S (15,8%): Eldra fólk sem borðar mikinn fisk, er ekki á Snapchat en fannst Skaupið fyndið

Kjarninn hefur fengið aðgang að miklu magni gagna úr síð­ustu könn­unum MMR sem sýna hver lík­leg­asta áferð með­al­kjós­anda hvers flokks er. Hér að neðan er umfjöllun um kjós­endur Sam­fylk­ingar.

Sjálfstitl­aður jafn­að­ar­manna­flokkur Íslands er næst stærsti flokkur lands­ins sam­kvæmt flestum skoð­ana­könn­unum. Fylgið sam­kvæmt síð­ustu tveimur könnum MMR er 15,8 pró­sent, sem er rétt rúm­lega helm­ingur besta árang­urs flokks­ins í kosn­ingum í sögu hans, en umtals­vert betri staða en haustið 2016, þegar hann fékk rétt yfir fimm pró­sent atkvæða og ein­ungis einn kjör­dæma­kjör­inn þing­mann.

Konur eru lík­legri til að kjósa Sam­fylk­ing­una en karlar og stuðn­ingur við flokk­inn eykst eftir því sem fólk eld­ist. Ef ein­ungis 68 ára og eldri væru með kosn­inga­rétt væri Sam­fylk­ingin stærsti flokkur lands­ins. Í þeim ald­urs­hópi segj­ast 21,8 pró­sent að þeir myndu kjósa Sam­fylk­ing­una. Yngri fólk er hins vegar ólík­legra til að kjósa hana og í ald­urs­hópnum 30-49 ára, sem öllu jafna er einn fyr­ir­ferða­mesti hópur sam­fé­lags­ins hverju sinni, er Sam­fylk­ingin fimmti stærsti flokk­ur­inn. Af þeim sem myndu ná inn á þing mæl­ast ein­ungis Viðreisn og Mið­flokk­ur­inn með minni stuðn­ing í þeim ald­urs­hópi.

Stuðn­ingur við flokk­inn er nokkuð dreifður um landið en þó áber­andi minnstur á Vest­ur­landi og Vest­fjörðum og mestur á Aust­ur­landi, þar sem Sam­fylk­ingin, með 19,4 pró­sent stuðn­ing, mælist stærsti flokkur lands­ins. Tekjur virð­ast ekki vera ráð­andi breyta í því hvort fólk styðji Sam­fylk­ing­una eða ekki. Stuðn­ing­ur­inn er nokkuð jafn óháð því hvort veskið sé þungt eða létt.

Kjós­endur Sam­fylk­ing­ar­innar eru lík­leg­astir allra til að borða mik­inn fisk og hafa umfram aðra breytt hegðun sinni á ein­hvern hátt til að lág­marka áhrif sín á umhverfi og loft­lags­breyt­ingar á síð­ustu tólf mán­uðum. Það kemur ekki mikið á óvart þegar horft er til þess að 96 pró­sent kjós­enda flokks­ins hafa frekar eða mjög miklar áhyggjur af hlýnun jarðar.

Sam­fylk­ing­ar­fólk er ólík­leg­ast allra til að vera á sam­fé­lags­mið­ilnum Snapchat, rúmur þriðj­ungur þess telur efna­hags­stöðu Íslands vera slæma og það er óánægð­ast allra kjós­enda með þá kjara­samn­inga sem Efling og VR gerðu við Samtök atvinnu­lífs­ins í apríl. Þá eru jafn­að­ar­menn­irnir sá hópur kjós­enda sem þú getur síst búist við að fái sér kok­teilsósu með pizzu en átta af hverjum tíu þeirra fannst Ára­mótaskaupið frekar eða mjög gott.

Grein­ingin er hluti af stærri umfjöllun þar sem kjós­endur allra flokka sem eiga full­trúa á Alþingi eru teknir fyrir. Hún byggir á ítar­legum gögnum frá MMR úr könn­unum sem fyr­ir­tækið hefur fram­kvæmt á fylgi flokka í ágúst og sept­em­ber 2019 auk fjölda ann­arra sér­tækra kann­ana um ýmis álita­mál sem MMR hefur fram­kvæmt á þessu ári. Hægt er að lesa heild­ar­um­fjöll­un­ina hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár