans drag­ist á lang­inn „þá erum við til í að standa hér aftur með meiri ákvarð­anir um fleiri hluti – og ganga lengra“.

Hag­fræð­ingnum Birni Brynj­úlfi Björns­syni er svo gefið orðið. Hann fer vel yfir aðgerðir stjórn­valda, lið fyrir lið. Leið­tog­arnir draga sig í hlé.

Við höfum mörg hver skemmt okkur yfir því síð­ustu vikur, nú eða rang­hvolft aug­unum, hversu oft ráða­menn og aðrir nota orðið „for­dæma­lausir tímar“ í tengslum við „það ástand sem nú ríkir“.

Í dag not­aði Katrín f-orðið einu sinni.

Og Bjarni einu sinni.

Það þýðir ekki að þau hafi verið að spara stóru orðin. Af þeim var nóg í máli þeirra á fund­inum. Á fundi þar sem stigin voru skref sem miða að því að „verja lífs­kjör og leggja grunn að skjótum efna­hags­bata,“ eins og Björn Brynj­úlfur hag­fræð­ingur segir í lok kynn­ingar sinnar.

Er hann kveður og stígur af svið­inu má enn sjá fugl­ana fljúga í odda­flugi á skjánum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið undanfarið ár