Vigdís segir RÚV „knésetja íslenskan landbúnað“

Vigdís Hauks­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­maður fjár­laga­nefndar, segir að umfjöllun RÚV um Brúnegg sé gerð „til þess að kné­setja íslenskan land­búnað.“ Það sé „agenda RÚV og "góða fólks­ins".“

Þetta kemur fram á Facebook-síðu Vigdísar. Þar sakar hún Kastljós líka um að falsa mynd­irnar sem birt­ust í þætt­inum í gær­kvöldi og segir þátt­inn þekktan fyrir að falsa myndir með umfjöllun. „Voru þessar myndir frá búinu? Voru þessar myndir kannski frá öðru hæsna­búi í öðru landi? Kastljós er þekkt fyrir að falsa myndir með umfjöllun - væri einnar messu virði að senda fyr­ir­spurn um það“

Þá segir Vigdís að Rík­is­út­varpið stundi fals­anir og „3.600 millj­ónir renna úr vasa okkar lands­manna inn í þessa skoð­ana­mynd­andi stofnun - það var maður sem hafði sam­band við mig í gær og sagði mér að starfs­manna­fjöld­inn á RÚV væri kom­inn yfir 700 manns með verk­tökum - hvenær er nóg nóg?“ segir hún á Facebook.

Kastljós sýndi í gær þátt þar sem fjallað var um for­dæma­laus afskipti Mat­væla­stofn­unar af eggja­búum Brú­neggja. Þar kom fram að Mat­væla­stofnun teldi að fyr­ir­tækið hefði um ára­bil blekkt neyt­endur með því að not­ast við merk­ingar um vist­væna fram­leiðslu og frjálsar varp­hænur. Kastljós fékk aðgang að gögnum Mat­væla­stofn­unar, um þús­und blað­síður af skýrslum og sam­skiptum, og komst þannig að því að í tæpan ára­tug hefur verið vit­neskja um að Brúnegg upp­fylli ekki skil­yrði sem sett voru fyrir vist­vænni merk­ingu.

Vigdís gagn­rýnir líka eft­ir­lits­að­ila í færslu sinni og birtir mynd af fjár­lögum árs­ins 2016, þar sem fram kemur að Mat­væla­stofnun hafi fengið 1,6 millj­arð til rekst­urs stofn­un­ar­innar. Hún segir að Sam­keppn­is­eft­ir­litið sé „á eftir MS“ fyrir tæpan hálfan millj­arð á ári.

Gunnar Bragi Sveins­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra og flokks­bróðir Vigdísar, segir við RÚV að hann hafi verið orð­laus yfir þætt­inum. „Þetta er algjör við­bjóður hvernig þarna hefur verið staðið að,“ sagði ráð­herr­ann. Hann segir ráðu­neytið ætla að fara betur yfir þetta mál en mis­tök hafi verið gerð þegar starfs­maður, sem fékk málið á sitt borð, hætti störfum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár